Víkurfréttir - 06.10.2016, Page 10
10 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR
Hvernig voru síðustu daga hersins
og aðdragandi brotthvarfs Varnar
liðsins?
Aðdragandinn var náttúrulega langur
og hófst í raun strax við lok kalda
stríðsins í kringum 1990. Þá fóru strax
að heyrast raddir um samdrátt sem
fljótlega var hrint í framkvæmd af
skiljanlegum ástæðum en svo gekk
þetta í bylgjum næstu fimmtán árin,
allt eftir því hve mikla athygli þetta
fékk í bandaríska stjórnkerfinu. Eftir
á að hyggja var þetta óumflýjanlegt
og ég er viss um að ef þetta hefði ekki
gerst árið 2006 þá hefði þetta gerst á
árunum eftir, sama hvað hefði verið
samið um. Einfaldlega vegna þeirra
stríða og athafna sem Bandaríkja-
stjórn stóð í víða um heim. Orsök þess
var einfaldlega að það var ekki lengur
hægt að verja þetta úthald á Íslandi að
því er virtist engum til gagns, á meðan
Bandaríkjamenn stóðu blóðugir upp
yfir axlir í styrjöldum útí heimi og
þurftu á peningum, mannafla og bún-
aði að halda.
Við Íslendingar héngum á þessu
varnarliði eins og hundur á roði og
gáfum lítið eftir í samningaviðræðum
hvað það varðar, - á pólitíska sviðinu,
er það ekki?
Íslendingar skiptust í mörg horn
alla tíð hvað veru varnarliðsins hér
varðaði. En íslensk stjórnvöld tóku
snemma þá ákvörðun að vera ekki að
reyna að kljást við NATO eða Banda-
ríkjamenn á grundvelli einhverrar
herfræði því sérþekking þeirra var
ekki þar. Þeir voru hins vegar vel að
sér í pólitík. Og nálgunin frá Íslandi
var alltaf á pólitískum nótum. Sam-
skiptin fóru fram meðal ríkisstjórn-
anna. Þegar kom að því að herinn vildi
breytingar þá tóku menn í þá taktík
sem þeir þekktu og notuðu hana eins
og þeir höfðu gert áður fyrr.
Nú hef ég heimildir fyrir því að það
séu margir sem telja að ef Íslendingar
hefðu reynt að fara frekari samnings-
leiðir um að halda varnarliðinu hér
í einhverri mynd þá hefðu það ekki
farið í öllu sínu veldi, heldur skilið
eftir eitthvað af sinni starfsemi. Hvað
segir þú við því?
Þetta er mjög skiljanleg afstaða og dá-
lítið sem ég hef verið að rannsaka. Ég
var nú vitni að ýmsu í þessu sambandi
á árunum sérstaklega eftir 2001 þar
til loka og ég er nú þátttakandi í sjón-
varsþáttagerð um sögu varnarliðsins
þar sem við komum til með að taka
á þessu, meðal annars með viðtölum
við menn sem komu þarna nærri og
vonumst til að leiða það í ljós á hvorn
veginn þetta var. Þó það hefði tekist að
semja um einhvern samdrátt þá hefði
hann í fyrsta lagi verið verulegur og
alltaf falið í sér að orrustuþoturnar
hefðu farið. Á endanum hefði liðið
alltaf verið kallað allt til baka.
Nú þegar þú lítur til baka tíu árum
síðar, þekkjandi söguna svona vel og
hafandi verið í hringiðunni, hvernig
er þín sýn á þetta núna?
Ég hef nú eiginlega horft svolítið til
þeirrar umræðu sem hefur verið uppá
síðkastið að það virðist vera einhver
óskhyggja hjá sumum að bandaríkja-
her komi aftur til Keflavíkurflug-
vallar. Þessa spurningu hef ég fengið
reglulega því ég hef unnið að þessum
málum áfram hjá Isavia en því er nú
til að svara að svo er áreiðanlega ekki.
Bandaríkjamenn voru hér fyrst og
fremst á eigin vegum eins og hvert
annað ríki sem er ekki í neinni góð-
gerðarstarfsemi. Og það vildi bara svo
til að hagsmunir Íslendinga fóru vel
saman með hagsmunum Bandaríkj-
anna og annarra landa á árum kalda
stríðsins. Komi þeir aftur hér með ein-
hverjum hætti þá verður það bara í
hagræðingarskyni eins og hefur alltaf
verið gert, miðað við þau verkefni sem
upp kunna að koma eða fyrir liggja á
hverjum tíma.
Nú ferð þú, eftir störf hjá Varnar
liðinu, til starfa hjá Flugmálastjórn
Keflavíkurflugvallar, síðar Isavia.
Hvernig gekk svo Íslendingum að
taka við stórum verkefnum frá Varn-
arliðinu, eins og t.d. slökkviliði og
fleiru tengdum fluginu?
Aðdragandinn var mjög skammur því
að menn trúðu því ekki, eða allavega
voru engin merki um það að þessi
gríðarlega breyting yrði með eins
skjótum hætti og raunin varð. Og mér
finnst með ólíkindum hve klárir menn
voru að vinna úr þeirri þröngu stöðu
sem upp kom strax og ákveðið var að
Varnarliðið færi þarna í mars 2006.
