Víkurfréttir - 06.10.2016, Síða 23
23fimmtudagur 6. október 2016 VÍKURFRÉTTIR
Þegar unnið var að rannsóknum á há
hitasvæðum Reykjanesskagans fyrir
áratugum síðan kom ég þar við sögu.
Gekk meðal annars um hornpunkta
í ótrúlega þéttu mælineti á sjálfu
Reykjanesinu, háhitasvæðinu þar. Ég
átti líka þátt í að mæla og greina á
milli ónothæfs jarðhitasvæðis austan
Grindavíkurvegar, þar sem er hið
eiginlega Svartsengi, og svæðisins sem
virkjað var vestan vegar, frammi fyrir
hlíðum Þorbjarnarfells, og er oftast
kennt við Svartsengi. Þá grunaði mig
ekki að ég skipaði lista VG í landshlut
anum í þingkosningum á næstu öld.
En svo fór og nú stendur upp á mig að
gera almenningi og umhverfinu gagn.
Náttúruauðlindir nýtum við með
skynsemi og sjálfbærni að leiðar
ljósi. Þær helstu eru í raun ekki mjög
margar hér á landi: Jarðvarmi, vatns
afl, jarðvegur og gróður, kalt neyslu
vatn, lífríki hafsins og fáein jarðefni,
aðallega byggingaefni. Og nú síðustu
ár til viðbótar og í meira mæli en
nokkurn grunaði: Náttúrufyrirbæri
og landslag í sem fjölbreyttastri mynd.
Þjónusta við erlenda ferðamenn er
orðin að eins konar stóriðju en við
náum ekki að fylgja þróuninni eftir
og bregðast við þannig að fjármagn og
uppbygging tryggi sjálfbæra og við
ráðanlega starfsemi í greininni. Ég
gæti romsað upp verkefnum og viðrað
hugmyndir um stjórnun ferðaálags
rétt eins og veiðiálags í sjávarútvegi
en læt ógert. Fyrsta kastið verð ég að
hlusta á ykkur Suðurnesjabúa: Hvað
brennur helst á fólki; fyrir hverju á
hreyfing með félagslegar lausnir og
umhverfisvæna stefnu að standa í
vesturhluta kjördæmisins?
Ari Trausti Guðmundsson
er í 1. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi
Í upphafi skal endirinn skoða
V I Ð E R U M H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I
16
-1
62
0
—
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Sif er flugumferðarstjóri í flugturninum á Keflavíkurflugvelli. Í daglegu starfi veitir hún tugum flugvéla
heimildir til flugtaks- og lendingar og starf hennar tryggir að flugumferð gangi hratt og örugglega fyrir
sig á flugvellinum. Þannig er Sif hluti af góðu ferðalagi fjölda farþega á hverjum degi.
Hjá Isavia starfar samhentur hópur starfsmanna. Markmið okkar er
að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra 30 milljóna farþega sem fara
um flugvelli og flugstjórnarsvæði okkar árlega. Okkar hlutverk er að
tryggja öryggi þeirra allra og gera för þeirra sem ánægjulegasta.
Við erum að vaxa og þurfum að fjölga í liðinu okkar til að bregðast við
sífelldri fjölgun farþega. Stefna okkar er að bjóða upp á gott og fjöl-
skylduvænt starfsumhverfi, öfluga fræðslu og þjálfun og við leggjum
áherslu á jákvæðan starfsanda innan fyrirtækisins.
Kynntu þér störfin sem standa til boða hjá Isavia og vertu með okkur
í því að vera hluti af góðu ferðalagi.
isavia.is/atvinna
facebook.com/isaviastorf
Einar er arkitekt sem er á leið til Frakklands í vinnuferð. Hann er vanur því
að fá sér morgunverð á Keflavíkurflugvelli og treystir á að allt gangi
hratt og örugglega fyrir sig á flugvellinum.
Flug fé lag Íslands hef ur beint inn an
lands flug milli Kefla vík ur og Ak ur
eyr ar á næsta ári í tengsl um við milli
landa flug í Kefla vík. Flogið verður
all an árs ins hring á milli Kefla vík ur
og Ak ur eyr ar, en auk þess hagræðis
sem þetta hef ur í för með sér fyr ir
íbúa á Norður landi sem vilja nýta sér
milli landa flug, er gert ráð fyr ir að
þetta verði til þess að fjölga enn frek
ar ferðamönn um á lands byggðinni.
Fyrsta flug milli Kefla vík ur og Ak ur
eyr ar verður þann 24. fe brú ar 2017,
segir í tilkynningu frá Flugfélagi Ís
lands.
Flogið verður sex sinn um í viku milli
Ak ur eyr ar og Kefla vík ur yfir vetr ar
tím ann og þris var sinn um í viku yfir
sum ar tím ann. Í til kynn ing unni kem
ur fram að á þessu stigi verði þetta flug
ein göngu í boði fyr ir farþega sem eru
á leið í eða úr milli landa flugi í Kefla
vík og geta farþegar sem nýta sér þessa
þjón ustu ferðast alla leið frá Ak ur eyri
til end an legs áfangastaðar í Evr ópu
eða Norður Am er íku.
Fljúga milli Keflavíkur og Akureyrar