Læknablaðið - 01.04.2017, Qupperneq 9
LÆKNAblaðið 2017/103 169
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Fáeinum dögum eftir að læknadeild fagnaði 140 ára afmæli lækna-
náms á Íslandi fór fram 120. doktorsvörnin hjá deildinni eftir að
komið var á skipulögðu doktorsnámi. Það var árið 1994 og fyrsta
doktorsvörnin var strax árið 1995, sem felur í sér að þá þegar voru
nokkrir að vinna að doktorsverkefnum og ritun doktorsritgerðar
undir leiðsögn þótt ekki væri komin formleg umgjörð. Eins og sést
á myndinni hefur verið jöfn stígandi í doktorsnámi og doktorsvörn-
um; fór frekar rólega af stað en um og eftir 2010 hafa innritanir verið
15-20 ári og doktorsvarnirnar um og yfir 10 á ári. Það er gaman og
vert að geta þess að Helgi Valdimarsson var einn helst hvatamaður
þess að farið væri af stað með doktorsnám við læknadeild og hafði
leiðbeint fyrsta doktorsnemanum. Það var svo 12. og síðasti dokt-
orsneminn hans sem varði ritgerð sína núna rétt fyrir jólin 2016.
Innan Háskóla Íslands var læknadeild brautryðjandi í skipulögðu
doktorsnámi.
Doktorar frá læknadeild skiptast í tvo nokkuð jafnstóra hópa,
annan sem hefur klínískan bakgrunn, og af þeim eru 43 læknar,
og í hinum hópnum er fólk úr greinum sem tengjast grunngrein-
um læknisfræðinnar, langflestir líffræðingar. Fyrsta doktorsvörn
lífeindafræðings var í árslok 2016 en sú næsta verður á þessu ári. Úr
þessari sögu má lesa að skipulagt doktorsnám hefur verið hvati til
rannsókna og ýtt undir metnað til að fá vísindaþjálfun sem vottast
með æðstu menntagráðu háskóla.
Hlutfall kvenna meðal háskólanema hefur farið sívaxandi
undanfarna áratugi og er nú um það bil 2/3 í mörgum evrópskum
háskólum. Þessi þróun kemur greinilega fram meðal doktorsnema
læknadeildar. Af fyrstu 25 útskrifuðu doktorunum voru 7 konur, en
á tímabilinu 1995-2010 í heild var kynjahlutfallið hnífjafnt. Af þeim
62 sem hafa varið doktorsritgerðir sínar frá og með árinu 2011 eru 37
konur (60%). Meðal þeirra sem nú eru innritaðir er meirihlutinn kon-
Doctoral studies at the Faculty of
Medicine, University of Iceland
Helga M. Ögmundsdóttir
Cand.Med., PhD. Faculty of Medicine,
University of Iceland
https://doi.org/10.17992/lbl.2017.04.129
Doktorsnám við læknadeild Háskóla Íslands
Helga M. Ögmundsdóttir
prófessor við læknadeild, formaður
rannsóknarnámsnefndar læknadeildar
helgaogm@hi.is
Árlegur fjöldi (lóðréttur ás) innritana í doktorsnám og doktorsvarnir við læknadeild
1994-2016. Innritanir: rauðar súlur; doktorsvarnir: grænar súlur.
ur (64%). Það er umhugsunarefni hvers vegna karlar sækja í síminnk-
andi mæli í æðri menntun og vísindarannsóknir.
Það gefur augaleið að fjölbreyttur bakgrunnur doktorsnema
endurspeglast í viðfangsefnunum sem spanna allt svið líf- og lækna-
vísinda, frá grunnvísindum til klínískra rannsókna, faraldsfræði
og lýðheilsu. Í drjúgum þriðjungi verkefna er nýttur efniviður og
aðstæður sem á einhvern hátt eru sérstakar hér á landi og orðið „Ís-
land“ kemur fyrir í allnokkrum titlum. Þar koma við sögu Hjarta-
vernd, Íslensk erfðagreining og Krabbameinsfélagið, eins og við var
að búast, en einnig er vert að nefna sérstaklega íslenskar augnrann-
sóknir. Önnur verkefni hefði verið unnt að vinna við hvaða rann-
sóknarháskóla sem var en það segir þá jafnframt til um það að hér
séu aðstæður sem standast alþjóðlegar kröfur.
