Fréttablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 36
Einkenni augn-
þurrks geta
verið sviði, rauð
og tárvot augu,
óskýr sjón,
næmi fyrir ljósi
eða þreyta í
augum.
Augnþurrkur er algengur kvilli og getur komið fram með ólíkum hætti, til dæmis
sem sviði, rauð og tárvot augu,
óskýr sjón, næmi fyrir ljósi eða
þreyta í augum. Ef augnþurrkur er
ekki meðhöndlaður getur hann
orðið verri og haft alvarlegar
afleiðingar í för með sér,“ segir
Klara Sveinsdóttir, lyfjafræðingur
hjá Ice pharma.
Hyprosan er lausasölulyf og fæst
í dropaglasi án lyfseðils í apó-
tekum og er ætlað til meðferðar
við augnþurrki.
Hver ml inniheldur 3,2
mg af hypromellósa sem
eykur seigju Hyprosan. Þetta
leiðir til þess að lausnin helst
lengur á auganu og
veitir því raka í
lengri tíma.
Meðferð með
Hyprosan er einn
dropi í hvort auga
þrisvar á dag eða
eftir þörfum.
Hægt er að nota
hvert dropaglas
af Hyprosan í
einn mánuð, þó
að lyfið inni-
haldi ekki rot-
varnarefni.
Án rotvarnarefna.
Hægt að nota
með augnlinsum.
Til meðferðar við augnþurrki
Hyprosan augndropar innihalda hypromellósa og eru ætlaðir til meðferðar við augnþurrki, þ.m.t. glæru- og tárusiggi hjá fullorðnum. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun
lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir, sjá nánari upplýsingar á www.sérlyfjaskrá.is. Nóvember 2017. SAN171101.
Crystal Group framleiðir meira af fötum en nokkurt annað fyrirtæki. Fyrirtækið býr til föt
fyrir marga stærstu seljendur heims,
eins og H&M, Gap og L Brands, sem
á Victoria’s Secret. Crystal Group
stefnir ekki á að bæta við sjálfvirkum
saumavélmennum á næstunni og
veðjar á að vinnuaflið í Suðaustur-
Asíu haldi áfram að vera ódýrara
en sjálfvirkar saumavélar, þrátt
fyrir að laun séu að hækka í Kína og
umræðan um að sjálfvirkar vélar
taki brátt við ýmiss konar handa-
vinnu verði sífellt meira áberandi.
Þetta kom fram í viðtali við
Andrew Lo, framkvæmdastjóra
Crystal Group, sem birtist á vef Fin-
ancial Times. Lo sagði að hátækni-
saumavélmenni væru áhugaverð og
gætu breytt því hvernig sum fyrir-
tæki framleiða föt, en í bili séu þau
mun dýrari í rekstri en starfsfólk.
Fjölga starfsfólki verulega
Fyrirtækið stefnir að því að fjölga
starfsfólki sínu í Bangladess og Víet-
nam um 10% á ári næstu árin. Mikið
af fatnaði er framleitt í löndunum
tveimur, en launin þar eru með
þeim lægstu í Asíu.
Eins og er koma um tveir þriðju af
sölutekjum Crystal Group af fatnaði
sem er framleiddur í Bangladess,
Víetnam, Kambódíu og Srí Lanka.
Þessi lönd hafa laðað fatafram-
leiðendur að sér nýlega eftir að
framleiðslukostnaður jókst í Kína,
en Kína er enn um sinn stærsti fata-
framleiðandi heims.
Vélmennin geta ekki tekið við
Margir fylgjast vandlega með
hugsanlegum áhrifum sjálfvirkra
vélmenna á fataiðnaðinn. Iðnaður-
inn er lífsnauðsynlegt haldreipi fyrir
milljónir lítið menntaðra verka-
manna í Asíu og annars staðar, þó
oft sé illa farið með starfsfólk og
mörg starfanna séu hættuleg.
Árið 2016 varaði Alþjóðavinnu-
málastofnunin við því að á næstu
áratugum gætu vélmenni tekið við
meirihlutanum af störfum í vefn-
aðarvöruiðnaði, fataiðnaði og skó-
framleiðslu í löndunum Indónesíu,
Víetnam og Kambódíu. Til að þetta
starfsfólk geti fært sig yfir í önnur
og betri störf þurfi því að bjóða því
þjálfun sem fyrst.
En Crystal Group ætlar ekki að
skipta starfsfólki út fyrir vélmenni.
Að minnsta kosti ekki í bili. Ein
ástæða fyrir því er að þótt vélmenni
henti vel í ýmsum öðrum iðnaði,
þar sem þau vinna með hörð efni
eins og málm eða plast, eiga þau
mjög erfitt með mjúk efni, eins og
vefnaðarvöru. Þannig efni teygjast
og aflagast þegar þau eru saumuð og
það eiga vélmenni mjög erfitt með
að ráða við.
Stöðug þróun
Nokkur fyrirtæki telja sig þó hafa
fundið lausn á þeim vanda. Fyrir-
tækið Sewbo meðhöndlar efni á
þann hátt að þau verða stíf svo hægt
sé að sauma þau saman auðveldlega,
en svo mýkjast þau ef þau eru skoluð
með heitu vatni.
Annað fyrirtæki, SoftWear
Automation, hannaði stóra sjálf-
virka saumavél sem sér þegar það
þarf að laga efni til um leið og hún
saumar og lagar það eftir þörfum.
SoftWear segir að ein slík vél getið
framleitt jafn marga stuttermaboli á
klukkutíma eins og sautján manns.
Forstjóri SoftWear viðurkennir
þó að saumavélin sé ekki ódýrari
en vinnuaflið í Bangladess. Vélin
var líka hönnuð til nota í Banda-
ríkjunum, þar sem launin eru mun
hærri og vélin gæti komið að meira
gagni.
Þannig að í bili virðist vélmenna-
bylting ekki á næsta leiti í fata-
framleiðslu og þó enginn viti hvað
framtíðin ber í skauti sér stefnir í að
föt verði áfram að mestu framleidd í
Asíu, af mannfólki.
Stærsti fataframleiðandinn
veðjar ekki á vélmenni
Stór hluti af fötum sem eru seld á Vesturlöndum er framleiddur í asískum
fataverksmiðjum. MYNDIR/NORDICPHOTOS/GETTYaV
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
Útsalan er í fullum gangi
30-50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
20% af ýmsum öðrum vörum
8 KYNNINGaRBLaÐ FÓLK 1 1 . ja N úa R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
1
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
6
-E
E
2
0
1
E
B
6
-E
C
E
4
1
E
B
6
-E
B
A
8
1
E
B
6
-E
A
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K