Fréttablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 10
fyrir að VG hafi ekki verið jákvætt fyrir samstarfi við Viðreisn í lands- málunum. Samfylkingin mun líklega bjóða fram óbreyttan lista eða því sem næst, enda gefa allir sitjandi borgar- fulltrúar kost á sér aftur með Dag B. Eggertsson í forystu. Miðflokksmenn eru einnig harð- ákveðnir í að bjóða fram og hyggjast stofna Reykjavíkurfélag í lok mánað- arins. Þá stefna bæði Alþýðufylking- in og Flokkur fólksins að framboði í borginni. Dögun er enn að íhuga málið. Borgarfulltrúum verður fjölgað í vor úr 15 í 23 eftir lagabreytingu. Breytingin hefur í för með sér að flokkarnir þurfa að bjóða fram lista með 46 frambjóðendum. Ætla má að það geti reynst sumum af minni flokkunum erfitt að fylla listana en verði fjórtán flokkar í framboði þýðir það að á sjöunda hundrað manna verði á framboðslistum fyrir kosningarnar. adalheidur@frettabladid.is 1990 kr.stk. Kjötkompaní Bolognaise, 1 kg Krónan mælir með! Stjórnmál Línur eru langt frá því skýrar fyrir borgarstjórnarkosning- arnar í vor. Fjórtán flokkar íhuga að bjóða fram lista í Reykjavík og margir þeirra funda í kringum næstu mánaðamót til að ákveða hvernig raðað verði á lista. Leið- togakjör Sjálfstæðismanna fer fram 27. janúar næstkomandi. Í framboði verða borgarfulltrúarnir Áslaug Friðriksdóttir og Kjartan Magnússon, Eyþór Arnalds, kaup- sýslumaður og fyrrverandi odd- viti Sjálfstæðismanna í Árborg, Vil- hjálmur Bjarnason fyrrverandi alþingismaður og Viðar Guðjohn- sen athafnamaður. Margir vilja einnig fram fyrir Pírata. Fjórir Píratar staðfestu við Fréttablaðið að þau hygðu á fram- boð til forystu; Alexandra Briem, Arnaldur Sigurðsson, Svafar Helga- son og Þórlaug Ágústsdóttir. Hall- dór Auðar Svansson hyggst ekki gefa aftur kost á sér. „Það er mikill áhugi á framboði í borginni í stórum hópi kvenna,“ segir Sóley Tómasdóttir aðspurð um kvennahópinn sem hittist á dögun- um til að ræða kvennaframboð. Sjálf útilokar Sóley ekki framboð, verði af því að konurnar bjóði fram lista. Þótt Sveinbjörg Birna Svein- björnsdóttir hafi sagt sig úr Fram- sóknarflokknum er hún enn í fullu fjöri og ekki á því að setjast í helgan stein. Hún útilokar þó fram- boð með bæði Miðflokki og Fram- sókn en segist hafa rætt málin með baklandi sínu og  yfirlýsingar sé að vænta frá sér í lok mánaðarins. Guðfinna Jóhanna Guðmunds- dóttir, borgarfulltrúi og Miðflokks- kona, ætlar hins vegar að snúa sér að lögmennsku að loknu yfirstand- andi kjörtímabili. Þá er Ingvar Mar Jónsson, flug- maður og formaður Framsóknar- félags Reykjavíkur, sagður stefna á oddvitasæti Framsóknar í borginni. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá leitar Viðreisn nú samstarfs við önnur frjálslynd öfl á sveitar- stjórnarstiginu og hafa óformleg samtöl farið fram milli forsvars- manna Viðreisnar og Bjartrar fram- tíðar um samstarf. Björt framtíð er mikill borgarflokkur og hefur allt frá stofnun verið í meirihlutasamstarfi í borginni. Fyrst undir merkjum Besta flokksins og núna í meiri- hlutasamstarfi með Samfylkingu, Vinstri grænum og Pírötum. Líf Magneudóttir vill leiða lista VG í borginni. Hún segir meiri- hlutasamstarfið hafa gengið vel og bindur vonir við að það haldi áfram eftir kosningar. Aðspurð um afstöðu til samstarfs með Viðreisn segist Líf alls ekki vilja útiloka samstarf, þrátt Helstu leiðtogaefnin í Reykjavíkurborg Stjórnmálaflokkarnir leita nú að framboðsefnum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Endurnýjun verður mismikil innan flokk- anna í borginni. Engin endurnýjun er í kortunum hjá Samfylkingunni en nýr leiðtogi gæti tekið við hjá Sjálfstæðisflokki og Pírötum. Borgarbúar hætti að borga fyrir aumingjavæðingu Leigusalinn og athafnamaðurinn Viðar Guð- johnsen er sjálfsagt lengst til hægri af þeim sem sækjast eftir oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann leggur þunga áherslu á að skatt- greiðendum sé ekki sendur reikningurinn vegna afleiðinga þess sem hann kallar „aumingja- væðingu“ í samfélaginu. „Það sem hræðir