Læknablaðið - 01.04.2017, Qupperneq 33
viljayfirlýsing fjögurra aðila um málefni
Lækningaminjasafns Íslands. Þar voru
áfram Seltjarnarnesbær, LÍ og LR en í stað
Þjóðminjasafns og menntamálaráðuneytis-
ins var nú komið Listasafn Íslands.
Viljayfirlýsing
Meginefni þeirrar yfirlýsingar er á þessa
leið:
„Það er einlægur vilji allra aðila yfirlýs-
ingar þessarar að byggingarframkvæmd-
um við húsið verði fram haldið en þær
hafa legið niðri í nokkur ár. Sökum þess
fagna aðilar því að viðræður standa nú
yfir á milli Seltjarnarnesbæjar og ríkisins
sem ganga út á kaup ríkisins á fasteigninni
enda er markmið viðræðnanna að húsið
verði klárað og þar verði menningar- og
safnatengd starfsemi í framtíðinni.
Tekið er fram í 7. gr. samningsins um
safnahúsið [upphaflega samningsins frá
2007 – innskot] kemur fram að komi til
þess að Seltjarnarnesbær óski eftir því
að nýta safnabygginguna undir aðra
starfsemi en Lækningaminjasafn Íslands
skuli bærinn, nema um annað semjist,
endurgreiða læknafélögunum tveimur
stofnframlag þeirra að viðbættri vísitölu-
hækkun miðað við byggingarvísitölu. Í
ljósi þessa ákvæðis lýsa læknafélögin því
yfir að kaupi ríkið eignina verður ekki
um skilyrðislausa uppgreiðslu að ræða á
stofnframlagi læknafélaganna, heldur séu
læknafélögin þá til í viðræður um tak-
markaða nýtingu á fasteigninni fyrir sýn-
ingarhald sem tengist lækningaminjum og
sögu læknisfræðinnar og einnig verði þar
möguleiki á fyrirlestrahaldi og ráðstefnum
á vegum læknafélaganna. Náist skriflegt
samkomulag um slík afnot læknafélag-
anna mun ekki koma til endurgreiðslu á
stofnframlagi þeirra.
Með undirritun sinni á yfirlýsingu
þessari lýsir Listasafn Íslands því yfir að
það hafi áhuga á að koma að uppbyggingu
safnastarfs í byggingunni í samstarfi við
ofangreinda aðila.“
Ekki eitt safn, heldur tvö
Svo mörg voru þau orð í október, en hvað
hefur gerst eftir að þau voru sett á blað?
Högni Óskarsson sagði blaðamanni að
ýmislegt hefði gerst bæði fyrir og eftir að
yfirlýsingin varð til.
– Þegar nefndin var skipuð lá þetta mál
dautt, hafði rekið upp á sker. Svo gerist
það að Oliver Luckett kemur til sögunnar.
Hann er bandarískur nýsköpunarfröm-
uður sem tengist bæði listaheiminum og
þróun samfélagsmiðla en tók ástfóstri
við Ísland. Hann kom ásamt sambýlis-
manni sínum til að kaupa sér íbúðarhús
og hafði meðal annars skoðað Lækninga-
Nýjar hugmyndir gætu hleypt
nýju lífi í hugmyndina sem virtist
vera að deyja drottni sínum
Aðalfundur LÍ
19. og 20. október 2017
Stjórn Læknafélags Íslands (LÍ) hefur ákveðið að aðalfundur félagsins verði haldinn í Kópavogi 19. og 20. október
2017 og hefur boðað formlega til fundarins með bréfi dags. 28. mars 2017, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga LÍ.
Eftir breytingar sem gerðar voru á lögum LÍ á aðalfundi 2016 skal stjórn LÍ framvegis kosin í rafrænni allsherjarat-
kvæðagreiðslu fyrir aðalfundinn og kjörnefnd taka til starfa strax og til aðalfundar hefur verið boðað.
Öll samskipti við félagsmenn vegna stjórnarkjörs 2017 verða með tölvupósti. Það skiptir því miklu að LÍ hafi
rétt netföng félagsmanna. Þess er farið á leit að félagsmenn leiðrétti netföng sín ef þörf er á.
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
LÆKNAblaðið 2017/103 193