Víkurfréttir - 06.10.2016, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagurinn 6. október 2016 • 39. tölublað • 37. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Klór blandaðist neysluvatni í Reykja-
nesbæ þegar unnið var við að þrífa
vatnstank ofan við Eyjabyggð í
Reykjanesbæ á mánudag. Fjölmargir
íbúar í Reykjanesbæ tjáðu sig um
sterka klórlykt af kalda vatninu á
samfélagsmiðlum þá um kvöldiuið
og lýstu ástandinu þannig að vatnið
væri ekki drykkjarhæft og húsnæðið
angaði af klórlykt eftir að vatn hafði
verið látið renna.
Á vef HS Veitna er greint frá því að á
mánudag hafi starfsmenn fyrirtækis-
ins þrifið „Staupið“ sem er varatankur,
staðsettur fyrir ofan Eyjabyggð. Við
þrifin var notuð klórblanda, 15 pró-
sent klór blandaður við vatn. Þrifin
voru hluti af undirbúningi fyrr noktun
á tankinum en hann verður notaður
þegar vatnsstopp verður í næstu viku
vegna breytinga á stofnæð fyrir gerð
undirganga við Hafnaveg.
Á mánudagsmorgun kom elding sem
varð þess valdandi að skynjari í aðal-
vatnstank við Grænás fraus og stjórn-
stöð HS Orku í Svartsengi fékk ekki
réttar upplýsingar um stöðu sem gerði
það að verkum að þrýstingur féll án
þess að stjórnstöð yrði þess vör. Starfs-
menn HS Veitna hleyptu vatni inn á
varatankinn til þrifa í góðri trú um að
aðaltankur við Grænás væri fullur eins
og skynjari sagði til um. Síðar kom í
ljós að skynjari sýndi ekki rétta stöðu
og tankurinn var því næst tómur. Við
þetta myndaðist sog sem varð til þess
að klórblanda úr varatanki komst inn
á kerfið. Sýni voru tekin og verða send
til frekari rannsókna en frumathugun
starfsmanna HS Veitna leiddi í ljós að
styrkur var vel innan hættumarka.
Klór blandaðist neyslu-
vatni í Reykjanesbæ
●● Elding●truflaði●skynjara●og●klórblanda●úr●
vatnstanki●fór●inn●á●kerfið
■ Hömlur ehf. auglýstu í vikunni til sölu allt útgefið hlutafé í Miðlandi ehf.
Það er fjárfestinga- og fasteignafélag sem stofnað var árið 1979 og hefur fjár-
fest í landi á Neðra-Nikkel svæðinu í Reykjanesbæ.
Eign félagsins er tvíþætt, annars vegar eignarland sem samtals er um 34 hektarar
og er skipulagt undir byggingu á allt að 485 íbúðum ásamt atvinnuhúsnæði
(1,4 hektarar) og hins vegar samningur við Reykjanesbæ um að Miðland annist
gatnagerð á svæðinu og hljóti tekjur af, segir í auglýsingu frá Hömlum sem er
dótturfélag Landsbankans.
Deiliskipulag fyrir hluta byggingarlandsins er þegar samþykkt og gerir ráð fyrir
byggingu á samtals 300 íbúðum. Gatna- og holræsagerð hefur verið unnin að
hluta til á svæðinu og hægt er að hefja framkvæmdir á hluta lóðanna nú þegar.
Samkvæmt gildandi Aðalskipulagi Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir byggingu allt
að 185 íbúða til viðbótar.
Söluferlið er öllum opið sem uppfylla hæfismat og geta sýnt fram á fjárfestingar-
getu að fjárhæð 300 milljónir króna.
●● Opið●söluferli●á●Miðlandi●ehf.●í●Reykjanesbæ
Hér er gert ráð fyrir allt að 485 íbúðum ásamt atvinnuhúsnæði.
Vatnstankurinn ofan við Eyjabyggð í
Keflavík er kallaður Staupið. Þaðan
fór klórblanda inn á neysluvatnskerfið
í Reykjanesbæ. VF-mynd: hilmarbragi
Missti framan
af fingri í roðfléttivél
■ Starfsmaður hjá fiskvinnslunni
KEF Seafood missti framan af vísi-
fingri í roðfléttivél á dögunum.
