Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.06.2016, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 30.06.2016, Blaðsíða 1
Ekkert virðist stöðva Víðismenn ●● Ósigraðir●í●3.●deild● karla●í●fótbolta ■ Víðismenn hafa unnið alla fimm leiki sína í 3. deild karla í fót- bolta það sem af er tímabili. Þeir gerðu góða ferð til Vestmanna- eyja á þriðjudag þar sem þeir báru sigurorð af KFS 1-2. Víðismenn eru á toppnum með fullt hús stiga en þeir eiga leik til góða á flest lið deildarinnar. „Við stefnum klárlega að því að komast upp um deild. Það er gaman af því hvað það er mikið af heimamönnum í liðinu,“ segir markahrókurinn Helgi Þór Jónsson sem hefur skorað átta mörk í sumar. Víðismenn hafa farið gríðarlega vel af stað eins og áður segir og það er stemning í hópnum. „Þetta er hörku hópur. Það er samkeppni um allar stöður og menn eru því á tánum,“ bætir Helgi við en viðtal við hann má lesa blaði vikunnar. // 15 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M • fimmtudagurinn 30. júní 2016 • 26. tölublað • 37. árgangur ■ Það var sannarlega fjör hjá Garðbúum um liðna helgi þegar árleg Sólseturshátíð fór fram. Hér eru hressir peyjar á hátíðarsvæðinu, þeir Jón Grétar sem er fremstur, og svo tvíburarnir Arnar og Brynjar. Hafnarstjóri Reykjaneshafnar segir að verði ekkert að gert til uppbygg- ingar í Helguvíkurhöfn þá muni það hamla atvinnulífi og uppbyggingu á svæðinu. Umferð er stöðugt að aukast við höfnina í takt við aukin umsvif í Helguvík. Hafnarstjóri segir að það fé sem leggja þurfti til vegna hafnarinnar sé ekki mikið sé horft til þeirra tekna sem munu hljótast af starfseminni þar á næstu árum. Skip sem var að koma með efni til vinnslu hjá United silicon í vikunni þurfti að bíða í 12 klukkustundir eftir því að fá afgreiðslu við höfnina í Helguvík. Halldór Karl Hermanns- son hafnarstjóri segir að þetta hafi ekki gerst áður í Helguvík og að þetta stafi af aukinni umferð við höfnina í tengslum við aukna atvinnustarf- semi þar. Það mun bara bætast við umferðina að sögn Halldórs. Bæðu muni koma meira hráefni til Helgu- víkur og svo fara að streyma þaðan afurðir innan skamms, sem kallar á frekari skipakomu. „Mín sýn er sú að við verðum að hafa okkur alla við að haga þessu þannig að hlutirnir gangi upp,“ segir Halldór. Í byrjun árs 2015 óskaði Reykjanes- höfn eftir að hafnarframkvæmdir í Helguvík kæmust inn á samgöngu- áætlun 2015 til 2018 eftir að ný hafna- lög höfðu tekið gildi. Halldór segir að sú stækkun sem fyrir- huguð var á viðleguköntum í Helguvík sé grunn forsenda fyrir því að geta tekið við því sem er að gerast á næstu tveimur árum. Áætlaður kostnaður vegna stækkunarinnar er tæplega 1,2 milljarðar. Halldór telur að að þær fjárhæðir sem þurfi til Helguvíkur séu ekki miklar sé horft til þeirra tekna sem munu hljótast af starfseminni þar á næstu árum. „Ef ég horfi til tíu ára þá tel ég líklegt að tekjustreymið sem yrði við þessa stækkun yrði í kringum þrjá milljarða.“ Halldór segir að það byggist þó á því að allar hugmyndir um uppbyggingu í Helguvík verði að ganga eftir. Ef Helguvíkurhöfn kæmist inn á sam- gönguáætlun þá yrði framkvæmdin ríkisstyrkt að 60 prósentum líkt og í öðrum höfnum landsins. „Það eru þá eftir um 500 milljónir sem Reykjanes- bær þyrfti að dekka og ef allt gengur upp sem við erum að hugsa, þá er það eitthvað sem við gætum hugsanlega séð fram úr.