Víkurfréttir - 30.06.2016, Qupperneq 15
15fimmtudagur 30. júní 2016 VÍKURFRÉTTIR
ÍÞRÓTTIR Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is
FÓTBOLTASNILLINGUR VIKUNNAR
Aldur/félag?
12 ára / Keflavík.
Hvað hefur þú æft fótbolta lengi?
Frá tveggja ára aldri.
Hvaða stöðu spilar þú?
Sóknarmaður.
Hvert er markmið þitt í fótbolta?
Að verða atvinnumaður.
Hversu oft æfir þú á viku?
Fjórum sinnum í viku á sumrin en
þrisvar á veturna auk þess að vera í
liðleika æfingum og metabolic.
Hver er þinn eftirlætis
fótboltamaður/kona?
Neymar/Gylfi Sigurðsson.
Áttu þér einhverja
fyrirmynd í boltanum?
Gylfi Sigurðsson.
Hefurðu farið á fótboltaleik erlendis?
Já, nokkrum sinnum.
Hversu oft getur þú haldið á lofti?
67 sinnum.
Hvaða erlenda félag heldur þú upp á?
Arsenal.
Alexander Aron Smárason er fótboltasnillingur vikunnar
VERIÐ Í FÓTBOLTA FRÁ ÞVÍ
AÐ HANN VAR TVEGGJA ÁRA
Alexander Aron Smárason er 12 ára sóknarmaður hjá Keflavík. Hann hefur æft fót-
bolta allt frá því hann var tveggja ára. Hann stefnir hátt í fótboltanum og ætlar sér
að verða atvinnumaður. Draumurinn væri þá líklega að spila fyrir Arsenal í enska
boltanum, en það er uppáhaldsliðið.
■ Njarðvíkingar voru sigursælir á Orkumóti 6. flokks í fótbolta um helgina. Njarðvík sendi tvö lið til leiks en Njarð-
víkurliði 1 tókst að vinna einn af þeim bikurum sem voru í boði á mótinu, svokallaðan Álfseyjarbikar. Sigurinn kom
eftir mikla baráttu við FH í úrslitaleik og var það Tómas Ingi Oddsson fyrirliði liðsins sem tók við bikarnum í leiks-
lok. Að venju fór fram úrvalsleikur milli landsliðsins og pressuliðs á föstudeginum og átti Njarðvík fulltrúa í báðum
liðum. Alexander Freyr Sigvaldason spilaði með pressuliðinu og Jón Garðar Arnarsson var markvörður landsliðsins.
Alexander Freyr Sigvaldason og
Jón Garðar Arnarsson í pressu-
liði og landsliði.
Tómas Ingi Oddsson fyrir-
liði Njarðvíkinga með
bikarinn.
Njarðvíkingar sóttu bikar til Eyja
●● Flottir●peyjar●í●6.●flokki●í●fótboltanum
Sundlið ÍRB varð Aldursflokkameistari liða á
AMÍ 2016 sjötta árið í röð um liðna helgi. ÍRB
vann nokkuð öruggan sigur, náði að landa 576
stigum, en í öðru sæti varð Sundfélag Hafnar-
fjarðar með 418 stig.
Aldursflokkaverðlaun einstaklinga eru veitt
þeim keppendum sem ná bestum samanlögðum
árangri í sínum stigahæstu greinum í samræmi
við stigatöflu FINA í flokki pilta og stúlkna og í
flokkum drengja og telpna. Sunneva Dögg Frið-
riksdóttir úr ÍRB, varð Aldursflokkameistari
og stigahæsta stúlkan á mótinu í flokki stúlkna
með samtals 1379 stig fyrir 400 og 100 metra
skriðsund. Már Gunnarsson hjá ÍRB hlaut svo
sérstakan styrk fyrir afrek sín á mótinu.
Sjötta árið í röð eru ÍRB Aldursflokkameistarar
Helgi Þór Jónsson hefur verið sjóð-
heitur með Víðismönnum það sem af
er sumri í 3. deildinni í fótbolta. Hann
hefur skoraði nánast í hverjum leik og
eru mörkin þegar orðin átta talsins í
jafn mörgum leikjum. Viðismenn eru
gjörsamlega eldheitir þessa stundina
og hafa unnið alla fimm deildarleiki
sina til þessa.
Helgi er Víðismaður að upplagi en
hefur þó leikið með 2. og 3. flokki hjá
Keflavík síðustu ár. Hann leitaði aftur
í heimahagana og varð leikmaður árs-
ins hjá Víðisliðinu á síðasta tímabili.
Það sem er merkilegt við það er að
Helgi lék þá sem bakvörður hjá liðinu.
Nú er hann orðinn framherji og kann
heldur betur við sig á þeim slóðum.
„Ég veit ekki hver er mín staða, ég hef
verið út um allan völl,“ segir þessi 21
árs gamli leikmaður. Helgi segist vera
búinn að finna sína stöðu frammi og
þar kemur hann til með að leika fram-
vegis að eigin sögn.
Fer í háskólaboltann í haust
Víðismaðurinn hyggst leggja land
undir fót og hefja hákskólanám
í Bandaríkjunm næsta haust. Helgi
mun þar leika fótbolta og nema við
Campbell University í Norður Kar-
olínu fylki, en skólinn er í efstu deild
háskólaboltans. „Þetta er mjög spenn-
andi og markmiðið er að setja nokkur
mörk í háskólaboltanum í vetur,“ segir
markaskorarinn ungi sem þó nær lík-
lega ekki að klára tímabilið með Víði-
smönnum. „Við stefnum klárlega að
því að komast upp um deild. Það er
gaman af því hvað það er mikið af
heimamönnum í liðinu,“ bætir hann
við.
Víðismenn hafa farið gríðarlega vel
af stað eins og áður segir og það er
stemning í hópnum. „Þetta er hörku
hópur. Það er samkeppni um allar
stöður og menn eru því á tánum,“
segir Helgi.
Úr bakverði í markamaskínu
Helgi fagnar hér marki sínu gegn erkifjendunum í Reyni fyrr í sumar.
Mynd: Guðmundur Sigurðsson.