Víkurfréttir - 06.10.2016, Page 18
18 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR
Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ hlaut
á dögunum gæðamerki frá Rannís,
landskrifstofu eTwinning á Íslandi.
Tólf önnur verkefni á Íslandi fengu
einnig gæðamerki. Leikskólinn Holt
hlaut gæðamerkið fyrir verkefnið
Four headed dragon.
Verkefnið var hluti af stærra Eras-
mus+ verkefni sem tengist lýðræði og
læsi. Í eTwinning verkefninu bjuggu
leikskólabörnin til sögur um dreka
sem voru notaðar til þess að kanna
ýmis málefni sem tengdust náttúru,
samfélagi og tækni. Samstarfslöndin
voru fjögur. Hrefna Sigurðardóttir og
Anna Sofia Wahlström eru verkefnis-
stjórar.
eTwinning er aðgengilegt skólasam-
félag á netinu þar sem hægt er að kom-
ast í samband við evrópska kennara og
skólafólk, taka þátt í einföldum sam-
starfsverkefnum og sækja sér endur-
menntun á vinnustofum og nám-
skeiðum, svo nokkuð sé nefnt, allt með
hjálp upplýsingatækni. eTwinning er
hluti af Erasmus+ menntaáætlun ESB
og var hleypt af stokkunum árið 2005.
Í hverju landi er landskrifstofa sem
styður þátttakendur endurgjaldslaust.
Hér á landi gegnir Rannís því hlut-
verki. Yfir þúsund íslenskir kennarar
hafa tekið þátt í eTwinning á einn eða
annan hátt og telja samstarfsverkefnin
brátt sjö hundruð.
Holt hlýtur gæðamerki eTwinning
Verkefnisstjórar ásamt Ágústi Hirti Ingþórssyni, sviðsstjóra mennta- og menn-
ingarsviðs Rannís, og Guðmundi Inga Markússyni, sérfræðingi á mennta- og
menningarsviði Rannís. Nýlega hlotnaðist mér sá heiður að
taka þriðja sæti á lista Pírata í Suður-
kjördæmi. Í aðdraganda kosninga fær
frambjóðandi eins og ég ótal spurningar
á hverjum degi, sem er alveg frábært.
Ég reyni að svara öllum persónulega
en stundum læðist ein og ein spurn-
ing framhjá. Oftast er maður spurður
um almenn stefnumál en líka hvað við
ætlum að gera fyrir fólk sem lifir undir
framfærsluviðmiðum, fólk sem er í hús-
næðisvandræðum, fólk sem á ekki fyrir
lyfjakostnaði og margt fleira. Svörin við
þessum spuringum er að finna í grunn-
stefnu Pírata.
Við viljum virkja beint lýðræði, opnari
stjórnsýslu og þannig opna innviði Al-
þingis fyrir almenningi. Það eykur að-
hald í þeirri vinnu sem þar fer fram í
nefndum og ráðum. Píratar vilja líka
að það sé hægt að setja mikilvæg mál
í þjóðaratkvæðagreiðslu til að þjóðin
komi að ákvarðanatöku í fleiri málum.
Þess vegna viljum við nýja stjórnarskrá
þar sem tillögur stjórnlagaráðs verði
lagðar til grundvallar og að auðlindir
íslendinga verði í eigu okkar allra.
Við viljum að fólk geti lifað mannsæm-
andi lífi af launum sínum og þar horfum
við til langtíma lausnar í formi borgara-
launa. Þá hverfur hugtakið „bótakerfi“
og í staðinn kemur hugtakið „launa-
kerfi“. En þangað til þarf að laga það
kerfi sem er í dag með því að rétta hlut
aldraðra, öryrkja og atvinnuleitenda.
Það besta við okkur Pírata er að við
erum venjulegt fólk sem hefur reynt á
eigin skinni hvernig það er að lifa undir
fátækramörkum, að missa heimilið sitt
á uppboði, að eiga ekki fyrir lyfjum og
lækniskostnaði. Við erum þverskurður
af þjóðinni, frambjóðendur koma úr
öllum stéttum þjóðfélagsins. Það er þess
vegna sem við viljum breytingar. Svo við
öll getum lifað með reisn á þessu landi.
Þórólfur Júlían Dagsson
Þjóðin á þing
Stjórnstöð ferðamála og Ferðamála-
stofa boða til kynningarfunda um
gerð stefnumarkandi stjórnunaráætl-
ana, Destination Management Plans
- DMP, um landið og verður fundur á
Reykjanesi haldinn á fimmtudaginn í
næstu viku, 13. október klukkan 9:30.
