Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.06.2016, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 30.06.2016, Blaðsíða 4
4 fimmtudagur 30. júní 2016VÍKURFRÉTTIR Hinn 19 ára gamli Keflvíkingur Eiður Snær Unn- arsson er duglegur að nota snjallsímann líkt og svo margir á hans aldri. Hann notar símann mikið til þess að hafa samskipti við vini sína og til þess að hlusta á tónlist eða pósta myndum. Eiður er Kefl- víkingur í húð og hár en hann stundar nám við Verslunarskólann. Hann vinnur hjá Joe & Juice í sumar og með skóla. Snapchat Snapchat er það app sem ég nota lang- mest, 70% af batteríinu mínu fer í það að nota snap. Ég nota það bæði til þess að taka myndir af því sem ég er að gera og af því sem er að gerast í lífi mínu og svo líka til þess að spjalla við vinina heyra í þeim, hvort það sé eitthvað að gerast um kvöldið, snilldar app sem held ég flestir séu nú þegar með. VSCO VSCO er app sem ég nota til að pósta myndum á, það virkar mjög svipað og instag- ram. Maður setur myndir inn á netið fyrir fólk að sjá, nema enginn getur „like-að“ og þú sérð ekki hversu margir eru að „followa“ þig. Það er víst orðið „lykil“ atriði í unglingasam- félaginu nú til dags og gott að komast smá út úr því. Nota appið einnig til að þess að breyta myndunum mínum sem ég er með í símanum. Spotify Það er appið sem er notað daglega hjá mér. Nota það reyndar líka í tölvunni mjög mikið og í vinnunni, nota það alltaf þegar ég er að keyra, hlusta voða litið á útvarpið. Ég tengi frekar símann og er með mína eigin tónlist. Þetta app er sem sagt tónlistar app sem hefur aðgang að megninu af öllum lögum heimsins. Messenger Er einnig app sem kemur sterkt inn hjá mér. Messenger er í raun bara Facebook „chattið.“ Ég ræði við mjög mikið af fólki þar, bæði fyrir vinnuna og vini. Notes Skemmtilegt app sem ég nota furðulega mikið, skrái næstum allar upplýsingarnar sem ég þarf að muna þangað, kiki svo alltaf annað slagið þarna inn og geri svo hlutina sem ég var búinn að skrá niður. Snappið tekur 70% af batteríinu SNJÖLL ÖPP - EIÐUR SNÆR UNNARSSON „Sumt af því sem ég geri er hættulegt. Það er ekkert grín þegar maður heldur í sér andanum með lokuð augun og heyrir kallað „þú logar, gakktu af stað!” segir Grindvíkingurinn Daníel Freyr Elíasson sem hefur sett markið hátt í áhættuleik. Hann segir jafnframt að sumt sem hann geri sé álíka hættu- legt og að fara á rúntinn. „En ef maður er ekki með hausinn á réttum stað, eða með réttan undirbúning, þá er alltaf hætta á slysum.“ Daníel byrjaði 17 ára að æfa parkour með A.T.S. sem hefur aðstöðu hjá Gerplu. Það var svo fyrir fjórum árum að hann fór til Þýskalands með öðrum parkour þjálfurum og hitti mann sem skipu- leggur áhættuat- r ið i . Sá l e y fð i þeim að prufa eitt og annað tengt áhættuleik og þá kviknaði áhuginn hjá Daníel. Ný- lega lauk Daníel svo námskeiði hjá European Stunt S cho ol í Dan- mörku en það er fyrirtæki sem sér- hæfir sig í áhættuatriðum og skipu- lagningu á þeim. „Ég var þar í tvær vikur þar sem við æfðum í tæplega tólf klukkutíma á dag. Við fórum yfir alla flóruna, frá bardagaatriðum yfir í áhættuakstur, og þaðan í að láta kveikja í okkur og allt þar á milli,“ segir Daníel. Daníel hefur þegar fengið tvö hlut- verk. Annað var í tónlistarmynd- bandi sem tekið var upp á Vatnsleysu- strönd og annað verður frumsýnt á Menningarnótt í Reykjavík. Enn sem komið er hefur Daníel ekki slasast við áhættuleikinn en segir þó alltaf mögu- leika á því. Aðspurður um það hvort fjölskyldan hafi áhyggjur af honum í áhættuleiknum segir hann þau alltaf hafa stutt sig í gegnum allt sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. „ S t u ð n i n g u r þeirra skiptir mig rosalega miklu máli. Hvort þau h a f i á hy g g ju r, veit ég ekki, en það væri nú alveg eðlilegt, myndi ég halda,“ segir hann í léttum dúr. Á s a m t þ v í a ð stunda parkour og áhættuleik vinnur Daníel á Kefla- víkurflugvelli og í Skemmtigarð- inum í Grafarvogi þess á milli, enda kveðst hann vera algjör vinnualki. Næstu skref hjá þessum unga ofur- huga verða svo að koma sér enn betur á framfæri. Myndband af Daníel við áhættuleik má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is. ●● Ungur●Grindvíkingur●leggur●áhættuleik●fyrir●sig ÞÚ LOGAR, GAKKTU AF STAÐ! Daníel heillaðist af áhættu- leik þar sem hann var á ferða- lagi með parkour þjálfurum. Á myndinni er Daníel búinn að klæða sig í tvöfalt lag af sams konar innanundir fatnaði og notaður er í kappakstri en það efni þolir hita vel. Fatnaðurinn hefur lagið í kæligeli í dágóðan tíma. Að sögn Daníels er ískalt að vera í fötunum og er mark- miðið að lækka líkamshitann til að geta verið lengur í logunum. Ytra lagið er samfestingur eins og notaður er í kappakstri. Hann er smurður með kæligeli. Yfir það fór hann í venjulegan gallabuxur og jakka sem líka eru smurð með kæligelinu. Á þetta er settur eldfimur vökvi. „Áhættuleikarinn dregur djúpt andann, heldur honum inni, lokar augunum og gefur merki um að hann sé klár. Þá er kveikt í, hann látinn vita að hann logar, og þá fer hann af stað. Um leið og áhættuleikarinn finnur hitabreytingu leggst hann í jörðina og slökkvararnir stökkva inn og slökkva,“ segir Daníel. ATVINNA WORK Starfskraftur óskast í hreingerningar / ræstingar Okkur hjá Allt hreint vantar fólk til starfa bæði er um að ræða fullt starf og einnig vinna eftir samkomulagi. Mikil vinna framunda. Hæfniskröfur: Viðkomandi verður að vera amk 18 ára og vera með gild ökuréttindi Áhugasamir sendi tölvupóst á halldor@allthreint.is Requirements: Individuals must be at least 18 years old and have a valid driver’s licens Languages: Icelandic or good English We look for people for full time work (08:00 - 16:00 100%) and also part time If interested please send an e-mail to: halldor@allthreint.is HREINGERNINGAR - RÆSTINGAR - AUKAVINNA STAFF NEEDED MUCH WORK AHEAD

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.