Víkurfréttir - 06.10.2016, Side 22
22 fimmtudagur 6. október 2016VÍKURFRÉTTIR
V I Ð E R U M H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I
16
-1
62
0
—
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Sif er flugumferðarstjóri í flugturninum á Keflavíkurflugvelli. Í daglegu starfi veitir hún tugum flugvéla
heimildir til flugtaks- og lendingar og starf hennar tryggir að flugumferð gangi hratt og örugglega fyrir
sig á flugvellinum. Þannig er Sif hluti af góðu ferðalagi fjölda farþega á hverjum degi.
Hjá Isavia starfar samhentur hópur starfsmanna. Markmið okkar er
að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra 30 milljóna farþega sem fara
um flugvelli og flugstjórnarsvæði okkar árlega. Okkar hlutverk er að
tryggja öryggi þeirra allra og gera för þeirra sem ánægjulegasta.
Við erum að vaxa og þurfum að fjölga í liðinu okkar til að bregðast við
sífelldri fjölgun farþega. Stefna okkar er að bjóða upp á gott og fjöl-
skylduvænt starfsumhverfi, öfluga fræðslu og þjálfun og við leggjum
áherslu á jákvæðan starfsanda innan fyrirtækisins.
Kynntu þér störfin sem standa til boða hjá Isavia og vertu með okkur
í því að vera hluti af góðu ferðalagi.
isavia.is/atvinna
facebook.com/isaviastorf
Einar er arkitekt sem er á leið til Frakklands í vinnuferð. Hann er vanur því
að fá sér morgunverð á Keflavíkurflugvelli og treystir á að allt gangi
hratt og örugglega fyrir sig á flugvellinum.
Um helgina fór fram Íslandsmeistara-
mót barna og unglinga í brasilískri
glímu eða Brazilian jiu jitsu. Njarð-
víkingar mættu með ellefu keppendur
til leiks og unnu þau Stefán Elías, Jana
Lind, Daníel Dagur og Ingólfur Rögn-
valdsson öll til bronsverðlauna eftir
margar erfiðar viðureignir.
Ægir Már Baldvinsson keppti í elsta
flokki undir 65 kg. Hann sigraði fyrsta
bardagann á hengingu sem og undan-
úrslitabardagann. Í úrslitabardag-
anum var hann yfir allan tíman vegna
öflugra sókna. Þegar 30 sekúndur
voru eftir af viðureigninni skoraði
andstæðingur hans stig og varð Ægir
því annar í sínum flokki.
Í -79kg flokki sigraði Bjarni Darri
Sigfússon örugglega. Hann stjórnaði
öllum sínum viðureignum hvort sem
það var standandi eða í gólfinu og
sigraði alla sína bardaga á uppgjafar-
tökum.
Í flokki unglinga sem eru þyngri en
80 kg sigraði svo ungstirnið Halldór
Matthías Ingvarsson. Hann stimplaði
sig inn í BJJ samfélagið á þessu móti
með því að sigra einn öflugasta BJJ
glímumann landsins í fyrstu viðureign
með armlás. Í úrslitaglímunni barðist
hann við glímumann sem einnig er
brúnbeltingur í júdó. Halldór stjórn-
aði þeirri glímu sem byrjaði með fal-
legu kasti og endaði með uppgjafar-
taki.
Bjarni Darri Sigfússon keppti svo í
opnum flokki sem er erfiðasti flokkur-
inn því þar er keppt óháð þyngd.
Bjarni hélt uppteknum hætti og sigr-
aði flokkinn með yfirburðum. Annar
Íslandsmeistaratitill Halldórs og fjórði
Íslandsmeistaratitill Bjarna á þessu ári.
Halldór og Bjarni Íslands-
meistarar í brasilískri glímu
Harpa Þorvaldsdóttir,
Björk Birgisdóttir, Guðni Vignir Sveinsson,
Sóley Birgisdóttir, Ingólfur H. Matthíasson,
Börkur Birgisson, Hafdís Hafsteinsdóttir,
Ösp Birgisdóttir, Rúnar Ingi Hannah,
Burkni Birgisson, Rakel Lind Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa
Birgis Guðnasonar,
málarameistara, Keflavík,
Blessuð sé minning hans.
Guð veri með ykkur.
Hilmar Egill Sveinbjörnsson, Áshildur Linnet,
Vignir Sveinbjörnsson, Guðný Helga Kristjánsdóttir
Eva Sveinbjörnsdóttir, Torfi Magnússon,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinbjörn Egilsson
Aragerði 15, Vogum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, laugardaginn 1. október.
Útför hans fer fram frá Kálfatjarnarkirkju
föstudaginn 7. október kl. 15:00.