Víkurfréttir - 30.06.2016, Síða 14
14 fimmtudagur 30. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
LESANDI VIKUNNAR
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Bókin heitir Handan minninga og er eftir Sally Magnusson.
Bókin fjallar um Alzheimer sjúkdóminn og hvernig það
breytir öllu þegar náinn ættingi fær sjúkdóminn.
Hver er þín eftirlætis bók?
Þær eru nokkrar; Birtingur eftir Voltaire,
Aulabandalagið eftir John Kenny Toole,
Vinur minn prófessorinn eftir Lucilla
Andrews. Það er ástarsaga sem til var
heima hjá mér þegar ég var ung og var
lesin aftur og aftur og aftur. Einnig
verð ég að nefna Lastafans og lausar
skrúfur eftir Diddu.
Hver er eftirlætis höfundurinn þinn?
Sigurlaug Didda Jónsdóttir
Hvernig bækur lestu helst?
Ljóðabækur og skáldsögur
Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig?
Það er bókin Kvennaklósettið eftir Marilyn French. Hún
kveikti á femínistanum í mér. Einnig verð ég að nefna
bókina Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson, ég grét svo
mikið.
Hvaða bók ættu allir að lesa?
Það eru tvær bækur sem mér dettur í hug. 100 ára einsemd
eftir Gabriel García Márquez en sú bók bjargaði dvöl minni
á Tálknafirði þegar ég vann þar í fiski 19 ára gömul. Vin-
kona mín sendi mér bókina og bjargaði einsemd minni,
sem var auðvitað eins og 100 ár!
Einnig verð ég að nefna bókina Salka Valka
eftir Halldór Kiljan Laxness.
Hvar finnst þér best að lesa?
Upp í rúmi – að sofna ofan í bókina er
klassískt!
Hvaða bækur standa upp úr sem þú
vilt mæla með?
Frøken Smillas fornemmelse for sne
eftir Peter Høeg, Skólaljóðin gömlu,
ljóðasafn Þórarins Eldjárns og allt efni
eftir Lindu Vilhjálms, Sigurlaugu Diddu
Jónsdóttur og Elísabetu Jökuls.
Við þökkum Kikku kærlega fyrir og bendum á heimasíðu
bókasafnsins þar sem hægt er að skrá sig eða mæla með
Lesanda vikunnar!
KLASSÍSKT AÐ SOFNA OFAN Í BÓKINA
Rithöfundurinn og framleiðandinn Kikka Kr. M. Sigurðardóttir er Lesandi vikunnar þessa vikuna. Bókin sem bjargaði henni
úr einsemd var 100 ára einsemd eftir Gabriel García Márquez en henni finnst að allir ættu að lesa hana.
Í hverri viku í allt sumar verður valinn Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Lesandi vikunnar birtist í Víkurf-
réttum alla fimmtudaga í sumar. Í lok hvers mánaðar fær einhver einn heppinn lesandi lestrarverðlaun. Allir sem vilja
taka þátt eða mæla með lesanda þurfa að skrá sig en það er hægt að gera í afgreiðslu Bókasafnsins eða á heimasíðu
safnsins:sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn
Það var líf og fjör við leikskólann
Garðasel í Keflavík í gær. Þar var
haldin mikil sumarhátíð þar sem
börnin fengu andlitsmálningu og
grillaðar voru pulsur fyrir alla. Þá
kom Polla Pönk og tók lagið og reif
upp stemmninguna hjá börnum og
fullorðnum fyrir landsleikinn á EM
sem fór fram síðdegis í gær. Úrslit úr
leiknum lágu ekki fyrir þegar blaðið
fór í prentun. Vonandi eru þau í anda
myndanna hér á síðunni.
Vf-myndir: Hilmar Bragi
SUMARGLEÐI Á GARÐASELI
Elskulegur eiginmaður og faðir,
Axel Þorberg Ingvarsson,
Heiðarholti 7, Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum 24. júní 2016.