mig núna er að Reykjavík ráði ekki við fjármál sín. Jafnaðarmenn vilja alltaf vera ofan í vösum annarra, ræna skatt- borgarann. Með miðstýringu vilja þeir hjálpa öllum. Það er ekki nóg að vera góður við alla og taka helst að sér allan heiminn. Þetta hugarfar jafnaðarmanna mun koma okkur í koll og er þegar byrjað að gera það. Ég verð bara að segja það að þessi undirlægjuháttur er farinn að smita og heltaka Sjálfstæðisflokkinn sem á að gera út á frelsi einstaklingsins og að hann fái að njóta sín. Það vantar góðan leiðtoga með þessa sýn. Einhvern sem getur gert Sjálfstæðisflokk- inn eins og hann á að vera.“ – þþ Fimm verða í kjöri í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og fjögur íhuga að bjóða sig fram til forystu fyrir Pírata. Færri nöfn eru komin fram fyrir aðra flokka. Minnst tólf flokkar íhuga að bjóða fram lista. Dagur B. Eggertsson og Líf Magneudóttir eru einu oddvitarnir sem gefa aftur kost á sér til forystu. Ingvar Mar Jónsson Á útleIð: Guðfinna Jóhanna Guð­ munds­ dóttir Nicole leigh Mosty Á útleIð: Björn Blöndal Áslaug María Frið­ riksdóttir eyþór Arnalds Kjartan Magnús­ son Viðar Guð­ johnsen Vilhjálmur Bjarnason Á útleIð: Halldór Halldórs­ son Alexandra Briem Arnaldur Sigurðar­ son Svafar Helgason Þórlaug Ágústs­ dóttir María Rut Kristins­ dóttir Pawel Bartozek Dagur B. eggertsson Ö nn ur Fr am bo ð Sveinbjörg Birna Svein­ björns­ líf Magneu­ dóttir Sóley tómas­ dóttir Á útleIð: Halldór Auðar Svansson ✿ Þessi hafa ákveðið sig eða íhuga framboð í borginni ekkert efni komið fram ekkert efni komið fram PróFkjÖr Fulltrúaráð Sjálfstæðis- flokksins í Vestmannaeyjum felldi í gær tillögu um að valið yrði á fram- boðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar með prófkjöri. Kosið var tvisvar og var tillagan felld í bæði skiptin. Elís Jónsson, vélstjóri á Herjólfi, er einn þeirra sem var mjög áfram um prófkjör og var hann mjög von- svikinn eftir fundinn. Svo mjög að hann lýsti yfir framboði í prófkjöri flokksins áður en lá ljóst fyrir að af prófkjöri yrði. „Bæjarstjórinn hefur sagst vera til í allt en það er eins og hugur fylgi ekki máli þar sem hann hefur ekki svarað áskorunum um að efnt verði til prófkjörs,“ segir Elís. „Það er smá óánægja í gangi sem skýrist af því að afmarkaður hópur fólks er að þrjóskast við að halda prófkjör sem er að vísu hin lýð- ræðislega leið sem almennt er farin hjá Sjálfstæðisflokknum og í raun er alveg einstakt að þetta hafi ekki verið gert í Eyjum síðan 1990.“ Elís segist telja víst að bæjarbúar vilji flestir prófkjör en vill ekki ganga svo langt að segja að í fram- boði hans felist vantraust á Elliða. „Hann hefur ekki nokkurn skap- aðan hlut að hræðast við þetta og þetta er albesta leiðin fyrir hann til að fá þá endurnýjað umboð.“ Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í tólf ár. Hann sagði í samtali við Frétta- blaðið áður en atkvæði voru greidd um prófkjör að yfirlýsing Elísar breyttu engu hvað hann varðaði. „Það er öllum frjálst að gefa kost á sér ef af prófkjöri verður. Fólk þekkir mín störf og ég hef gefið út yfirlýsingu um að ég gefi kost á mér áfram, óháð því hvernig valið verð- ur á lista. Það stendur og að öðru leyti hef ég ekkert um orð þessa annars ágæta manns að segja.“ – þþ Vélstjórinn á Herjólfi fær ekki prókjör í Eyjum elís Jónsson Borgarfulltrúum verður fjölgað í vor úr 15 í 23 eftir lagabreytingu. Breytingin hefur í för með sér að flokk- arnir þurfa að bjóða fram lista með 46 frambjóðendum. Það er mikill áhugi á framboði í borg- inni í stórum hópi kvenna. Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Vinstri grænna. 14 flokkar íhuga að bjóða fram lista í borginni í næstu sveitar- stjórnarkostningum. Sjálfstæðismenn í eyjum verða ekki með prófkjör. FRéttABlAðIð/PJetuR 1 1 . j a n ú a r 2 0 1 8 F I m m t U D a G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð 1 1 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B 7 -0 6 D 0 1 E B 7 -0 5 9 4 1 E B 7 -0 4 5 8 1 E B 7 -0 3 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.