Læknablaðið - 01.05.2017, Blaðsíða 43
LÆKNAblaðið 2017/103 255
æðaskurðlæknir, hafði fengið góða þjálfun
í því, og tók því flest aneurysmatilfelli
(æðagúlar) að sér nema ef hann var í
löngu fríi. Þetta gekk mjög vel og kom sér
mjög vel. Hér þurftum við að vera færir í
flestan sjó og því hefði enn frekari þjálfun
komið að miklum notum. Eitt sem vantaði
tilfinnanlega hér, í ljósi aðstæðna, var ein-
hvers konar aðstaða til að kynna sér betur
fyrirfram fyrirhugaðar aðgerðir og meiri
samvinna við meinafræðideild. Í heilaað-
gerðum er ekkert svigrúm svo aðgerðin
verður frá upphafi að vera hnitmiðuð upp
á millimeter. Þetta hefur auðvitað mikið
lagast með nútímaþjálfun og breyttri
tækni og tilkomu ýmissa tækja bæði
til greiningar og á skurðstofu. Eins var
með aðstöðu og tíma fyrir vísindalegar
rannsóknir. Hún var engin. Samt tókst að
skrifa greinar um klínísk málefni en hefði
þurft að vera miklu meira. Í þessu sam-
bandi verð ég þó því miður að nefna að
mér fannst, með allri virðingu, að lækna-
deild HÍ hafi ekki sýnt okkur nægilegan
áhuga og látið hjá líða að hvetja okkur til
dáða eða styðja við okkur innan háskóla-
deildarinnar. Skal engum getum að því
leitt hvers vegna þetta var svona en við
fundum stundum til þess! Hér bættist þó
við heill kafli í sögu læknisfræði á Íslandi!
Við fengum samt að kenna læknastúdent-
um öðru hverju en það stóð jafnan stutt.
Gott hefði einnig verið að fá hingað árlega
einhvern klínískan ráðgjafa eða umsjónar-
mann, reyndan mann sem hefði farið yfir
starfsemina og í okkar tilfelli gefið um-
sögn og góð ráð. Það varð aldrei en því má
bæta við í þessu sambandi að eftir því sem
við heyrðum fengum við alltaf hina bestu
umsögn bæði sjúklinga og kollega okkar
erlendra sem til okkar þekktu.
Það var mikið gæfuspor fyrir okkur
Bjarna, fyrir deildina og fyrir þjóðina alla
þegar tókst 1987 og 1988 að ráða á deildina
tvo nýja sérfræðinga, Aron Björnsson og
Þóri S. Ragnarsson. Þeir höfðu báðir verið
aðstoðarlæknar hjá okkur og voru báðir
hálærðir sérfræðingar í heilaskurðlækn-
ingum, annar frá Karolinska sjúkrahúsinu
í Stokkhólmi, hinn frá Bandaríkjunum.
Þetta létti mikið á okkur félögunum því
auk þess að vera frábærir skurðlæknar
bættu þeir við nýjum hugmyndum og
aðferðum, til dæmis styttum legutíma.
Aðrir sérfræðingar bættust síðan við, svo
sem Garðar Guðmundsson og Hulda Brá
Magnadóttir, sem bæði fluttu sig svo um
set, og nú allra síðast Halldór Skúlason.
Nær allir hafa þessir einstaklingar unnið
og verið í námi hjá okkur og eru þeir og
aðrir sem bæst hafa við nú orðnir nær 20
talsins. Þar af vinna nú fjórir sérfræðingar
á deildinni. Um stefnu deildarinnar al-
mennt í læknavísindum er svo gaman að
hugsa til þess að þegar við Bjarni komum
til Íslands og eftir það lengi vel mátti segja
að „andi Cushings“ svifi yfir vötnunum
en nú er það andi „Olivekrona“ sem það
gerir.
Yfirlæknir heila- og taugaskurðdeild-
ar nú er Aron Björnsson og aðrir sér-
fræðingar eru Ingvar Hákon Ólafsson,
Elfar Úlfarsson og Halldór Skúlason.
Það væri freistandi að bæta hér við
nöfnum þeirra deildarstjóra, hjúkrunar-
fólks, aðstoðarlækna og fleira ágæts fólks,
sem með okkur hafa starfað en það verður
að bíða betri tíma.
Þessi greinargerð sem er sögulegs eðlis,
gerð á gamals aldri og eftir erfið veikindi
um tíma, til að vekja athygli á þessari
sögu og til að halda til haga þessum þætti
lækninga hér áður en allir væru fallnir frá
borði sem komu við sögu eða áttu hlut að
máli og gætu eitthvað sagt frá en þeir týna
nú ört tölunni. Ef einhvers staðar er ekki
farið rétt með bið ég forláts á því.
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Málþing um stöðu
súrefnisþega á Íslandi
Grand hótel, Sigtúni 38, Reykjavík þann 17. maí kl. 12:00 -16:00
Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga efnir til málþings um stöðu súrefnisþega á Íslandi,
í samvinnu við Samtök lungnasjúklinga og Félag íslenskra lungnalækna.
Tilefnið er 20 ára afmæli Samtaka lungnasjúklinga.
Markmið málþingsins er að hvetja til umræðu um lífsgæði súrefnisþega, stuðla að
bættum aðbúnaði þeirra og að efla samvinnu fagaðila sem koma að ákvörðunum,
þjónustu, meðferð, fræðslu og eftirliti.
Skráning á lunga@hjukrun.is fyrir 15. maí
Aðgangur ókeypis