Læknablaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 37
LÆKNAblaðið 2017/103 197
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Varðveislu
trúnaðarupplýsinga lýkur
með eyðingu þeirra
Bæjarflöt 4
112 Reykjavík
Sími: 568 9095
www.gagnaeyding.is
Við vinnum eftir
vottuðu gæðakerfi
Örugg
eyðing gagna
Til styrktar barnalækningum
Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar var
stofnaður árið 2000 af Bent Scheving Thor-
steinssyni til minningar um fóstra hans.
Óskar var barnalæknir og hefur sjóður-
inn það hlutverk að veita verðlaun fyrir
vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og
skylda starfsemi á sviði barnalækninga.
Eigið fé sjóðsins er um 20 milljónir króna
en samtals nam verðlaunaféð að þessu
sinni 1,2 milljónum króna.
Óskar brautskráðist frá læknadeild
Háskóla Íslands árið 1927, lærði fæðinga-
hjálp í Danmörku síðar sama ár og
stundaði sérnám í barnalækningum í
Austurríki og Þýskalandi á þriðja og
fjórða áratug síðustu aldar. Hann stofnaði
læknastofu í Reykjavík árið 1930 og rak
hana til dauðadags árið 1958. Samhliða
var Óskar skólalæknir Austurbæjarskóla
og Laugarnesskóla, læknir barnaheimil-
isins Sumargjafar og eftirlitslæknir við
barnaheimili Reykjavíkur. Óskar kvæntist
Guðrúnu Sveinsdóttur frá Hrauni á Skaga,
móður Bents, árið 1928.