Fyrir hönd aðstandanda,
Elsa Björk Kjartansdóttir, Þorgeir Axelsson,
Guðjón M. Axelsson og Soffía I. Axelsdóttir.
Vilhjálmur Nikulásson, Jóhanna Símonardóttir,
Don Herwick, Christine Herwick,
Rebecca Herwick,
Jón Björn Vilhjálmsson, Margret Elimarsdóttir.
Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,
Hildur (Día) Vilhjálmsdóttir,
frá Brautarhóli Höfnum,
679 Land O Lakes Belleville,
lést laugardaginn 25. júní sl. í Bandaríkjunum.
Sigurður Arnar Pálsson, Guðbjörg Jónsdóttir,
Hulda Björk Pálsdóttir, Guðlaugur Jóhann Snorrason,
Heiðar Örn Vilhjálmsson, Birgitta Jóna Fanndal,
barnabörn og systkyni hins látna.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
Páll S. Árnason,
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
lést þann 10 júní sl.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Selma Jónsdóttir,
Elín Þóra Albertsdóttir,
Björn Rúnar Albertsson, Sólveig Anna Einarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna.
Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, afi, langafi og bróðir,
Sigurður Vilberg Egilsson,
Hólagötu 1, Vogum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 24. júní.
Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju,
föstudaginn 1. júlí. kl. 13:00.
LÁTUM RÖDD
OKKAR HEYRAST
Framundan eru spennandi tímar og
fólk er að kalla á eftir breytingum hér
á landi, þjóðfélagsbreytingum. En
hvernig breytingar eru það sem fólkið
í landinu vill sjá? Til þess að finna
út úr því þarf þjóðin að eiga samtal
sín á milli, það er að segja samtal á
milli ráðamanna þjóðarinnar og hins
almenna borgara þessa lands. Þjóðin
þarf líka að vilja, þora og hafa kjark
til þess að láta rödd sína heyrast. Pí-
rötur (konur innan Pírata) boðuðu
til fundar hér í Reykjanesbæ og svo í
Grindavík til þess að heyra hvað konur
hér á svæðinu vildu tjá sig um, hvaða
sýn þær hefðu á framtíðina. Um hvaða
hugsjónir, breytingar og framtíðarsýn
þær sjá fyrir sjálfar sig, börn sín og
barnabörn. Þessi fundur var óháður
því hvort þú tengdist eða tengdist ekki
Pírötum eða öðrum samtökum eða
félögum. Það var ekki margmennt á
þessum fundum hvort sem nýliðnum
forsetakosningum, fótbolta eða öðru
er um að kenna, veit ég ekki. En það
sem ég vil segja og tilgangurinn með
þessum pistli mínum er sá, að ef þér er
boðið upp á samtal þar sem þú getur
látið rödd þína, skoðanir og framtíðar-
sýn í ljós þá mættu og taktu þátt í sam-
talinu. Hvort það séu stjórnmálasam-
tök, kvenfélagið eða íþróttahreyfingar
sem vilja hlusta á þína sýn hvað varðar
framtíðina, þá mættu. Við erum öll
mikilvæg, við höfum raddir og við
höfum skoðanir. Við höfum fram-
tíðarsýn fyrir okkur, börn okkar og
barnabörn, um hvernig við viljum að
þjóðfélagið okkar sé næstu árin. Hvort
sem þú ert karl, kona, eldri borgari,
öryrki eða ungmenni, þá tjáðu þig
um þína sýn og hugsjónir. Við höfum
kannski búið við þöggun of lengi og
ekki þorað að tjá okkur en núna er
þjóðin að kalla á breytingar svo látum
rödd okkar og skoðanir hljóma. Því
þannig virkar lýðræðið, þannig gerum
við breytingar og þannig viljum við
eiga samtal.
Margrét Sigrún Þórólfsdóttir
Pírati