Víkurfréttir - 30.06.2016, Page 8
8 fimmtudagur 30. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
Kynntist þaranum í Sandgerði
Eydís ólst upp á Norðurlandi og
Austfjörðum en flutti til Reykjanes-
bæjar árið 2001 eftir að hún kynnt-
ist eiginmanni sínum, Guðmundi
Stefáni Gunnarssyni, sem sennilega er
þekktastur sem júdófrumkvöðull hjá
UMFN. Hún lauk námi í landafræði
í Danmörku og flutti aftur til Íslands
árið 2008 og hóf þá nám í umhverfis-
fræðum við Háskóla Íslands. Eftir út-
skrift fór hún að vinna hjá Náttúru-
stofu Suðvesturlands í Sandgerði við
að kortleggja lífríki í fjörum Reykja-
nesskaga. Þar kynntist hún fyrst þara
og eiginleikum hans. „Þegar var smá-
streymt var ekki hægt að fara niður
í fjöru að kortleggja og þá var ég að
kanna hvað hægt væri að gera við þær
þörungategundir sem við vorum að
kortleggja. Segja má að ég hafi orðið
ástfangin af þaranum enda er þetta
ein harðgerðasta lífvera jarðarinnar
og einstaklega næringarrík. Ég komst
að því að þari er mikils metinn í húð-
vöruiðnaðinum því að í honum er að
finna mikið magn vítamína, stein-
efna, amínósýra, andoxunarefna og
ýmissa annara lífvirkra efna sem er
vísindalega sannað að eru græðandi,
mýkjandi, bæta efnaskipti, hjálpa til
við uppbyggingu kollagens, hægja á
öldrun húðarinnar, koma í veg fyrir
myndun öra, verja húðina gegn ljós-
öldrun, eru bólgueyðandi, hafa vírus-,
bakteríu- og sveppahamlandi eigin-
leika og hægja á vexti krabbameins-
frumna. Þarinn er einstakt efni
og hjálpar til við að byggja upp
heilbrigt vistkerfi húðar-
innar,“ segir hún og brosir.
Aukin eftirspurn með
þaranum
Guðný Fjóla S ig-
urðardóttir, móðir
Eydísar, hefur alltaf
verið mikið náttúru-
barn að sögn Eydísar.
„Hún hefur alltaf haft
mikinn áhuga á að
nýta það sem náttúran
gefur, eins og ber, sveppi
og hinar ýmsu lækninga-
jurtir. Svo þegar parabenof-
næmi sonar míns uppgötvað-
ist byrjaði hún að búa til húð- og
sápuvörur fyrir okkur án skaðlegra
efna, úr úrvals náttúrulegum efnum
og jurtum sem hún tíndi sjálf.“ Til að
byrja með var þó enginn þari í krem-
unum. Það var svo fyrir mikla tilviljun
í spjalli á milli ættingja í jólaboði að
þarinn kom til sögunnar. „Bróðir
mömmu, Steindór Runiberg Haralds-
son, var að segja frá þörungaþykkni
sem hann hafði verið að þróa sem
bragðefni. Hann er kokkur og hefur
lengi unnið að ýmis konar nýsköpun
og líftækni, meðal annars að þróa
bragðefni.“ Þegar Eydís heyrði af þara-
þykkninu í jólaboðinu varð hún strax
áhugasöm og svo skemmtilega vildi
til að Steindór var með fullan brúsa
af því úti í bíl. „Við mamma fengum
brúsann og bárum þaraþykknið á
okkur næstu daga og fundum mikinn
mun á húðinni. Við prófuðum að taka
allt vatn úr kremuppskriftunum og
settum þaraþykknið í staðinn og út-
koman varð alveg einstakt krem. Allt
í einu fórum við að finna fyrir mikilli
eftirspurn eftir bæði kremunum og
sápunum og þá sérstaklega frá fólki
með viðkvæma húð eða húðvanda-
mál eins og til dæmis exem. Með tím-
anum hafa svo nýjar vörur verið þró-
aðar eftir þörfum. Við leggjum mikla
áherslu á að velja vandlega öll inni-
haldsefni varanna. Þannig eru engin
óvirk fylliefni í þeim og að sjálfsögðu
engin paraben.“
Fótakremið var júgursmyrsl
Eydís nefnir sem dæmi einn ættingja
með viðkvæman hársvörð sem fékk
mikinn kláða vegna súlfata sem er að
finna í flestum sjampóum. „Súlföt eru
ódýr freyðiefni sem geta verið mjög
ertandi fyrir húðina og er að finna í
flestum sjampóum og ódýrum sápum.