“ Þingmenn og ráðherrar úr Suðurkjördæmi áttu á dögunum fund með forystumönnum Reykja- nesbæjar þar sem farið var yfir þær framkvæmdir sem þegar hafa átt sér stað og hvað vanti upp á í höfninni svo hún sé í stakk búin að sinna þeim inn- og útflutningi sem verður um höfnina þegar tvö kísilver hafa risið í Helguvík. „Það er fullur skilningur á þessu og mikill áhugi á að viðmót verði ekki lakara gagnvart okkur, en það hefur ekki sýnt sig á blaði ennþá,“ segir hafnarstjórinn. „Ég sá í Víkurf- réttum á dögunum að fyrirhugaður væri fundur. Ég hef reyndar ekki verið boðaður á hann ennþá og veit ekki til þess að nokkur annar hafi verið boð- aður á hann.“ Halldór segir að ef þessar stækkanir muni ekki eiga sér stað þá setji það miklar hömlur á atvinnuuppbyggingu á svæðinu. „Miðað við þá fjárfestingu sem liggur í þeirri uppbyggingu þá eru þetta bara smápeningar. Benda má á að í þjóðhagsspá síðastliðið haust var uppbygging kísilvera í Helguvík for- senda fyrir bættum þjóðarhag i fram- tíðinni.“ Íbúar Reykjanesbæjar tóku líklega eftir því að malarskip landaði við Kefla- víkurhöfn á dögunum. Það skip hefði átt að landa við höfnina við Helgu- vík ef umferð þar hefði ekki verið svo þung. „Við bara verðum að ná þessari uppbyggingu við hafnaraðstöðuna því annars sé ég ekki hvernig við eigum að geta þjónustað þá aðila sem eru að hasla sér völl á þessu svæði. Auk þess að ef að uppbyggingin á flugvallar- svæðinu verður eins og virðist stefna í þá þýðir það að allt það sem þarf að flytja inn vegna þeirrar starfsemi, þarf að fara í gegnum aðrar hafnir en okkar hafnir og slíkt myndi auk þess hafa í för með sér talsvert aukna umferð á Reykjanesbraut,“ segir hafnarstjórinn að endingu. Pattstaða í Helguvíkurhöfn setur hömlur á atvinnulífið Þetta skip þurfti að bíða í 12 klukkustundir eftir því að komast að hafnarbakk- anum við Helguvík. Ætla að útrýma kynbundnum launamun ■ Kynbundinn launamunur hjá Grindavíkurbæ er 0,8 prósent af grunnlaunum en 4,7 prósent af heildarlaunum. Á vef Grindavíkur- bæjar segir að undanfarið hafi verið fjallað um niðurstöður könnunar á kynbundnum launamun meðal fé- lagsmanna BHM sem mælist 11,7 prósent. Í fréttaflutningi hafi verið vísað til þess a ð ö n n u r s veit ar fé l ö g e n R e y k j a - vík standi sig e k k i þ e g a r kemur að því að minnka og útrýma kyn- b u n d n u m l a u n a m u n . Grindavíkur- bær telur þá f u l l y r ð i n g u ekki eiga við u m s t a r f - semi sína. Á landsvísu er Grindavík í 3. sæti af 49 hvað varðar grunnlaun, en í 13. sæti hvað varðar heildarlaun. Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að því að draga úr óútskýrðum launamun, m.a. með breytingum á aksturs- greiðslum og yfirvinnu. Stefna Grindavíkurbæjar er að útrýma launamun kynjanna, enda réttlætis- mál að greidd séu sömu laun fyrir sömu vinnu og hæfni. Samkvæmt framkvæmdaáætlun Jafn- réttisstefnu Grindavíkurbæjar fer næsta könnun fram 2017.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.