Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 24

Víkurfréttir - 06.10.2016, Qupperneq 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001 Mundi Tvöfaldan klór í vatni, engan ís takk! S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir Vendipunktar eru vanmetnir. Hvort sem þeir eru planaðir eða ekki. Ég stend á tímamótum, það hefur orðið vendipunktur í mínu lífi. Ég kannski bjóst ekki við því, bjó mig kannski ekki undir það...en það breytir ekki því að tímamótin eru að verða staðreynd. Breytingar geta verið fyrirkvíðanlegar, stundum ógnvekj- andi og eitthvað sem menn reyna að forðast í lengstu lög. Það er mannlegt - við vitum hvað við höfum og það sem við þekkjum er yfirleitt öruggara en ókannaðar slóðir. Ég hef starfað í stjórnmálum í tæpa tvo áratugi, lifað og hrærst í því dá- samlega umhverfi sem stjórnmálin eru með öllum þeim kostum og göllum sem þeim fylgja. Sannarlega í heildina miklu fleiri kostir - en þó nokkrir gallar. Ég hef haft áhrif á samfélagið sem ég bý í en stundum á kostnað þeirra sem ég bý með. Ég hef verið beinn þátttakandi í stærstu viðburðum Íslandssögunnar á undan- förnum áratugum, en stundum þann- ig að ég hef ekki haft tækifæri til að vera þátttakandi í mikilvægum stór- viðburðum hjá mínum allra nánustu. Þannig að í vendipunktum felast tæki- færi. Þar eru ýmsar áskoranir, óvissa og áhætta um það sem koma skal. En vendipunktum fylgir líka frelsi. Frelsi til að forgangsraða. Frelsi til að horfa til framtíðar með bjartsýni og krafti. Frelsi til að hafa reynsluna að leiðar- ljósi, og nota sama frelsið til að horfa til fortíðar með þakklæti og gleði fyrir það sem var. Og vitið þið hvað - vendipunktar eru vanmetnir. Þeir hrista upp í manni og ef maður tekur þeim fagnandi verða þeir bara til góðs. Og það er það sem ég hef ákveðið að gera á þeim tíma- mótum sem ég stend frammi fyrir. Nú er autt blað fyrir framan mig og mína, blað sem ég ætla mér að skrifa með mínum nánustu. Kærar þakkir fyrir mig - þessi vendi- punktur skal nýttur til hins ítrasta. Skoðanir pistlahöfunda eru þeirra eigin og endurspegla ekki endilega skoðanir rit- stjórnar Víkurfrétta. LOKAORÐ Ragnheiðar Elínar Vendipunktur ÓSKUM AÐ RÁÐA ÖRYGGISVERÐI GÆSLUDEILD SECURITAS Á REYKJANESI sinnir fjölbreyttum verkefnum, m.a. staðbundinni gæslu, verðmætaflutningum, farandgæslu, útkallsþjónustu og sér- verkefnum. Við erum á vaktinni allan sólarhringinn og við leitum að fólki sem getur og vill vinna dag og nótt m.a. í gagnaveri Verne á Ásbrú. HÆFNISKRÖFUR: Umsækjendur skulu hafa hreint sakarvottorð. Að standast bakgrunnsskoðun í FLE er forsenda ráðningar. · Hreint sakavottorð · Rík þjónustulund · Hæfni í mannlegum samskiptum · Stundvísi og snyrtimennska · Sjálfstæð vinnubrögð og metnaður að gera vel · 20 ára aldurstakmark · Tölvu- og enskukunnátta kostur · Bílpróf nauðsynlegt fyrir öryggisverði Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Securitas Reykjanesi, sími 5807200,  netfang reykjanes@securitas.is. Umsóknir berist í gegnum heimasíðu okkar  www.securitas.rada.is, fyrir 18. október 2016. SECURITAS REYKJANESI IÐAVELLIR 13, 230 REYKJANESBÆ, S. 580 7200 ATVINNA Frisbee golf og fót- bolta golf í Voga? ■ Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga tók frisbee golf til umfjöllunar á síðasta fundi sínum en einn nefndarmaður óskaði eftir að fá að taka upp umræðuna. Slíkir vellir hafa notið aukinna vin- sælda og finnast æ víðar. Nefndin tók jákvætt í erindið og telur æskilegt að skoða jafnframt mögu- leika á að koma upp fótboltagolfvelli samhliða. Frístunda- og menningarfulltrúa er falið að afla frekari upplýsinga og vinna málið áfram. Afgreiðsla nefndarinnar hefur jafnframt verið afgreidd frá bæjarstjórn Voga með öllum greiddum atkvæðum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.