Víkurfréttir - 30.06.2016, Síða 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
ÁÁÁfram Íslaaaand!
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Sex kettlingar fundust síðasta laugar-
dag innan um garðaúrgang við Fitja-
bakka í Reykjanesbæ. Þeir dvelja nú
hjá félagi sem annast villiketti þar
til ný heimili fyrir þá finnast. Kett-
lingarnir komu úr tveimur gotum.
Þorbjörg Björgvinsdóttir er virkur
sjálfboðaliði hjá Villiköttum í Reykja-
nesbæ og nágrenni og var haft sam-
band þangað þegar kettlingarnir
fundust. Hún segir ljóst að eigendur
kettlinganna hafi losað sig við þá með
þessum hætti. „Kettlingarnir höfðu
verið auglýstir gefins á netinu fyrir
mánuði síðan svo það var ekki flókið
að finna eigendurna,“ segir hún en
félagið hefur tilkynnt um málið til
Matvælastofnunar. Þorbjörg segir
með ólíkindum að fólk komi fram við
gæludýr sín með þessum hætti. „Það
er í rauninni verið að henda köttum
eins og hverju öðru rusli. Það er brýn
þörf á vitundarvakningu um tilfinn-
ingar dýra. Þegar gæludýr eru skilin
eftir á víðavangi er mikil hætta á að
þau verði veik,“ segir hún.
Sektir geta orðið háar
Samkvæmt upplýsingum frá Mat-
vælastofnun er ekki heimilt að losa
sig við gæludýr út í náttúruna. Verði
umráðamaður gæludýra uppvís af
því og málið telst upplýst getur Mat-
vælastofnun til dæmis beitt stjórn-
valdssektum vegna brotsins. Slíkar
sektir geta orðið háar en það fer eftir
aðstæðum hverju sinni. Að sögn
Konráðs Konráðssonar, héraðsdýra-
læknis Suðvesturumdæmis, er afar
sjaldgæft að Matvælastofnun berist
ábendingar um að fólk losi sig við
dýr á þennan hátt. Þegar stofnuninni
berast ábendingar er réttmæti þeirra
kannað og brugðist við þegar í ljós
kemur að illa er farið með dýr eða
þeim ekki sinnt eins og kveðið er á
um samkvæmt lögum um velferð dýra
og reglugerðum sem settar eru sam-
kvæmt lögunum. Ábending um kett-
lingana sem fundust í Reykjanesbæ
um síðustu helgi verður rannsökuð af
stofnuninni.
Segir ógrynni villikatta
á Suðurnesjum
Félagið Villikettir í Reykjanesbæ og
nágrenni á í góðu samstarfi við sams
konar félög í Reykjavík og Hafnarfirði
og við Kisukot. Þorbjörg segir ógrynni
af villiköttum á Suðurnesjum en að fé-
lagsmenn hafi verið virkir og fækkað
þeim. Á síðasta ári tóku félögin inn
um 150 kettlinga. „Ég er satt best að
segja búin að missa töluna á því hve
margir þeir hafa verið á Suðurnesjum
á þessu ári,“ segir hún. Félagsmenn
gefa villiköttum á sjö stöðum á Suður-
nesjum að borða daglega og hafa einn-
ig unnið að því að gelda högna meðal
þeirra til að hægja á fjölgun í hóp-
unum. Reynt að finna heimili fyrir
yngstu kettina.
Kettlingar skildir
eftir í garðaúrgangi
●● Þörf●á●vitundarvakningu,●segir●kattavinur
●● Ábending●til●rannsóknar●hjá●MAST
Kettlingarnir dvelja nú í góðu yfirlæti og bíða eftir að flytja á ný framtíðarheimili.
■ Þingmaðurinn hárprúði, Óttarr Proppé, gerði sér
ferð til Suðurnesja á dögunum til að fara í klipp-
ingu á hárgreiðslustofunni Háráttu við Hafnargötu
í Reykjanesbæ. Stofan var opnuð á dögunum og er í
eigu Evu Bjarkar Sigfúsdóttur. Hún starfaði áður á
stofu í miðbæ Reykjavíkur þar sem þingmaðurinn var
fastagestur.
Þingmaður
í klippingu til Keflavíkur
TÍMABÓKANIR
Í RANNSÓKN Á HSS
Fyrirkomulag rannsókna á HSS mun breytast frá og með
1. júlí næstkomandi þegar farið verður að bjóða upp á tíma-
bókanir fyrir blóðsýnatökur á rannsóknastofu.
Sýnatökur eftir bókunum hefjast svo 11. júlí.
Bókað verður í tíma frá kl. 08:00 til 11:00. Þeir sem eiga að
vera fastandi fyrir prufur bókast milli kl. 08:00 og 09:00 og
fólk í blóðþynningarmælingu milli kl. 10:00 og 11:00.
Móttaka annarra sýna verður eins og verið hefur. Móttöku-
ritarar taka niður tímapantanir í síma 422-0500 á milli kl. 8:00
og 16:00 virka daga.
Mæðgurnar Þóranna Þórarins-
dóttir og Brynja Kristmannsdóttir
reka saman Brælubakaríið í húsnæði
gömlu hafnarvigtarinnar í Vogum.
Þar baka þær flatkökur sem notið
hafa mikilla vinsælda. Þóranna er
búin að standa í bakstri í um þrjátíu
ár og byrjaði heima og þá með ann-
arri vinnu. Nýlega lét hún af störfum
hjá Þorbirninum eftir 37 ára starf og
ætlar núna að einbeita sér alfarið að
bakstrinum. Brynja dóttir hennar er
líka nýhætt í sinni vinnu vegna anna
við baksturinn.
Að sögn Þórönnu er eftirspurnin
eftir flatkökunum mikil og alltaf að
aukast. Þær hafa aldrei auglýst enda
spyrst það út hversu góðar flatkök-
urnar eru. Flatkökurnar eru seldar
í verslun í flugstöðinni og í Góðum
kosti í Njarðvík. Á næstunni má svo
búast við flatkökunum í fleiri versl-
unum. Þá eru flatkökurnar einnig
vinsælar hjá íþróttafélögum til að
selja til fjáröflunar.
Þóranna er úr Keflavík en hefur búið
í Vogum í 45 ár og segist því vera
orðin meiri Vogamaður en Kefl-
víkingur. Gamla hafnarvigtin er að-
eins 20 fermetrar og sú stærð dugar
þeim mæðgum enn sem komið er.
Hver dagur byrjar á því að hnoða
deigið í flatkökurnar. Þær hnoða allt
deigið í höndum og notast aldrei við
hrærivélar. „Þær eru líka betri kök-
urnar sem hnoðaðar eru í höndum
en í vél,“ segir Þóranna að lokum,
önnum kafinn við baksturinn.
Baka flatkökur í
gömlu hafnarvigtinni
●● Vinsælar●flatkökur●hjá●mæðgum●í●Vogum
Mæðgurnar hafa aldrei auglýst flatkökurnar enda ekki verið þörf á því.
Á myndinni má sjá Þórönnu Þórarinsdóttur við baksturinn.