Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 20
20 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR
Saknar fimleikanna
Katla æfði fimleika frá fjögurra ára
aldri en er nú nýlega hætt til að ein-
beita sér að Crossfit og lyftingum. „Ég
ætlaði mér aldrei í Crossfit en svo lét
frænka mín mig vita að það væri að
byrja unglinganámskeið í Crossfit og
hvatti mig til að mæta. Ég hugsaði
með mér að það væri sniðugt að mæta
til að styrkja mig og verða betri í fim-
leikum,“ segir Katla. Það gekk eftir og
fann hún mun á styrknum en tók svo
þá erfiðu ákvörðun að hætta í fimleik-
unum. „Það var erfið og stór breyting
að hætta í fimleikum því hafði æft svo
lengi en ég ákvað að velja lyftingarnar
því ég sé fyrir mér meiri möguleika á
að skapa mér atvinnuíþróttaferil þar.“
Ólympískar lyftingar eru meðal æf-
inga Crossfit iðkenda og æfir Katla
af kappi hjá Crossfit Suðurnes. Hún
segir erfitt að segja til um hve margar
æfingarnar í hverri viku eru en þær
eru margar. Síðasta sumar æfði hún
tvisvar sinnum á dag. Katla lauk 10.
bekk úr Holtaskóla síðasta vor og var
ein þeirra sex sem skipuðu sigurlið
skólans í Skólahreysti. Núna stundar
hún nám við Fjölbrautaskólann í
Garðabæ og því getur verið svolítið
púsluspil að raða æfingum, skóla,
heimanámi og öðru inn í dagskránna
dag hvern.
Stefnir hátt
Næsta mót hjá Kötlu er Norðurlanda-
mótið í Ólympískum lyftingum fyrir
17 ára og yngri sem fer fram hér á
landi í lok október. Katla hefur líka
keppt í Crossfit og á Crossfit Open,
undankeppni heimsleikanna í febrúar
á þessu ári, lenti hún í 2. sæti í flokki
14 til 15 ára í Evrópu og í 24. sæti í
aldursflokknum í heiminum. Mark-
miðið hjá Kötlu er að komast á heims-
leikana innan tveggja ára og skapa sér
feril sem Crossfit íþróttamaður. Það
verður því spennandi að fylgjast með
árangri Kötlu næstu árin.
●● Hefur●bætt●Íslandsmet●30●sinnum●síðan● Katla●Björk●ætlar●sér●langt●í●Crossfit
Þegar Katla Björk Ketilsdóttir mætti á sitt fyrsta mót í ólympískum lyftingum í febrúar síðastliðnum hafði hún sett sér það
markmið að lyfta rétt þannig að allar lyfturnar yrðu dæmdar gildar. Það tókst henni og gott betur því að strax í fyrstu lyftunum
setti hún Íslandsmet í báðum greinum ólympískra lyftinga, jafnhendingu og snörun. Síðan þá er Katla búin að bæta metin þrjátíu
sinnum, nú síðast á Haustmóti Lyftingasambands Íslands, 16. september síðastliðinn. Katla er aðeins 16 ára gömul og á Íslands-
met í greinunum tveimur bæði í flokki 17 ára og yngri og 20 ára og yngri í þyngdarflokknum -63 kg. Hún segir það skemmtilegasta
við lyftingarnar að bæta árangurinn. „Maður er alltaf með markmið og það er varla hægt að lýsa tilfinningunni þegar maður nær
þeim,“ segir hún.
Setti óvænt Íslandsmet
í fyrstu lyftu á fyrsta mótinu
Góður félagi og fyrirmyndar íþróttamaður
■ Ingi Gunnar Ólafsson er einn þjálfara Kötlu og segir hann
bakgrunninn úr fimleikum nýtast henni vel í Crossfit og
lyftingum. „Á mótum er Katla góður félagi og alltaf kurteis.
Hún er fyrirmyndar íþróttamaður sem mætir vel á æfingar,
er þrautseig og alltaf með hugann á réttum stað,“ segir hann.
Ingi segir árangurinn á árinu einstakan, að setja Íslandsmet
á hverju móti, þrátt fyrir að vera tiltölulega nýbyrjuð að æfa
lyftingar.
Katla að jafnhenda á æfingu. Íslandsmetið sem hún setti í greininni á dögunum
er 82 kg. VF-mynd/dagnyhulda
Katla ætlar sér langt í lyftingum og stefnir að því að komast á Heimsleikana í Crossfit innan tveggja ára.
Ingi Gunnar
Ólafsson
ATVINNA
Blaðberi óskast til að bera út
Morgunblaðið í Keflavík.
Upplýsingar gefur Guðbjörg í síma 860 9199.
ATVINNA
Iðavöllum 11b, 230 Reykjanesbæ // s. 421 3555
Við leitum að bílstjóra, þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar á staðnum.
Íslenska skilyrði.
NÝTT SÍMANÚMER
VAKTÞJÓNUSTU UTAN
DAGVINNUTÍMA HSS ER
1700
HSS hefur tekið í notkun vaktsímanúmerið 1700.
Það er sameiginleg símaráðgjöf fyrir heilsugæslustöðvar og
heilbrigðisstofnanir nota á landsvísu. Ef þú hringir í númerið
fæst samband við hjúkrunarfræðing sem veitir þér ráðgjöf
og leiðbeiningar. Ef tilefni er til, verður þér gefið samband
við lækni.
Athugið að 1700 er aðeins fyrir ráðgjöf utan dagvinnutíma.
Hjúkrunarfræðingur í 1700 svarar ekki fyrirspurnum um
tímabókanir eða opnunartíma HSS.
Á milli kl. 8:00 og 16:00 virka daga skal hafa samband við
móttöku HSS í síma 422-0500.
Vilberg Eiríksson, Sigurbjörg Ósk Stefánsdóttir,
Heiðrún Björk Sigmarsdóttir, Guðbjartur Sævarsson,
Aron Ingi Vilbergsson, Áslaug Eyrún Guðbjartsdóttir,
Arnar Gauti Vilbergsson, Birkir Freyr Guðbjartsson,
og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir, tengdafaðir og afi okkar,
Eiríkur Erlendsson,
Heiðarhvammi 8, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 2. október.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
11. október klukkan 13:00