Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.07.2016, Side 15

Víkurfréttir - 07.07.2016, Side 15
15fimmtudagur 7. júlí 2016 VÍKURFRÉTTIR ÍÞRÓTTIR Páll Ketilsson // pket@vf.is Í Eldborg í Svartsengi – í dag kl 17:30 Íslenska djúpborunarverkefnið í samstarfi við DEEPEGS boðar til opins kynningarfundar um djúpborun á Reykjanesi sem áætlað er að hefjist í byrjun ágúst. Verkefnið felst í því að dýpka 2,5 km djúpa vinnsluholu á Reykja- nesi niður í 5 km dýpi. Tilgangur verkefnisins er að kanna rætur háhitakerfisins á Reykjanesi sem líkja má við háhitakerfi á hafs- botni og afla þekkingar á því og kanna möguleika til orkuvinnslu Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta í Eldborg í dag. Djúpborun á Reykjanesi - Opinn kynningarfundur - www.hsorka.is Upplifun sem aldrei gleymist Meira svekktir en sáttir? Ekkert mjög svekktir, held- ur meira stoltir. Íslenskur stuðningur var svakalegur á öllum sviðum og vakti mikla athygli. Maður fann hversu mikill stuðningur þetta var, í öllum miðlum og á leikj- unum. Þetta hafði gríðarlega mikið að segja, heyra magnaðan stuðninginn í stúkunni. Jökullinn logar, vá maður. Fjölskylda þín kom og fylgdist með en missti af aðal leiknum þegar þú skoraðir sigurmarkið? Já, þau komu öll í fyrstu tvo leikina en fóru svo heim til að fara með Vikt- or bróður minn á knattspyrnumót í Eyjum. Mamma og pabbi komu svo aftur út og sáu Englands- og Frakklandsleikinn. Þau eru búin að vera fram og til baka en þau höfðu mjög gaman af þessu. Það er nú svolítið mál að vera knattspyrnuforeldri á Íslandi? „Já, þau eru búin að fylgja mér frá því ég var fjögurra ára, spriklandi á æf- ingum og á fótboltamótum í mörg ár. Svo var þetta með Keflavík eða Njarðvík. Þú hefur búið í Njarðvík og lékst þar í yngri flokkunum þar til þú varst 15 ára þegar þú fórst yfir í Keflavík. Náðir að leika með eldri flokkunum þar og síðan með meist- araflokki í Keflavík í efstu deild þegar atvinnumanna-kallið kom. Hvort ertu Njarðvíkingur eða Keflvíkingur? (Hlær) Mér fannst ég ná að svara þessu vel um daginn þegar Ey- þór blaðamaður VF spurði mig út í þetta. Ég er sameiningartákn Reykjanesbæjar. Punktur. Nú ertu á leiðinni til Austurrík- is eftir að hafa gert samning við hið þekkta lið Rapid Vín. Ég er að fara þangað á næstu dögum og fyrsti leikurinn er svo 23. júlí. Þá byrjar alvaran en ég fæ smá frí næstu daga. Hefðurðu fengið einhverja bakþanka að hafa gert þennan samning áður en það kom í ljós að þú varst valinn í lands- liðshópinn? Margir ykkar hafa fengið meiri athygli fyrir góða frammistöðu. Ég er mjög ánægður með þetta skref sem ég er að taka á ferlinum. Þetta er stór klúbbur og með mikla sögu. Ég mun fá að spila og bæta mig sem leikmann. Ef ég stend mig vel þar þá gætu komið fleiri tækifæri. Það var mjög gaman og gott hjá Nörrköping í Svíþjóð. Ég er þakklátur fyrir þau tvö og hálft ár þar og Janne Anderson, þjálfari hjálpaði mér mjög mikið. Draumur flestra ungra knattspyrnu- manna er að verða atvinnumaður. Þú átt- ir hann og nú hefur hann verið að rætast hjá þér