Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 31
LÆKNAblaðið 2017/103 191 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R og vinna með ráðuneytinu við að þróa heilbrigðiskerfið í rétta átt. Margar fyrirspurnir Að loknu ávarpi ráðherra var opnað fyr- ir umræður og þá kom fram að læknar vildu ræða ýmis mál við hann. Meðal þess fyrsta sem fram kom var spurningin hvort ekki væri hægt að flýta byggingu nýs spít- ala og búa sem fyrst til „mulningsvél fyrir biðlistana“ eins og Pálmi Jónsson orðaði það. Ráðherra sagði að bygging spítalans væri langtímaverkefni sem hefði verið í undirbúningi í rúmlega 40 ár, eða frá ár- inu 1975. Núverandi áætlun kveður á um að byggingu meðferðarkjarna skuli lokið 2023 og ekki mætti draga í efa vilja ríkis- stjórnarinnar til að flýta því verki eins og hægt væri. Þar væri hins vegar sá vandi á höndum að hér ríkti húsnæðisskortur, auk þess sem ferðamannastraumurinn kallaði á þvílíka uppbyggingu á Keflavíkur- flugvelli að vandséð væri að íslenskur byggingariðnaður réði við mikið annað á næstu árum. Spurningarnar dundu á ráðherra sem var krafinn svara um hvernig hann vildi leysa mönnunarvanda spítalans, hvort hann ætlaði að breyta meðferð kærumála, hvort sveitarfélögin réðu nokkuð við öldrunarþjónustuna, hvort hann hefði kynnt sér mygluna á fæðingardeildinni og í aðalbyggingunni, hvort ekki þyrfti að efla rannsóknir á spítalanum og koma upp hugmyndabanka eða því sem á ensku nefnist Think Tank. Jú, ráðherra vildi gjarnan koma upp hugmyndabanka, það væri eiginlega til- gangurinn með verkefninu „Upp úr skúff- unum“. Þar vildi hann gjarnan eiga gott samstarf við lækna. Hann eyddi talsverðu púðri í að svara fyrirspurn Vilhelmínu Haraldsdóttur um hvernig hann hygðist bregðast við auknum lyfjakostnaði sem bitnar jafnt á spítalanum sem sjúklingum, ekki síst þeim sem takast á við krabba- mein. Hann sagðist strax hafa fengið um það ábendingu að lyfjakaup spítalans væru vanfjármögnuð og lyfin alltaf að verða dýrari. Þetta væri sami hausverk- urinn í öllum löndum og eitt af stóru verk- efnunum sem þyrfti að taka á. Loks kom fyrirspurn frá Ragnari Frey Ingvarssyni um fráflæðivanda spítalans og hvort ekki væri brýnt að byggja eins og eitt hjúkrunarheimili í snatri. Jú, það vantar fleiri en eitt, sagði Óttarr og bætti því við að um það eins og byggingu nýs spítala gilti það sem hann hefði áður sagt að uppbyggingu heilbrigðiskerfisins lyki aldrei, það væri eilífðarverkefni. En nú var klukkutíminn sem fundinum var skammt- aður á enda og lokaorð nýs heilbrigðisráð- herra voru þessi: – Þetta eru orðin, nú haldið þið mér við verkin. Takk fyrir mig! Svo kvaddi hann lækna í Hringsal og líka þá sem fylgdust með úr Blásölum. Þeir kvöddu hann á móti með dúndrandi lófaklappi. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra skiptist á skoðunum við lækna og annað starfsfólk Landspítalans. Við hlið hans stendur Reynir Arngímsson formaður læknaráðs, en sitjandi fjærst í fremstu röð eru aðstoðarmenn ráðherra, Unnsteinn Jóhannsson og Sigrún Gunnarsdóttir. Mynd ÞH.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.