Starfsmaðurinn hafði verið að þrífa
vélina þegar óhappið varð og fram-
hluti fingursins skarst af. Starfs-
maðurinn var fluttur með sjúkrabif-
reið á Landspítalann í Fossvogi og
tilkynnti lögregla málið til Vinnu-
eftirlitsins.
Á sunnudag var lögreglu tilkynnt um
ökumann sem slasaðist á fjórhjóli í
efnisnámum við Festarfjall, austan við
Grindavík. Ökumaðurinn var með
áverka á öxl og handlegg og var fluttur
til læknis.
Þriggja bíla árekstur
í Reykjanesbæ
■ Talsvert var um umferðaróhöpp
í umdæmi lögreglunnar á Suður-
nesjum fyrir og síðustu helgi. Í
Reykjanesbæ lentu þrír bílar saman
og voru skemmdir það miklar að
fjarlægja þurfti þá með dráttar-
bifreið af vettvangi. Einn þeirra
var kyrrstæður en ökumenn hinna
tveggja voru fluttir til skoðunar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Á Stapagötu lentu tveir bílar saman
þegar þeir voru að mætast í sveigju
sem er á veginum. Ökumenn beggja
voru fluttir með sjúkrabifreið á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja. Bílarnir
voru óökufærir eftir áreksturinn. Þar
að auki rákust tveir bílar saman á
hringtorgi á Njarðarbraut.
■ Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Allt hreint við Holts-
götu í Njarðvík, náði ótrúlegum
myndum í eldingaveðrinu sem gekk
yfir Reykjanesskagann á mánudags-
morgun. Hann tók upp símann og
hugðist taka videomyndir af eld-
ingaveðrinu. Hann var nýbyrjaður
að taka upp þegar TF-GAY, flugvél
frá WOW, tók á loft frá Keflavíkur-
flugvelli.
Halldór beindi myndavélinni að flug-
vélinni og örfáum sekúndum síðar
varð flugvélin fyrir eldingu. Mynd-
efnið vakti strax mikla athygli og
hefur farið víða um heim. Á Youtube-
rás Sjónvarps Víkurfrétta hefur mynd-
skeiðið fengið um 100.000 áhorf og á
fésbók Víkurfrétta var áhorfið komið í
55.000 spilanir síðdegis í gær.
„Ég ætlaði nú bara að reyna að ná
myndbandi af eldingunum. Svo sé
ég flugvélina og beini upptökunni að
henni og þá slær eldingum niður í
flugvélina. Það er ótrúlegt að hafa náð
þessu á myndband,“ segir Halldór í
samtali við Víkurfréttir.
Erlendir miðlar á borð við BBC, TV2
og Discovery hafa sett sig í samband
við Halldór og beðið um að fá að sýna
myndbandið. Einnig deildi flug-In-
stagramsíðan „Megaplane“ mynd-
bandinu þar sem það hefur nú fengið
yfir 40.000 áhorf.
„Mánudagurinn fór nú eiginlega bara
allur í að svara spurningum fjölmiðla,“
segir Halldór Guðmundsson. Myndin
hér að ofan er úr myndskeiðinu sem
hann tók. Án efa ein af fréttamyndum
ársins.
WOW!
ELDING Í FLUGVÉL
YFIR NJARÐVÍK
Komist verði að
sameiginlegri
niðurstöðu um DS
■ Bæjaryfirvöld í Vogum vilja
að fundin verði varanleg lausn á
málum Dvalarheimila aldraðra á
Suðurnesjum og að haldinn verði
eigendafundur hið fyrsta þar sem
valkostir verði ræddir og komist að
sameiginlegri niðurstöðu um fram-
tíð DS.
Bæjarráð Voga tók málið til umfjöll-
unar á dögunum en þar var kynnt
greining KPMG á málum DS. Af-
greiðsla bæjarráðs, sem greint er frá
hér að framan, var samþykkt í bæjar-
stjórn með öllum atkvæðum.
Byggingaréttur á allt að 485
íbúðum í Reykjanesbæ til sölu