Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.2016, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 14.04.2016, Blaðsíða 20
20 fimmtudagur 14. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR Bátur, vef ja eða salat Stór bátur 999 kr. 599 kr. Kjúklingur, beikon, maribo-ostur, kál, tómatar, rauðlaukur og ranch-sósa 11.–17. APRÍL Bátur vikunnar PI PA R \T BW A • S ÍA þú velur bát, veu eða salat quiznos.is HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ: NORÐLINGAHOLTI · GULLINBRÚ ÁLFHEIMUM · SÆBRAUT · MJÓDD GARÐABÆ · MOSFELLSBÆ LANDSBYGGÐIN: BORGARNESI · AKRANESI AKUREYRI · REYÐARFIRÐI KEFLAVÍK · SELFOSSI · HELLU MESQUITE Kjúklingur og beikon 599kr. Árangur við úrvinnslu heimilisof- beldis hefur tekið stakkaskiptum eftir að lögreglan á Suðurnesjum hóf sam- starf við félagsþjónustur sveitarfélag- anna á Suðurnesjum. Hlutfall mála þar sem rannsókn var hætt fækkaði úr 94 prósentum árið 2010 í 3 prósent árið 2015. Það sem meðal annars þótti til bóta var að geta leitað til annarra einstaklinga en lögreglu, þó mark- mið allra sé það sama, að uppræta heimilisofbeldi. Þar skiptir ekki síður máli óeinkennisklætt starfsfólk. Fé- lagsþjónustur sveitarfélaganna komu að 42 málum af 62 árið 2015. Að sögn Lögreglunnar á Suður- nesjum hefur góður árangur náðst í úrvinnslu heimilisofbeldis á Suður- nesjum á undanförnum árum. Vís- bendingar þar af lútandi eru til dæmis upplýsingar frá Kvennaafhvarfinu um að þangað hafi færri konur og börn frá Suðurnesjum leitað eftir að breytt verklag var tekið upp. Þá hafi fleiri karlar af Suðurnesjum leitað aðstoðar hjá Körlum til ábyrgðar (sem nú nefn- ist Heimilisfriður) en áður. Málum þar sem rannsókn er hætt snarfækkar Mál fá nú meiri framgang innan rétt- arvörslukerfisins nú en áður og féllu 28 dómar í heimilisofbeldismálum á Suðurnesjum á árunum 2011 til 2014. „Árið 2010 var rannsókn hætt í 17 af þeim 18 málum sem komu til rann- sóknar hjá lögreglu, strax hjá rann- sóknardeild. Þetta eru 94 prósent málanna. Árið 2015 var þetta hlutfall komið í 2 mál eða 3 prósent af þeim 62 málum sem komu upp það ár,“ segja þeir Skúli Jónsson og Jóhannes Jens- son hjá Lögreglunni á Suðurnesjum. Nokkrar sveiflur hafa verið í mála- fjölda undanfarin ár og má nefna ýmsar hugsanlegar ástæður fyrir því, svo sem betri skráningu hjá lögreglu og aukna tiltrú almennings á verk- laginu. Um 8 prósent þeirra heim- ilisofbeldismála sem koma til kasta lögreglu á landinu eiga sér stað á Suðurnesjum en íbúafjöldinn er um 7 prósent af heildaríbúafjöldanum. Að sögn Skúla og Jóhannesar er um- dæmi lögreglunnar á Suðurnesjum með hæsta hlutfall þessara mála utan höfuðborgarsvæðisins. „Verklagið hjá okkur gengur út á „að halda glugganum opnum“ eins lengi og þörf krefur. Það þýðir að lögregla, barnaverndar- og félagsmálayfirvöld komi að málum, afli eins mikilla upp- lýsinga og unnt er, bjóði stuðning og kynni bæði brotaþolum og gerendum þau úrræði sem eru í boði, strax í upphafi máls. Þá er málum fylgt eftir, annars vegar með sambandi félags- þjónustu við brotaþola innan þriggja daga frá atburði og síðan með heim- sókn lögreglu og félagsþjónustu að jafnaði innan viku frá atburði. Þessi aðferðafræði hefur almennt mælst vel fyrir hjá brotaþolum sem telja sig fá meiri stuðning og ráðgjöf en áður,“ segja Skúli og Jóhannes. Skýr skilaboð um að heimilisofbeldi sé ekki liðið María Gunnarsdóttir, forstöðumaður barnaverndar í Reykjanesbæ, segir að markmiðið með verkefninu sé að gefa út skýr skilaboð til íbúa um að ofbeldi á heimilum verði ekki liðið. „Það er gert með því að lögreglan á Suðurnesjum leggur sérstaka áherslu á rannsókn heimilisofbeldismála og félagsþjónustur sveitarfélaganna á Suðurnesjum setja það í forgrunn að bæta þjónustu við þolendur og ger- endur í heimilisofbeldismálum.“ Um leið og lögreglan fær tilkynningu um heimilisofbeldi kemur starfsfólk fé- lagsþjónustu viðkomandi svæðis að málinu. Vorið 2015 hélt sænski félagsráðgjaf- inn Inger Ekbom námskeið í Reykja- nesbæ fyrir fagfólk sem vinnur með börnum sem búa við eða hafa búið við heimilisofbeldi. Ekbom er höf- undur meðferðarúrræðisins Trappan, sem gengur út á þrepaskiptingu við meðferð þolanda allt frá fjögurra ára aldri. „Í fyrsta þrepi er lögð áhersla á tengslamyndun við barnið svo það finni sig öruggt í að greina frá erfiðri lífsreynslu. Í öðru þrepi er lögð áhersla á uppbyggingu þar sem barnið vinnur úr lífsreynslu sinni og í því þriðja er unnið með þekkinguna á margvís- legan hátt og framtíðin rædd,“ segir María. Á vef Reykjanesbæjar er tengill á bækling um heimilisofbeldi á íslensku, ensku og pólsku sem gefinn var út af félagsþjónustum sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Velferðarvaktinni og Velferðarráðuneytinu í kjölfar samstarfsins. Slóðin er http://www. reykjanesbaer.is/thjonusta/velferdar- mal/heimilisofbeldi/ Nú er unnið að endurútgáfu á bæklingnum á vegum velferðarráðuneytisins. Góður árangur við upp- rætingu heimilisofbeldis ●● Færri●konur●og●börn●af●Suðurnesjum●leita●til●Kvennaathvarfs●● eftir●að●nýjar●verklagsreglur●voru●teknar●upp Mál látin niður falla hjá Lögreglunni á Suðurnesjum ■2010 94% mála ■2015 3% mála Herdis Andrésdóttir, Helga Andrésdóttir, Jón Halldór Eiríksson, Aðalsteinn Már Aðalsteinsson, og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Kristbjörg Helgadóttir, Smáratúni 24, Keflavík, lést þann 31. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk HSS D-deild fyrir góða umönnun og umhyggju. Henry Lirot, Brian Thor Lirot, Rebekka Zenith Lirot, Amy Elisabet Gillette, Olof Ros Flemming og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ragna Ólafsdóttir Lirot, frá Njarðvík, lést á heimili sínu í Ohio 6. apríl. Útförin verður mánu- daginn 18. apríl kl. 14:00 frá Innri-Njarðvíkurkirkju. Auglýsingasíminn er 421 0001

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.