Nú erum við búin að vera að þróa
súlfatlaust sjampó og hárnæringu úr
þaraþykkninu.“ Eydís nefnir einnig
kunningjakonu þeirra sem var með
mikið kuldaexem á höndum og keypti
sápu á bás Júdódeildar UMFN á
Ljósanótt eitt árið. „Eftir að hafa
notað sápuna varð húðin alveg
heil. Þessi kona hefur notað
sápuna núna í rúm fjögur
ár og nær með henni að
halda niðri exeminu.“
Stefnan er einnig að setja
á markað fótakrem. Í
upphafi var fótakremið
þó þróað sem júgursmyrsl
því að vinkona mömmu
Eydísar sem framleiðir
lífræna mjólk vildi ekki
nota venjulegt júgursmyrsl
á kýrnar sínar. Móðir Ey-
dísar setti saman krem, meðal
annars úr þara og minkaolíu
og úr varð hið besta smyrsl fyrir
kýrnar en einnig einstaklega gott
fótakrem fyrir fólk. Eydís segir þau
hafa ótalmörg svona dæmi og hafi
virkni þaraþykknisins og varanna
sannarlega sannað sig á undanförnum
árum. „Það var aldrei ætlunin að fara
að framleiða og selja húðvörur, en
allt í einu höfðum við í höndunum
þetta einstaka hráefni og vörur sem
hafa virkilega verið að gera fólki gott
og því má segja að við getum ekki
annað en sett þær á markað. Eldhúsið
hennar mömmu annar ekki lengur
eftirspurn.“
Nú í sumar fer þaraþykknið í efna-
greiningu hjá Matís og er Eydís full
eftirvæntingar að sjá útkomuna.
Kremin verða svo blönduð og pökkuð
hjá fyrirtækinu Pharmarctica á Greni-
vík og sápurnar hjá Sælusápum í
Kelduhverfi. Eydís segir skemmtilegt
að verkefnið teygji sig svo víða um
landið enda þurfi ekki allt að gerast
á Suðvesturhorninu. „Það er mjög
gaman að taka þátt í líftækni á Ís-
landi í dag. Það eru svo mörg fyrir-
tæki að framleiða virkilega vandaðar
og hreinar vörur. Þó fyrirtækin séu
mörg hver í samkeppni, þá vinna þau
líka saman að því að skapa gott orð-
spor fyrir Ísland og íslenskar vöru og
styrkja þannig hvert annað.“
Ný tækni
Þarinn sem notaður er í þykknið er
lífrænt vottaður og er unninn hjá
Þörungavinnslunni á Reykhólum.
Að sögn Eydísar er vinnsluaðferðin
við að ná þaraþykkninu úr þaranum
einstök og eftir því sem hún best veit
ekki notuð annars staðar í heiminum.
„Hefðbundið þaraekstrakt er unnið
með hjálp ensíma eða sýru og basa en
þá tapast ýmis lífvirk efni í vinnslunni.
Steindór frændi er búinn að þróa að-
ferð sem byggir á nýrri tækni í vél-
búnaði og vonumst við til þess að ná
meira af lífvirkum efnum úr þaranum,
auk þess sem aðferðin er afar um-
hverfisvæn.“
Stefna á útflutning
Núna er verið að vinna að hönnun
á umbúðum og verður allur texti á
þeim á ensku þar sem stefnan sé sett
á útflutning sem fyrst. Eydís og fé-
lagar eru þegar í samstarfi við aðila í
Japan, Bretlandi og Þýskalandi sem
bíða spenntir eftir að vörurnar verði
tilbúnar til markaðsetningar. Eydís
segir fólk alltaf að verða meðvitaðra
um skaðsemi ýmissa kemískra efna
og að mikill vöxtur sé á sölu náttúru-
legra húðvara. Næstu skref eru svo að
undirbúa markaðsetningu varanna
og vonast Eydís til þess að vörur Zeto
verði komnar á markað næsta sumar.
„Ég hef mikla trú á þaraþykkninu og
þeim vörum sem við erum búin að
þróa. Það sem ég þarf að gera núna er
að vanda vel til verka og þá mun Zeto
ganga vel.“
●● Frumkvöðullinn●Eydís●Mary●Jónsdóttir●þróar●●
krem●úr●þara●í●samstarfi●við●móður●sína●og●frænda
„Ég komst að því fyrir 12 árum að sonur minn er með ofnæmi fyrir parabenum, rotvarnarefnum í kremum. Eftir það fór ég að lesa
utan snyrtivörur og sá að það voru paraben nánast í þeim öllum. Ég komst líka að því að flestar húðvörur innihalda lítið magn
virkra efna, en þess í stað mikið magn af óvirkum fylliefnum ásamt ýmsum öðrum efnum sem geta verið skaðleg bæði heilsu
okkar og umhverfinu,“ segir Eydís Mary Jónsdóttir, umhverfisfræðingur og frumkvöðull hjá nýsköpunarfyrirtækinu Zeto. Í mars
síðastliðnum tók Eydís þátt í Frumkvöðlakeppninni Gullegginu með hugmynd sína um að framleiða lífvirkar húð-, hár- og sápu-
vörur úr kaldpressuðu þaraþykkni og lenti í þriðja sæti. Síðan þá hefur verkefnið hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði, Átaki til
atvinnusköpunnar og Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka og er markmiðið að setja fyrstu vörurnar á markað næsta sumar.
OFNÆMI VARÐ
KVEIKJAN AÐ NÝSKÖPUN
Segja má að ég hafi
orðið ástfangin af
þaranum enda er
þetta ein harð-
gerðasta lífvera
jarðarinnar og ein-
staklega næringarrík