Á fundunum munu fulltrúar Ferða-
málastofu og Stjórnstöðvar ferðamála
kynna verkþætti og tímalínu verk-
efnisins auk þess sem skoski ráð-
gjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega
yfir eðli, markmið og tilgang slíkra
verkefna og hvernig þau geta nýst inn
í framtíðarskipulag og þróun svæða.
Fundirnir eru öllum opnir en þeir
eru meðal annars ætlaðir fulltrúum
sveitarfélaga, markaðsstofum, at-
vinnuþróunarfélögum, ferðaþjónum,
upplýsingamiðstöðvum og öðrum
þjónustuaðilum, svo sem öryggis- og
viðbragðsaðilum, íbúum og fleirum.
Skráning fer fram á vef ferðamálastofu
www.ferdamalastofa.is
Kynningarfundur um stefnumótandi
stjórnunaráætlanir í ferðaþjónustu
LAUS STÖRF
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er
komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex
mánuði.
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef
Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða
beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/
storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um
auglýst störf.
LEIKSKÓLINN HOLT
AKURSKÓLI
LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL
Leikskólakennari/starfsmaður
Skólaliðar
Starfsmaður í afleysingar
VIÐBURÐIR
FORNSÖGUNÁMSKEIÐ
Þriðjudaginn 11. október kl. 19:30 hefst námskeið í Hrafnkels
sögu og Gunnlaugs sögu í Bókasafni Reykjanesbæjar undir
stjórn Þorvaldar Sigurðssonar. Skráning í afgreiðslu safnsins
eða á heimasíðu þess sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn
HLJÓMAHÖLL - TRÚBROT FLYTUR LIFUN
Tónlist hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Trúbrot verður
flutt í Stapa þann 7. október kl. 21:00 - 23:30. Hljómsveitin mun
m.a. flytja Lifun í heild sinni. Miðasala og nánari upplýsingar á
hljomaholl.is
JÓLIN, JÓLIN, JÓLIN KOMA BRÁTT
Menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir skemmtilegum
hugmyndum frá bæjarbúum að viðburðum sem lífgað gætu
upp á skammdegið í aðdraganda jóla. Sendið hugmyndir á
menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða í síma 421-6700.
Alls eru 207 nemendur í 1.-10. bekk í Gerðaskóla. Sjá
nánar um skólann á www.gerdaskoli.is. Æskilegt er að
viðkomandi hafi reynslu af kennslu og starfi með börnum.
Gildi skólasamfélagsins í Garði eru: Árangur, virðing,
gleði, leikur, sköpun, ábyrgð og lögð er áhersla á þau í
starfi skólans. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja
sig inn í starfshætti skólans og geta hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða 100% starf, umsjónarkennslu á yngsta stigi
Umsóknarfrestur er til og með
20. október 2016
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Geirdal
skólastjóri, johann@gerdaskoli.is og
Ragnhildur Einarsdóttir, aðstoðarskólastjóri
ragnhildur@gerdaskoli.is.
ATVINNA
GERÐASKÓLI ÓSKAR EFTIR KENNARA
TIL AÐ KENNA Á YNGSTA STIGI
Auglýsingasíminn er
421 0001
Samkaup hf. óskar eftir starfsmanni á starfsmannasvið félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt
starf í krefjandi umhverfi á skrifstofu félagsins í Reykjanesbæ.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Falur J. Harðarson starfsmannastjóri.
Umsóknir berist fyrir 16. október á netfangið umsokn@samkaup.is
Samkaup hf. reka um 50 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverslunum
til þægindaverslana. Starfsmenn félagsins eru um 1.000 talsins.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Starfsreynsla á sviði starfsmannamála kostur
Þekking á kjarasamningum og réttindum
Skipulagshæfni og samskiptahæfileikar
Sjálfstæði og frumkvæði
-
-
-
-
-
Umsjón með Kaupmannsskóla Samkaupa
Ráðgjöf og stuðningur við verslanir
í starfsmannamálum
Meðferð kjarasamninga
Ráðgjöf varðandi vinnurétt
Önnur tilfallandi verkefni
-
-
-
-
-
HELSTU VERKEFNI: MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
STARFSMANNAFULLTRÚI