Víkurfréttir - 06.10.2016, Side 19
19fimmtudagur 6. október 2016 VÍKURFRÉTTIR
Bækur
Eins og ég les mikið af vísindagreinum bæði í vinnunni
og heima þá skilgreinist það almennt ekki sem yndisauka
lestur. Ég reyni ávallt að bendla mig við eina eða fleiri
bækur, á hverjum tímapunkti, en vegna anna bíður engin
bók á náttborðinu eftir mér, tilbúin til að draga mig úr
raunveruleikanum og fylla hugann af ævintýrum, rómantík
og almennri vitleysu. Í sumar las ég einstaklega vel skrifaða
ævintýraseríu, The Kingkiller Chronicle eftir Patrick Rot-
hfuss. Síðasta bókin er enn óútkomin en ég mæli sterklega
með þeim við bókaorma af öllum tegundum. Nýverið las
ég einnig Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason og
Tiplað með Einstein eftir Joshua Foer. Báðar bækurnar
eru hnyttnar og nokkuð áhugaverðar í ljósi líðandi tíma og
málefna.
Tónlist
Í stað þess að telja upp lista af hljómsveitum á lengd við
símaskrána, einblíni ég frekar á ólíka listamenn sem ég
hlusta almennt mikið á. Alt-J eru töframenn sem galdra
fram tóna og tilfinningar í takt við hvort annað. Ludovico
Einaudi er annar töframaður sem semur lög sín á píanó, án
texta, enda er hann óþarfur í slíkum tónverkum. Mitt uppá-
halds lag heitir Fly og kom það meðal annars fram í The
Intouchebles. Ég kemst ekki hjá því að nefna Major Lazer
en þeir hafa verið með mér á hlaupabrettinu frá árinu 2009.
Síðan þá hefur mikið vatn og plast runnið til sjávar og eru
vinsældir þeirra að sprengja alla helstu vinsældalista heims.
Í stað þess að viðhalda fjölbreytileikanum þá verð ég að
minnast á Ólaf Arnalds en þessi strákur er með ólíkindum
hæfileikaríkur. Mamma hans má að vera stolt.
Sjónvarpsþættir
Það hefur átt sér stað ákveðin þróun (góð eða slæm) hjá
mér í sjónvarpsglápi. Eitt sinn var setið í bíósal og horft
á 3 klukkustunda bíómynd án þess að blikka auga. Sjón-
varpsþættirnir tóku við af bíómyndunum og bíósalurinn
breyttist í tölvuskjá og sófann heima. Í dag horfi ég aðallega
á stutt myndbönd, í símanum, á ferð. Óháð því þá hefur
lítið verið um efnilega sjónvarpsþætti undanfarið, að mínu
mati, og ég sé fram á heldur daufa vetrardagskrá. Í sumar
seríu-gleypti ég Netflix þættina Stranger Things, sem þarf
líklega ekki að kynna fyrir landsmönnum, og einnig horfði
ég nýlega á Black Mirror eftir Charlie Brooker en þeir eru
virkilega vandaðir.
Afþreying: Ástrós Skúladóttir
„MAMMA
ÓLAFS
ARNALDS
MÁ VERA
STOLT”
Öldungarráðs Suðurnesja verður haldin 8. október
á Nesvöllum og hefst hann kl. 13:00.
Erindi flytur Halldór Jónsson forstjóri Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þjónusta við aldraða, staða og horfur
Allir velkomnir
Eyjólfur Eysteinsson formaður stjórnar Öldungarráðs Suðurnesja.
Ö L D U N G A R Á Ð S U Ð U R N E S J A
AÐALFUNDUR
Óskar eftir að ráða duglega og ábyrga
manneskju til að þrífa sameign í
Njarðvík Verður að tala íslensku. Upp-
lýsingar í síma 848-3359 eftir kl 18.
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
SMÁAUGLÝSINGAR
SJÓNVARP
V ÍKURFRÉTTA
NÝR ÞÁTTUR Í
HVERRI VIKU INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
Ástrós Skúladóttir er ungur og fráfluttur Keflvíkingur sem býr í Vesturbænum. Aðspurð segist hún ekki láta á sig fá að vera
umkringd KR-veldinu og er ófeimin að fara í Keflavíkur peysunni út í ísbúð. Ástrós hefur starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu
síðastliðin 2 ár og stundar samhliða framhaldsnám í Líf- og læknavísindum, nánar tiltekið tölvulegri erfðafræði. Tímann aflögu
nýtir hún í jóga, ferðalög, myndlist og handritaskrif.