Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 16
16 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR
Fólk öskraði og aðrir grétu í geðshrær-
ingu yfir norðurljósasýningu á Garð-
skaga í síðustu viku. Mikil virkni var
í norðurljósum fyrri part síðustu viku
og kalt og heiðskírt veður, sem eru
kjöraðstæður til að njóta norðurljósa.
Fjölmargir söfnuðust saman á Garð-
skaga þar sem öll ljós, önnur en í
vitanum, höfðu verið slökkt. Þannig
voru skapaðar kjöraðstæður. Í gamla
vitanum á Garðskaga var kaffihúsið
opið langt fram á kvöld, þar sem hægt
var að fá rjúkandi kaffi og nýbakaðar
kleinur með ljósasýningunni.
Garðskagi er einn besti staðurinn á
landinu til að fylgjast með norður-
ljósum og þegar horfur eru á því að
ljósin séu kröftug eru öll ljós slökkt
utandyra á Garðskaga. Á næstunni
verður staðarhöldurum á Garðskaga
einnig gert kleift að slökkva á götu-
lýsingu á skaganum, sem eykur enn á
upplifun í norðurljósaskoðuninni.
Talsvert var af erlendu ferðafólki á
Garðskaga í síðustu viku þegar ljósa-
dýrðin var upp á sitt besta, auk þess
sem Íslendingar fjölmenntu einnig.
Margir ferðamenn gista enn í ferða-
bílum á tjaldstæðinu á Garðskaga þrátt
fyrir að október sé genginn í garð.
Myndirnar með fréttinni voru teknar
á miðvikudagskvöld í síðustu viku.
Þá var spáð miklum og flottum ljósa-
gangi. Það er hins vegar með náttúru-
öflin að þau hlusta ekki alltaf á spár,
þennig að kvöldið endaði með ljósa-
gangi sem fengi tvær stjörnur af fimm
mögulegum. Vf-myndir: Hilmar Bragi
Nutu NORÐURLJÓSA
í geðshræringu
Af hverju stafa norður- og suðurljósin?
■ Yfirborð sólarinnar sendir í sífellu frá sér svokallaðan sólvind, en hann er straumur hlaðinna agna, aðallega
róteinda og rafeinda. Segulsvið jarðar hrindir flestum þessum ögnum frá svo að þær streyma umhverfis hana
eins og vatn um kjöl. Undantekning frá þessu er kringum segulpólana en það eru pólarnir sem segulnál vísar á,
annar á norðurhveli og hinn á suðurhveli jarðar, gagnstætt við hinn. Á svæðum kringum þessa póla sleppur lítill
hluti þessara agna inn í segulsvið jarðar. Svæðið þar sem flestar agnirnar sleppa inn myndar kraga utan um segul-
pólana.
Hlöðnu eindirnar sem fara inn í segulsvið jarðar hreyfast á miklum hraða eftir gormlaga brautum kringum segul-
sviðslínurnar milli segulskautanna. Rafeindir og róteindir streyma þannig í átt að segulpólunum og þegar nær dregur
pólunum rekast eindirnar á lofthjúpinn, oftast í á milli 100 og 250 km hæð. Orkan í rafeindunum og róteindunum
örvar sameindir og frumeindir í lofthjúpnum en þær senda aftur á móti frá sér orkuna sem sýnilegt ljós sem við köllum
norðurljós eða suðurljós eftir því við hvorn pólinn þau sjást. Litirnir sem við sjáum oftast eru grænn og rauð-fjólublár,
en þeir stafa frá örvuðu súrefni annars vegar og örvuðu köfnunarefni eða nitri hins vegar.
Eins og áður sagði eru áhrif sólvindsins mest á kraga kringum segulpólana og þar eru norður- og suðurljósin einnig
mest áberandi. Á Íslandi erum við svo heppin að vera í norðurljósakraganum að nóttu til við eðlileg skilyrði. Breytingar
í sólvindinum valda því hins vegar að kragarnir geta stækkað eða minnkað og sjást þá ljósin á mismunandi breiddar-
gráðum. Sem dæmi um þess konar breytingar má nefna að sólin sendir stöku sinnum frá sér gífurlegt magn af efni út í
geiminn, svokallaða sólstróka. Þegar þeir ná til jarðarinnar geta norður- og suðurljósakragarnir náð mjög langt í átt að
miðbaug og dæmi er um að orðið hafi vart við ljósaganginn á sjálfum miðbaugnum.
Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands
Kynningarfundur Slysavarnadeildarinnr Dagbjargar verður
10 október kl. 20:00 að Holtsgötu 51.
Kynning á deildinni og gestur kvöldsinns verður
Sigga Dögg kynlífsfræðingur.
Vonumst eftir hlátrasköllum út á götu þega hún segir okkur
allt um sexý slysavarnir.
Allir velkomnir
Kynningarfundur
Slysavarnadeildarinar
Spennandi starf verkefnastjóra ölskylduverndar
hjá félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Sv. Voga.
Laus er til umsóknar 100% staða verkefnisstjóra á sviði ölskylduverndar. Verkefnastjóri
hefur umsjón með þróun og framkvæmd þjónustu sem miðar að því að ea foreldrafærni
og forvarnir barna og ölskyldna sveitarfélögunum. Hann sinnir meðferðaríhlutun inni á
heimilum, utanumhaldi um stuðningsúrræði barnaverndar og uppeldislegri ráðgjöf.
Menntun- og hæfnikröfur:
• Háskólagráða í félagsráðgjöf, sálfræði, uppeldisfræði,
þroskaþjálfun eða önnur menntun sem nýtist í star.
• PMTO grunnmenntun og/eða meðferðarmenntun er æskileg.
• Þekking og reynsla í vinnslu og meðferð mála með einstaklinga og ölskyldur.
• Góð samskiptahæfni, þjálfun í viðtalstækni og áhugi á teymisvinnu.
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Umsókn ásamt kynningarbré og ferilskrá skal berast eigi síðar en 21. október 2016 á
bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar að Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði eða á netfangið
gudrun@sandgerdi.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttafélags og
Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að geta hað störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starð veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir,
félagsmálastjóri (gudrun@sandgerdi.is /420-7500).
Atvinna
VÖRÐUNNI MIÐNESTORGI 3 – 24 SANDGERÐI – SÍMI 420 7500
FÉLAGSÞJÓNUSTA
SANDGERÐISBÆJAR, SVEITARFÉLAGSINS GARÐS OG SVEITARFÉLAGSINS VOGA
ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALA SUÐURNESJA
ALLT FASTEIGNIR - FASTEIGNASALAN Í GRINDAVÍK
Hafnargata 91 - Reykjanesbær - sími 560-5515 sudurnes@alltfasteignir.is
Víkurbraut 46 - Grindavík - sími 426-8890 - grindavik@alltfasteignir.is
RB
Þórarinn Kópsson
Löggiltur fasteignasali
Sími: 615-3343
RB
Páll Þorbjörnsson
Aðstoðarmaður
Sími: 698-6655
RB
Arnar Hólm
Aðstoðarmaður
Sími: 892-4445
RB
Elínborg Jensdóttir
Aðstoðarmaður
Sími: 823-1334
RB
Þorbjörn Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Sími: 898-1233
GR
Dagbjartur Willardsson
Aðstoðarmaður
Sími: 861-7507
GR
GR
SELUR ALLTHEIÐARLEIKI - FAGMENNSKA - METNAÐUR