Markmiðið var að halda Keflavíkur-
flugvelli áfram í starfsemi. Allur
reksturinn á flugvallarþjónustunni og
flugvellinum sjálfum var í höndum
Varnarliðsins. Þetta þurfti að færa yfir
og ekki síst fjármagn. Íslenska ríkið
þurfti skyndilega að punga út 1,7
milljarði strax árið eftir til að halda
úti rekstrinum. Tækjabúnaðurinn var
allur eign Bandaríkjaflota og það varð
að semja um að halda honum þann-
ig þeir færu ekki bara með allt sitt
einn daginn og það var ekkert hlaupið
að því að útvega ný og dýr tæki og
tók líka langan tíma. Þetta tókst með
ágætum, að semja um áframhaldandi
afnot af tækjum hersins. Svona var
með marga fleiri þætti, og mér finnst
með ólíkindum hvað tókst að gera
með samstilltu átaki allra sem komu
að þessu, stjórnvalda, starfsmanna og
stjórnenda flugvallarins.
Finnst þér þá ekki ánægjulegt að sjá
hve blómleg starfsemin er orðin hér
víða á Vellinum, nú Ásbrú?
Jú, hér hefur gríðarlega miklu verið
áorkað og margir sem hafa komið
með góðar hugmyndir og hefur tekist
ágætlega til. En þegar ég fer aftur til
gamla tímans, á 8. og 9. áratugnum
með tilheyrandi umsvifum hjá Varn-
arliðinu þá erum við náttúrulega að
tala um hernaðarumsvif sem í engu
tilliti eru í raun æskileg. Þó það hafi
verið gaman að taka þátt í þessu þá
var þetta í hæsta máta óeðlilegt ástand
sem hér ríkti. Hér var erlendur her í
stórum stíl í landinu. En núna er þetta
allt með miklu eðlilegri og skynsam-
legri ásýnd.
Ertu með skoðun á því hvernig ríkið
kom að þessu og hvað Suðurnesin,
sem næsti nágranni veitti með þjón-
ustu og starfsfólki, hefði átt að fá fyrir
hálfrar aldrar þjónustu og tryggð?
Ég hef í sjálfu sér ekki myndað mér
skoðun á því en það er auðvitað þekkt
klisja að það var alltaf sagt að Suður-
nesin hafi haft varnarliðið og flugvöll-
inn þegar átti að deila út landsgæðum
eða efnahagsgæðum á vegum ríkisins.
Sem betur fer hefur orðið gríðarleg
umbylting í umsvifum í tengslum við
flugið á Keflavíkurflugvelli ekki síst nú
á allra síðustu árum. Þá náttúrulega
skiptir það algjörlega sköpum. Það er
ekki langt síðan hér var nánast margt
í kalda koli, atvinnuleysi og margt
annað hér á Suðurnesjum sem virðist
nú vera komið í betra horf.
Hvernig upplifðir þú andrúmslofið
daginn sem tilkynnt var um brott-
hvarf hersins og dagana þar á eftir?
Ég hafði náttúrulega fylgst með þessu
öll þessi ár og sá vel í hvað stefndi
þótt ég hafi ekki búist við því að
þessi ákvörðun kæmi með þessum
hætti á þessum tíma. En þá verð ég
að bæta því við að strax um áramót
var okkur ljóst í aðalstöðvum Varnar-
liðsins hvað til stæði þótt að tíma-
setningin lægi ekki alveg fyrir. Það
sást í fjárveitingum til Varnarliðsins
fyrir árið 2007, sem voru engar. Það
gat í raun ekki þýtt nema eitt, hvað
sem mönnum aftur á móti tækist að
teygja lopann og semja um, var auð-
vitað ekki vitað á þeim tíma. En í mars
2006 kemur þessi ákvörðun. Banda-
ríkjamenn voru margir jafn hissa á
þessu og Íslendingarnir og ekki laust
við að þeir væru margir hálf skömm-
ustulegir yfir þessu, sérstaklega að
viðskilnaðurinn yrði að vera svona
óvæntur og framkvæmdur með svona
skjótum hætti. Það að það liðu ekki
nema 6 mánuðir frá því að skipunin
er gefin og þangað til hún hefur verið
framkvæmd til fulls, er umtalsvert
afrek. Bæði hjá Bandaríkjamönnum
sjálfum og svo íslensku starfsmönn-
unum. Þetta var svolítið sérstök upp-
lifun en svo tók bara við þetta verk-
efni, að loka herstöðinni, koma mann-
skapnum á brott, flytja á brott það sem
ákveðið var að taka með sér og það
tók bara hug allra alveg fram á síðasta
dag. Síðan má eiginlega segja að menn
hafi bara andað léttar daginn eftir og
sagt „ja, nú er þetta búið“. Nýr kafli
í lífinu er að taka við. Þetta er bara
eins og þegar menn skipta um vinnu-
vettvang eftir mjög langan tíma eins
og var í mínu tilviki og ekki síst hjá
mörgum öðrum sem höfðu verið hér
mikið lengur en ég.
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Varnarliðsins segir að brotthvarf Bandaríkja-
hers á Keflavíkurflugvelli hafi verið óumflýjanlegt í kjölfar þess að kalda stríðinu
lauk. Hann segir ástandið á gamla varnarsvæðinu, nú Ásbrú, miklu eðlilegra og með
skynsamlegri ásýnd en þegar bandarískur her var á Vellinum.
ÓUMFLÝJANLEG BROTTFÖR
●● segir●Friðþór●Eydal,●fyrrverandi●upplýsingafulltrúi●Varnarliðsins.
Friðþór Eydal gegndi starfi upplýsinga-
fulltrúa Varnarliðsins í langan tíma.