Fréttablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 38
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Hjónin Kristín Edda og Oddur Helgi stofnuðu Reykjavik Heritage ásamt vinahjónum sínum. MYND/ARON BRINK
Reykjavik Heritage var stofnað fyrir rúmlega ári og einblínir á hönnun og framleiðslu á lit-
fögrum og skemmtilegum sokkum
sem seldir eru í sérverslunum hér
á landi.
Það eru hjónin Kristín Edda
Sigurðardóttir sjónfræðingur
og Oddur Helgi Guðmundsson
vefhönnuður sem standa á bak
við fyrirtækið auk þeirra Sigþórs
Hilmars Guðmundssonar, bróður
Odds, og konu hans, Lindu Sverris-
dóttur. Sigþór og Linda eru búsett
erlendis og koma lítið að daglegum
rekstri fyrirtækisins en öll fjögur
deila þau miklum áhuga á sokkum.
Stærri markaður
Hugmyndin að fyrirtækinu
kviknaði fyrir um þremur árum í
fjölskylduboði segir Kristín, þar
sem verið var að ræða galdra-
stafina og þýðingu þeirra. „Þar
nefnir mágur minn að tilvalið væri
að prenta galdrastafinn Vegvísi
á sokka þar sem merking hans
felur í sér að sá sem ber hann
muni aldrei villast af leið í stormi
eða í slæmu veðri. Það má finna
skemmtilega sokka víða erlendis
en okkur fannst vanta líflega sokka
á markaðinn frá íslenskum aðilum.
Aukinn ferðamannastraumur
hefur auk þess stækkað markaðinn
og þannig fannst okkur tilvalið að
reyna að búa til vöru sem gæti
bæði gengið fyrir Íslendinga og
erlenda ferðamenn.“ Í fram-
haldinu hófust þau handa við
útreikninga, leit að hugsanlegum
framleiðendum og seljendum
og byrjuðu að kasta fram hug-
myndum um hönnun á sokkum.
Eftir smá forvinnu var Reykjavik
Heritage stofnað í lok árs 2016.
Áhersla á gæði
Frá upphafi var lagt upp með að
framleiða gæðasokka segir Oddur.
„Eftir nokkra leit vorum við svo
heppin að finna traustan fram-
leiðanda í Svíþjóð sem framleiðir
eftir ströngustu gæðastöðlum. Við
skynjuðum það í upphafi að þeir
höfðu nú ekki mikla trú á okkur en
urðu svo hissa eftir því sem leið á
árið 2017 og við héldum áfram að
panta fleiri og fleiri sokka ásamt
því að bæta við nýjum tegundum.“
Hann segir markmiðið alltaf hafa
verið að höfða til sem flestra með
litum og mynstrum. „Við hönnun
höfum við notað tákn og mynstur
með tengingu við Ísland. Sokk-
unum er skipt í tvær vörulínur,
annars vegar Ísland þar sem við
erum með fimm tegundir og hins
vegar galdrastafi þar sem við erum
með átta tegundir. Hver sokkur
er kynntur á umbúðunum með
stuttum hnitmiðuðum fróðleik.“
Góðar viðtökur
Þau segja hópinn vera frekar jarð-
bundinn og því hafi viðtökurnar
komið þeim skemmtilega á óvart.
„Söluaðilar
hafa verið
afar mót-
tæki-
legir og eru sokkarnir nú seldir
víða. Hingað til hafa erlendir ferða-
menn helst keypt sokkana og hafa
margir þeirra haft samband við
okkur þegar heim er komið af því
þeir sjá eftir því að hafa ekki keypt
fleiri pör. Við erum snögg að redda
svoleiðis lúxusvandamálum og
sendum þeim fleiri pör.“
Fram undan er að vinna í að
stækka sölunetið bæði hér heima
og vonandi erlendis. „Við erum að
vinna með alls kyns hugmyndir
að litum og mynstrum, allt eftir
straumum og stefnum. Einnig
erum við að skoða með hvaða
hætti er hægt að bjóða söluaðilum
sérhönnun en slíkt væri tilvalið
fyrir aðila sem eingöngu vilja selja
undir eigin merkjum. Þannig að
við erum bara bjartsýn á árið 2018.
Helst myndum við vilja sjá að fána-
sokkurinn okkar væri skyldueign
allra íslenskra þingmanna og
embættismanna en slíkt myndi
gefa lífinu örlítið meiri lit.“
Alla sokkana okkar má skoða
á www.reykjavikheritage.com.
Galdrastafirnir
sáðu fræjum
Hjónunum á bak við Reykjavik Heritage fannst vanta líf-
lega sokka frá íslenskum aðilum í verslanir. Þau hófu fram-
leiðslu í fyrra og selja nú sokka sína víða um land.
Litfagrir sokkar
frá Reykjavik
Heritage eru
með skemmti-
legum myndum.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Str. 36-56
Útsalan
í fullum gangi
40-50% afsláttur
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Útsalan er í fullum gangi
30-50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
20% af ýmsum öðrum vörum
88%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild: Prentmiðlamæling Gallup júl.-sept. 2017.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . jA N úA R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
1
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
7
-0
1
E
0
1
E
B
7
-0
0
A
4
1
E
B
6
-F
F
6
8
1
E
B
6
-F
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K