Fréttablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 8
Orlofshús í sumar Byggiðn – Félag byggingamanna óskar eftir vönduðum sumarhúsum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Heitur pottur er skilyrði. Áhugasamir sendi upplýsingar á palmi@samidn.is fyrir 25. janúar 2018. Nauðsynlegt er að góð lýsing sé og ljósmyndir af eigninni svo sem stærð, fjöldi svefnplássa og staðsetning. Einnig að lýsing á umhverfi fylgi með t.d. möguleikum til útivistar og afþreyingar. Öllum tilboðum verður svarað. VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS Viltu leggja þitt af mörkum í starfi VR? Uppstillinganefnd VR óskar eftir frambjóðendum til trúnaðar­ ráðs VR. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda erindi á netfangið uppstillinganefnd@vr.is fyrir kl. 12:00 á hádegi þann 19. janúar nk. Í samræmi við lög VR óskar uppstill- inganefnd eftir frambjóðendum til að skipa lista stjórnar og trúnaðarráðs vegna listakosningar um trúnaðarráð í félaginu. Uppstillinganefnd stillir upp lista til trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið eins og mögulegt er hvað varðar aldur, kyn og störf félagsmanna. Einnig verður litið til félagsaðildar og starfa fyrir félagið. Hlutverk trúnaðarráðs VR er að vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis stærri málefni sem upp koma í starfsemi félagsins, svo sem við gerð kjarasamninga og stærri framkvæmdir. Uppstillinganefnd VR Viðskipti „Það er ekkert sem bendir til þess að fasteignaverð muni lækka enda hafa vextir lækkað og kaup- máttur að aukast,“ segir Kjartan Hallgeirsson, formaður Félags fasteignasala (FF), um þær tölur sem birtast í nýrri mánaðarskýrslu Íbúða lánasjóðs um þróun hús- næðismarkaðarins. Í skýrslunni segir að sumir geti orðið varir um sig í ljósi sögunnar eftir að 0,7 prósenta lækkun varð á fasteignaverði í nóvember síðast- liðnum. Það hafi verið í fyrsta skipti síðan í júní 2014 sem verð á fjölbýli og sérbýli lækkaði milli mánaða. Sex mánaða hækkun íbúðaverðs sé nú aðeins 1,8 prósent og hækkunar- takturinn minnkað mikið síðan í sumar. Einnig er bent á að þinglýstum kaupsamningum um íbúðarhús- næði á höfuðborgarsvæðinu fækk- aði um 16 prósent í desember miðað við mánuðinn á undan og 20 pró- sent miðað við sama mánuð 2016. „Þessi 0,7 prósenta lækkun er mjög óveruleg og segir ekki til um að markaðurinn sé á niðurleið heldur sé þetta allt að ná jafnvægi með minniháttar sveiflum eftir að hann ofreis um síðustu páska. Árið lítur vel út með auknu framboði á nýbyggingum og okkar reynsla er sú að það hefur alltaf ruðningsáhrif og aðrir losa sig við eignir og mark- aðurinn kemst í eðlilega hringrás,“ segir Kjartan. „Þetta hefur einkennst af meira jafnvægi og framboði og eðlilegri markaði. Þessar tölur sýna hvað er að seljast yfir ásettu verði og er eðlilegt hlutfall að mínu mati,“ segir Kjartan en í skýrslunni kemur fram að um 78 prósent íbúða hafi selst undir ásettu verði í nóvember. Ingibjörg Þórðardóttir, fasteigna- sali hjá Híbýlum og fyrrverandi for- maður FF, tekur undir með Kjart- ani og spáir að verð muni hækka. „Þessir mánuðir sem þarna er um að ræða eru einmitt þeir rólegustu á árinu. Núna á nýju ári finn ég strax að markaðurinn er að taka allvel við sér en hins vegar er það fagnaðar- efni að það hægist að einhverju leyti á honum því ástandið í byrjun árs í fyrra með þeim hækkunum var ekki gott,“ segir Ingibjörg. haraldur@frettabladid.is Fasteignasalar sjá ekki lægra verð í kortunum Fasteignaviðskiptum þar sem keypt er yfir ásettu verði hefur fækkað hratt síðan í vor. Fréttablaðið/Vilhelm Íbúðalánasjóður segir að í ljósi sögunnar geti sumir nú verið varir um sig eftir að fasteignaverð lækkaði í nóvember og um 78 prósent íbúða seldust undir ásettu verði. Fasteignasalar spá verðhækkunum en auknu jafnvægi. Kjartan hallgeirsson. samgöngumál Greiðsla fyrir að aka um Vaðlaheiðargöngin verður rafræn og mun þar af leiðandi engin mönnuð stöð vera við annan enda ganganna til að rukka öku- menn. Hægt verður að kaupa miða í gegnum göngin á netinu eða í appi í snjalltækjum. Þeir sem greiða ekki en fara um göngin fá sendan greiðsluseðil. Þessi háttur er viðhafður erlendis með góðum árangri, til að mynda í Færeyjum, svo tæknin er til staðar. Valgeir Bergmann, framkvæmda- stjóri Vaðlaheiðarganga, segir þessa tilhögun ekki erfiða í framkvæmd. „Þetta verður þannig að þú kaupir aðgang í göngin á netinu og því mun umferðin ekki stöðvast við annan enda ganganna til að taka við greiðslu. Einnig er þessi leið ódýrari og því munu sparast fjárhæðir hvað þetta varðar,“ segir Valgeir. Framkvæmdum hefur seinkað töluvert við göngin. Vonir stóðu til að ná sumarumferðinni í ár en nú er ljóst að það mun ekki takast. „Við erum að horfa til þess á þessum tíma- punkti að opna í haust,“ segir Valgeir. „Nú er unnið á fullu að mörgum verkþáttum svo vonandi mun þetta ganga vel fram á sumar.“ – sa Ekki þarf að stansa til að aka um Vaðlaheiðargöng hægt verður að kaupa miða í göngin á netinu. Góð lausn að mati forsvars- manna. Fréttablaðið/auðunn menning Jóni Páli Eyjólfssyni, frá- farandi leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar, var sagt upp störfum á þriðjudag og þess krafist að hann hætti samstundis. Samkvæmt yfir- lýsingu Menningarfélags Akureyrar (MAk) ríkti ekki lengur traust á störfum hans hjá félaginu. Jón Páll staðfesti í gær að upp- sögnin tengist #metoo-bylting- unni. Um sé að ræða atburð sem varð fyrir áratug og ekki innan leik- hússins. Unnið hafi verið að sátt í málinu síðastliðin fimm ár. Segist Jón Páll hafa gert framkvæmda- stjóra MAk grein fyrir málinu um leið og #metoo-vakningin fór af stað. – hg Jón Páll rekinn úr leikhúsinu Jón Páll eyjólfsson. 1 1 . j a n ú a r 2 0 1 8 F i m m t u D a g u r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 1 1 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B 7 -0 B C 0 1 E B 7 -0 A 8 4 1 E B 7 -0 9 4 8 1 E B 7 -0 8 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.