Fréttablaðið - 11.01.2018, Page 4

Fréttablaðið - 11.01.2018, Page 4
Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is Rekstrarland er hluti af Olís Nilfisk fæst í Rekstrarlandi, Vatnagörðum 10. Þetta danska vörumerki þekkja flestir enda gæðaryksugur sem hafa þjónað íslenskum heimilum dyggilega í áratugi. Komdu og skoðaðu Nilfisk ryksugurnar og úrvalið af fylgihlutum, hausum, börkum og ryksugupokum. Rekstrarland er opið alla virka daga kl. 9–18. NILFISK er nauðsyn á heimilið ✿ Kröfur Landspítalans vegna ótryggðra erlendra 0 100 millj. 200 millj. 300 millj. 400 millj. 500 millj. 600 millj. 700 millj. 800 millj. 2013 2014 2015 2016 2017* *Upphæð ársins 2017 mun hækka þar sem eftir er að gefa út reikninga. ✿ Komur ótryggðra erlendra einstaklinga 0 200 100 300 400 500 2015 2016 2017 2014 2013 jan feb mar apr maí jún júl ágú sep okt nóv des HEILBRIGÐISMÁL Innlagnir erlends fólks án sjúkratryggingar á Land- spítalanum voru ríflega þrefalt fleiri í fyrra en árið 2013. Jöfn og þétt aukning hefur verið undanfarin ár. Hlutfallið helst í hendur við komur sama hóps á spítalann en þær hafa tæplega þrefaldast á sama tímabili. Sömu sögu er að segja af upphæð viðskiptakrafna spítalans vegna ótryggðra á tímabilinu. Árið 2013 námu kröfurnar rúmlega 261 millj- ón en árið 2016 var upphæðin tæpar 566 milljónir. Um áramótin síðustu námu kröfur vegna ársins 2017 tæpum 725 milljónum en sú upp- hæð mun hækka þar sem enn á eftir að gefa út einhverja reikninga fyrir síðustu vikur ársins. „Staðgreiðsla er misjöfn eftir deild- um, en að meðaltali er hún um 80 prósent,“ segir í svari fjármálasviðs spítalans. Verði ekki af staðgreiðslu er krafa stofnuð í netbanka en sé hún ekki greidd er gripið til frekari innheimtuaðgerða. Ekki liggur fyrir hver kostnaður er við innheimtu þessara krafna en „gera má ráð fyrir að vinna fjármálasviðs vegna þess- arar aukningar hafi aukist um hálft til eitt stöðugildi“. Kostnaður við innheimtu skuldanna liggur ekki fyrir. Komu- gjöld eru innheimt á um tuttugu stöðum víðsvegar á spítalanum og þeir starfsmenn, auk starfsmanna fjármálasviðs, sinna að auki ýmsum öðrum störfum. Því þyrfti að reikna út beinan launakostnað, kostnað við tölvukerfi auk annars kostnaðar sem til fellur við verkin. „Þessi innheimta er lögbundin samkvæmt reglugerðum sem vel- ferðarráðherra setur og það hefur ekki verið talin þörf á að leggja í þá vinnu að kostnaðargreina hana sér- staklega,“ segir í svari spítalans. Langflestir erlendir ferðamenn leita til spítalans í júlí og ágúst en september fylgir þar á eftir. Í takt Þreföldun á fimm ára tímabili Viðskiptakröfur Landspítalans vegna ferðamanna án sjúkratryggingar námu minnst 725 milljónum á síðasta ári. Flestir leita til spítalans í júlí og ágúst en innlögnum yfir vetrarmánuðina hefur fjölgað mikið. við auknar heimsóknir ferðamanna yfir vetrarmánuðina má einnig sjá að komum hefur fjölgað stöðugt í nóv- ember, desember og janúar. Þeim sem leggjast inn á spítalann hefur einnig fjölgað. 133 ótryggðir erlendir einstaklingar lögðust inn á spítalann árið 2013 eða um þrettán prósent þeirra sem þangað leituðu. Árið 2016 var fjöldinn 361 og 436 í fyrra eða rúmur fimmtungur þeirra sem þangað leituðu. „Mun lengri tíma tekur að fá legu- reikninga greidda, [heldur en stað- greiðslukröfur], enda eru trygginga- félög oft greiðendur í þeim tilfellum,“ segir í svari spítalans. johannoli@frettabladid.is Vinna fjármálasviðs spítalans hefur aukist um að einu stöðugildi vegna aukn- ingarinnar SLYS Einn kínverskur ferðamaður liggur enn á gjörgæslu Landspítal- ans eftir rútuslysið við Kirkjubæjar- klaustur. Einn liggur á almennri legudeild. Einn fórst í slysinu. Slysið varð þann 27. desember síðastliðinn með þeim hætti að rúta fór út af hringveginum um sex kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri. Í bílnum voru 44 kínverskir ferða- menn auk íslensks bílstjóra. Alls voru tólf manns flutt á Land- spítalann með þyrlum Landhelgis- gæslunnar, þar af níu alvarlega slösuð. Tíu hinna slösuðu hafa nú verið útskrifaðir af spítalanum. – jóe Enn á gjörgæslu eftir rútuslysið Tólf voru fluttir með þyrlu Land- helgisæslunnar á Landspítalann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir mann- dráp af gáleysi. Maðurinn stýrði hjólabát sem bakkað var yfir kanadíska ferða- konu við Jökulsárlón sumarið 2015 með þeim afleiðingum að konan lést. Að auki var maðurinn sviptur ökuréttindum í sex mánuði og dæmdur til að greiða allan sakar- kostnað, um tvær milljónir króna. Saksóknari málsins hafði farið fram á þriggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi og tíu mánaða sviptingu ökuréttinda. Ekki liggur fyrir hvort saksóknari eða hinn sak- felldi muni una dómnum. Dómurinn hafði ekki verið birtur þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Í ákæru í málinu var stjórnandi bátsins sakaður um að hafa ekki sýnt af sér nægilega aðgæslu með fyrrgreindum afleið- ingum. Við aðalmeðferð fyrir dómi bar skipstjórinn því við að hann hefði ekki getað sýnt af sér meiri aðgát við aksturinn og undir það tók sam- starfsfólk mannsins. Bakkmyndavél bátsins var biluð daginn sem slysið varð. Dómurinn var kveðinn upp af Héraðsdómi Austurlands í húsnæði Héraðsdóms Reykjavíkur. – jóe Skipstjóri á Jökulsárlóni dæmdur fyrir manndráp af gáleysi Hjólabátasigling á Jökulsárlóni er vinsæl meðal ferðafólks. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BanDaRíKIn „Nú er nóg komið af þessu upplogna Rússaplaggi,“ segir í tísti frá Michael Cohen, lögfræðingi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem höfðaði í fyrrinótt mál gegn rannsóknafyrirtækinu Fusion GPS og gegn fjölmiðlinum BuzzFeed. Málin snúast um rannsóknarskjöl frá Fusion GPS sem BuzzFeed birti fyrir ári, þó með þeim fyrirvara að það sem í þeim stæði væri óstaðfest. Skjölin fjalla um Trump og segir meðal annars í þeim að Rússar búi yfir myndefni þar sem hann sést sænga hjá vændiskonum. – þea Krefja BuzzFeed um skaðabætur n Greitt n Ógreitt 1 1 . j a n ú a R 2 0 1 8 F I M M T U D a G U R4 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a Ð I Ð 1 1 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B 6 -E 4 4 0 1 E B 6 -E 3 0 4 1 E B 6 -E 1 C 8 1 E B 6 -E 0 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.