með frekara framhaldi í Austur- ríki. Svo koma líka fleiri krónur í veskið. Jú, þetta er draumurinn. Auðvit- að get ég ekki fjallað um kaup og kjör en það er gaman að geta gert það sem manni finnst skemmti- legt og fá borgað fyrir það. Hvernig er venjulegur dagur hjá at- vinnumanni í knattspyrnu? Ekki ertu á æfingum allan daginn? Eru atvinnumenn að hugsa eitthvað um nám og frekari menntun á þeim tíma? Ferillinn getur jú klárast á stuttum tíma ef menn meiðast. Ég var aðeins í fjarnámi en hef verið í pásu frá því. Hef svo not- ið þess líka að vera til. Í Svíþjóð fór ég oft með félögunum eitt- hvert út, á kaffihús og slíkt. Hvað viltu segja við unga knattspyrnu- menn sem dreyma eins og þú gerðir? Það er númer eitt að æfa mjög vel og hugsa vel um sig, til dæm- is hvað varðar mataræði. Svo er mjög mikilvægt að setja sér ný og fleiri markmið. Það skiptir mjög miklu máli. Ég hef gert það. Geta Íslendingar þakkað knattspyrnu- höllunum eitthvað af þessum árangri? Ég er eiginlega alinn upp í Reykjanes- höllinni og það er engin spurning að knattspyrnuhallir hafa haft mikið að segja þannig að Íslendingar geti æft yfir veturinn við góðar aðstæður. Hvað þurfa Íslendingar að gera til að fylgja þessum árangri eft- ir? Er eitthvað sérstakt sem þú myndir nefna í þeim efnum? Það eru margir frábærir þjálfarar á Íslandi og þeir hafa menntað sig meira á undanförnum árum. Það er líka mikilvægt að halda vel utan um unga knattspyrnumenn. Ég hef sjálfur upplifað það að vera í góðum hóp þar sem margir hættu vegna þess að var ekki haldið nógu vel utan um hópinn. Starfið í yngri flokkunum er mjög mikilvægt. En svona í lokin Arnór. Ég get ekki sleppt þér með piparsveinaspurn- inguna. Þú varst eini piparsveinninn í landsliðshópnum og komst svo á lista hér heima yfir þá eftirsóttustu. Hvað geturðu sagt okkur um þetta? Gylfi Sigurðsson félagi minn í lands- liðinu kom að mér í Frakklandi og sýndi mér frétt Smartlands á mbl.is og spurði mig hvernig það væri að vera heitasti piparsveinn landsins. Ég hló auðvitað en mér var mikið strítt út af þessu og maður varð bara að taka því. Ég get þó ekki sagt að ég sé eitthvað stoltur af því að vera á þessum lista,“ sagði Arnór og brosti í kampinn. Viðtal: Páll Ketilsson / pket@vf.is ACE Handling auglýsir eftirfarandi störf á Keflavíkurflugvelli til umsóknar ■ Innritun og farþegaþjónusta Innritun og þjónusta við farþega. Tölvukunnáa og góð tungumálakunnáa skilyrði. ■ Hlaðdeild Vinnuvélaréindi æskilegi, 18 ára aldurstakmark. ■ Flugvélaþrif Þrif á flugvélum og húsnæði - ökuréindi og tungumálakunnáa æskileg, 18 ára aldurstakmark. Hrein sakaskrá skilyrði. Bæði er um að ræða hlutastörf og full störf og unnið er samkvæmt vaktakerfi. Umsækjendur þurfa að geta só námskeið áður en hafið er störf. Ferilskrá sendist á alma@bikf.is atvinna Viðtalið í heild við Ar nór Ingva má sjá í Sjón- varpi Víkurfrétta og á ÍNN á fimmtudag s- kvöld kl. 21:30 Í SJÓNVARPI!Ljósmyndir frá leik Ísland og Austurríkis tók Skapti Hallgrímsson

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.