Víkurfréttir - 30.06.2016, Qupperneq 10
10 fimmtudagur 30. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
Hvernig verður sumarfríið hjá þér
í ár?
Sumarfríið í ár verður fyrsta heila
sumarfríið okkar hjóna saman og
erum við bara að verða nokkuð spennt
að getað slakað á með börnunum. Við
fengum lánað tengdamömmubox og
getum því komið hundi, börnum,
tjaldi og öðrum farangri í bílinn. Við
ætlum að fara norður á Akureyri en
þar á ég nokkrar góðar vinkonur sem
gaman verður að hitta. Það er líka
alltaf svo gaman að fara á Akureyri en
ég bjó þar á háskólaárunum og þykir
voðalega vænt um bæinn. Við ætlum
líka að fara í sumarbústað og heim-
sækja fjölskylduna mína eitthvað en
flestir eru á Selfossi og í Hveragerði.
Einnig gefum við okkur tíma í fjall-
göngur, jóga og mögulega eitthvað
golf ef meirihluti fjölskyldunnar fær
að ráða!
Eftirminnilegasta fríið?
Minnið mætti nú mögulega vera
betra en ég nefni sumarfríið í fyrra.
Þá fórum við fjölskyldan með tjald
norður í land og gistum meðal annars
í Ásbyrgi. Það þótti mér vera magnað,
alveg heiðskýr himinn, náttúrufeg-
urðin engu lík og svo var svo gaman
að ferðast aðeins um svæðið. Ég bara
elska Ísland!
Hvert væri draumasumarfríið?
Draumasumarfríið er sennilega að
hafa nægan tíma og fara umhverfis
landið, helst á húsbíl. Ég hugsa að
það sé heppilegt. Svo hefur mig alltaf
langað til Ítalíu og væri mjög til í að
fara með fjölskyldunni minni þangað
að borða góðan mat og njóta menn-
ingar beint í æð.
Mesti draumurinn við sumarfrí, sem
sérhver manneskja skapar sér sjálf,
er að njóta! Teygja makindalega úr
sér á hverjum morgni, fá sér kaffi í
rúmið, lesa góðar bækur, hreyfa sig,
fara í sund og njóta alls þess góða sem
hver staður hefur upp á að bjóða.
Magnað að gista í Ásbyrgi
●● Búin●að●fá●tengdamömmubox●lánað●fyrir●sumarfríið
Anna Margrét Ólafsdóttir, verkefnis-
stjóri hjá Bókasafni Reykjanesbæjar og
jógakennari, ætlar að ferðast um landið
með fjölskyldunni í sumar. Drauma-
sumarfríið væri að keyra í rólegheitum
í kringum landið, á húsbíl.
Anna Margrét ásamt eiginmanni sínum Inga Þór Ingibergssyni og börnum
þeirra, þeim Bergrúnu Írisi og Skarphéðni Óla. Á myndinni má líka sjá tíkina
Mýru. Myndin var tekin í Lystigarðinum á Akureyri síðasta sumar.
SUMARFRÍIÐ
ERTU MEÐ
MEIRAPRÓF?
Óska eftir bifreiðastjóra með meiraprófsréttindi.
Upplýsingar í síma 820-2211, 899-2864.
LÝSING Á STARFI:
- Afhenting og móttaka bifreiða
- Þrif bifreiða
- Önnur tilfallandi verkefni
HÆFNISKRÖFUR:
- Framúrskarandi þjónustulund og
færni í mannlegum samskiptum
- Góð enskukunnátta
- Bílpróf
- Jákvæðni og stundvísi
ATVINNA
Áhugasamir geta haft samband við Alexander í gegnum
netfangið alexander@lotuscarrental.is eða í síma 848-1250
Lotus Car Rental óskar eftir þjónustufulltrúa í fullt starf á starfstöð sína í Keflavík.
LAUS STÖRF
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er
komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex
mánuði.
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á
vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi
/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari
upplýsingar um störfin.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
LEIKSKÓLINN TJARNARSEL
LEIKSKÓLINN TJARNARSEL
FJÁRMÁLASVIÐ
VELFERÐARSVIÐ
Verkamaður
Sérkennslustjóri
Leikskólakennari
Deildarstjóri launadeildar
Starf á heimili fatlaðs fólks
VIÐBURÐIR
HEIMSKONUR HITTAST/WOMEN OF THE WORLD MEET
Heimskonur, a group of international women in Reykja-
nesbær, will meet at Ráðhúskaffi from 13:00 - 15:00
o´clock on Saturday the 2nd of July. New members
welcome.
Landnámsdýragarðurinn við Víkingaheima er opinn alla
daga kl. 10:00 - 17:00.
LANDNÁMSDÝRAGARÐURINN OPINN
Nánari upplýsingar um viðburði á vegum Reykjanes-
bæjar er að finna á vefnum www.reykjanesbaer.is.
Forvarnir með næringu
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
NÝTT
Opið alla daga
fram á kvöld
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Handunnin leðurbelti
Skóvinnustofa Sigga
Kandídatar í tæknifræðinámi Há-
skóla Íslands og Keilis voru útskrif-
aðir síðasta föstudag. Námið heyrir
undir Rafmagns- og tölvuverkfræði-
deild HÍ. Var þetta í fimmta sinn sem
útskrifaðir voru nemendur í tækni-
fræði frá Keili til BSc-gráðu við Há-
skóla Íslands. Ellefu nemendur voru
brautskráðir, sjö úr mekatróník há-
tæknifræði og fjórir úr orku- og um-
hverfistæknifræði. Brautskráningin
fór fram við hátíðlega athöfn í aðal-
byggingu Keilis á Ásbrú og hafa nú í
allt 63 nemendur útskrifast úr náminu
frá upphafi.
Sverrir Guðmundsson forstöðumaður
tæknifræðinámsins flutti ávarp og
afhenti prófskírteini ásamt Helga
Þorbergssyni, dósent við Rafmagns-
og tölvuverkfræðideild Háskóla Ís-
lands. Jóhannes Benediktsson, for-
maður tæknifræðingafélagsins, flutti
ávarp og veitti gjafir fyrir vel unnin
og áhugaverð verkefni. Viðurkenn-
ingar hlutu Helgi Valur Gunnarsson
fyrir verkefnið „Pökkunarbúnaður
fyrir bláskel“ og Jón Þór Guðbjörns-
son fyrir verkefnið „Miðlægur orku-
stýribúnaður með gagnaflutning um
raflagnir“. Þá hlaut Skarphéðinn Þór
Gunnarsson viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur, með 8,3 í meðal-
einkunn.
Ellert Arason flutti ávarp fyrir hönd
útskriftarnema og Hjálmar Árnason,
framkvæmdastjóri Keilis, flutti ræðu
og stjórnaði athöfninni. Gjafir veittu
Tæknifræðingafélag Íslands og HS-
Orka.
Í tilkynningu frá Keili segir að næst
verði tekið við nemendum í tækni-
fræðinám Háskóla Íslands og Keilis í
janúar 2017. Um er að ræða hagnýtt
nám sem hentar sérstaklega vel fyrir
frumkvöðla og þá sem hafa áhuga á
verklegri nálgun í námi og starfi.
Tæknifræðinemendur
útskrifaðir við hátíðlega athöfn