Hvað hefur svo orðið af doktorum læknadeildar? Það er orðið vel
þekkt og viðurkennt að nú er það af sem áður var að doktorsgráða
leiði beint til akademísks ferils í vísindum, og er það nú sjaldgæft.
Stór hluti þeirra sem ljúka doktorsprófi eru þó enn í einhvers konar
akademísku starfi og læknarnir eru langflestir virkir í rannsóknum.
Því má segja að markmiðinu með vísindalegri þjálfun hafi verið náð.
Við getum leyft okkur að vera stolt af því sem vel hefur verið gert.
Vorið 2016 fékk doktorsnámið vottun frá ORPHEUS, sem eru Evrópu-
samtök um doktorsnám í heilbrigðisvísindum, að undangenginni
úttekt og mati. Eins þykir okkur alltaf vænt um að heyra erlenda
andmælendur fara lofsamlegum orðum um ritgerðir og framkvæmd
doktorsvarna. En þegar vel gengur er einmitt ástæða til að huga að
því hvar úrbóta gæti verið þörf. Með það í huga leitum við svara
hjá doktorsnemunum með könnunum. Ein slík var gerð nú í febrúar.
Almennt er útkoman góð hvað varðar til dæmis gæði leiðbeininga
og aðstöðu. En svör við spurningu um samskipti vekur athygli. Þar
kemur fram að 7 doktorsnemar hitta aldrei aðra doktorsnema. Þarna
er eitthvað að. Fyrir 5 árum var komið á laggirnar Lífvísindasetri
með þátttöku rannsóknarhópa í Læknagarði, á Keldum, við Háskól-
ann í Reykjavík og víðar. Þar finnur fjöldi doktorsnema frjótt og
skemmtilegt umhverfi til óformlegra og formlegra samskipta, með
mörgum tímaritaklúbbum og málstofum. Á þessum vettvangi eru
fyrst og fremst líffræðingar. En hvað um læknana? Margir þeirra sem
innrituðust í doktorsnám á fyrri árum voru þegar komnir af stað
með rannsóknarverkefni og jafnvel orðnir sérfræðingar. Nú byrja
menn fyrr í doktorsnámi og sumir áður en þeir ljúka læknanámi.
Eitt af verkefnum okkar nú er einmitt að skapa skilyrði við lækna-
deild til að byggja betur undir vísindalega þjálfun þessara nemenda.
Og nú þarf að hvetja háskólasjúkrahúsið til að rísa undir nafni og
efla akademískt umhverfi til að laða til sín verðandi sérfræðinga og
upprennandi vísindamenn og hlúa að þeim. Þetta er fólkið sem mun
bera uppi læknanám og læknavísindi á komandi tímum.
Bí
la
bú
ð
Be
nn
a
ás
ki
lu
r
sé
r
ré
tt
til
b
re
yt
in
ga
á
n
fy
rir
va
ra
á
v
er
ði
o
g
bú
na
ði
.
Ríkulegur búnaður í Platinum Edition: Leður og Alcantara innrétting, leiðsögukerfi með Íslandskorti, 20” RS Spider Platinum álfelgur, rafdrifin GTS sportsæti, stillanlegur forhitari, Bi-Xenon framljós með beygju, BOSE® 665
watta hljóðkerfi, stillanleg fjöðrun (PASM ), hiti í framsætum, 8 gíra sjálfskipting með skiptingu í stýri, Porsche ferðahleðslustöð, Privacy glass (litað gler), tvöföld sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, rafdrifinn afturhleri, samlitir
brettakantar, svartir háglans gluggalistar, skriðstillir (Cruise Control), upplýstir sílsalistar, Porsche merki greypt í höfuðpúða, sjálfvirk birtustillingspegla, felgumiðjur með Porsche logo í lit, PCM, Porsche Connect Plus, o.m.fl.
Porsche Cayenne S E-Hybrid
416 hestöfl | 590Nm tog
Porsche á Íslandi | Bílabúð Benna: Opnunartími:
Vagnhöfða 23 | 110 Reykjavík | S: 590 2000
www.benni.is | www.porsche.is
Virka daga frá 9:00 til 18:00
Laugardaga frá 12:00 til 16:00
Við hættum ekki að leika okkur af því við verðum gömul.
Við verðum gömul af því við hættum að leika okkur.