Fréttablaðið - 11.01.2018, Síða 38

Fréttablaðið - 11.01.2018, Síða 38
Starri Freyr Jónsson starri@365.is Hjónin Kristín Edda og Oddur Helgi stofnuðu Reykjavik Heritage ásamt vinahjónum sínum. MYND/ARON BRINK Reykjavik Heritage var stofnað fyrir rúmlega ári og einblínir á hönnun og framleiðslu á lit- fögrum og skemmtilegum sokkum sem seldir eru í sérverslunum hér á landi. Það eru hjónin Kristín Edda Sigurðardóttir sjónfræðingur og Oddur Helgi Guðmundsson vefhönnuður sem standa á bak við fyrirtækið auk þeirra Sigþórs Hilmars Guðmundssonar, bróður Odds, og konu hans, Lindu Sverris- dóttur. Sigþór og Linda eru búsett erlendis og koma lítið að daglegum rekstri fyrirtækisins en öll fjögur deila þau miklum áhuga á sokkum. Stærri markaður Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði fyrir um þremur árum í fjölskylduboði segir Kristín, þar sem verið var að ræða galdra- stafina og þýðingu þeirra. „Þar nefnir mágur minn að tilvalið væri að prenta galdrastafinn Vegvísi á sokka þar sem merking hans felur í sér að sá sem ber hann muni aldrei villast af leið í stormi eða í slæmu veðri. Það má finna skemmtilega sokka víða erlendis en okkur fannst vanta líflega sokka á markaðinn frá íslenskum aðilum. Aukinn ferðamannastraumur hefur auk þess stækkað markaðinn og þannig fannst okkur tilvalið að reyna að búa til vöru sem gæti bæði gengið fyrir Íslendinga og erlenda ferðamenn.“ Í fram- haldinu hófust þau handa við útreikninga, leit að hugsanlegum framleiðendum og seljendum og byrjuðu að kasta fram hug- myndum um hönnun á sokkum. Eftir smá forvinnu var Reykjavik Heritage stofnað í lok árs 2016. Áhersla á gæði Frá upphafi var lagt upp með að framleiða gæðasokka segir Oddur. „Eftir nokkra leit vorum við svo heppin að finna traustan fram- leiðanda í Svíþjóð sem framleiðir eftir ströngustu gæðastöðlum. Við skynjuðum það í upphafi að þeir höfðu nú ekki mikla trú á okkur en urðu svo hissa eftir því sem leið á árið 2017 og við héldum áfram að panta fleiri og fleiri sokka ásamt því að bæta við nýjum tegundum.“ Hann segir markmiðið alltaf hafa verið að höfða til sem flestra með litum og mynstrum. „Við hönnun höfum við notað tákn og mynstur með tengingu við Ísland. Sokk- unum er skipt í tvær vörulínur, annars vegar Ísland þar sem við erum með fimm tegundir og hins vegar galdrastafi þar sem við erum með átta tegundir. Hver sokkur er kynntur á umbúðunum með stuttum hnitmiðuðum fróðleik.“ Góðar viðtökur Þau segja hópinn vera frekar jarð- bundinn og því hafi viðtökurnar komið þeim skemmtilega á óvart. „Söluaðilar hafa verið afar mót- tæki- legir og eru sokkarnir nú seldir víða. Hingað til hafa erlendir ferða- menn helst keypt sokkana og hafa margir þeirra haft samband við okkur þegar heim er komið af því þeir sjá eftir því að hafa ekki keypt fleiri pör. Við erum snögg að redda svoleiðis lúxusvandamálum og sendum þeim fleiri pör.“ Fram undan er að vinna í að stækka sölunetið bæði hér heima og vonandi erlendis. „Við erum að vinna með alls kyns hugmyndir að litum og mynstrum, allt eftir straumum og stefnum. Einnig erum við að skoða með hvaða hætti er hægt að bjóða söluaðilum sérhönnun en slíkt væri tilvalið fyrir aðila sem eingöngu vilja selja undir eigin merkjum. Þannig að við erum bara bjartsýn á árið 2018. Helst myndum við vilja sjá að fána- sokkurinn okkar væri skyldueign allra íslenskra þingmanna og embættismanna en slíkt myndi gefa lífinu örlítið meiri lit.“ Alla sokkana okkar má skoða á www.reykjavikheritage.com. Galdrastafirnir sáðu fræjum Hjónunum á bak við Reykjavik Heritage fannst vanta líf- lega sokka frá íslenskum aðilum í verslanir. Þau hófu fram- leiðslu í fyrra og selja nú sokka sína víða um land. Litfagrir sokkar frá Reykjavik Heritage eru með skemmti- legum myndum. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Str. 36-56 Útsalan í fullum gangi 40-50% afsláttur Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Útsalan er í fullum gangi 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum 20% af ýmsum öðrum vörum 88% af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 18–49 ára lesa Fréttablaðið daglega. *Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild: Prentmiðlamæling Gallup júl.-sept. 2017. 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . jA N úA R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 1 1 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B 7 -0 1 E 0 1 E B 7 -0 0 A 4 1 E B 6 -F F 6 8 1 E B 6 -F E 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.