Fréttablaðið - 11.01.2018, Side 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Með því að
skila umsögn
um umsækj-
endur um
embætti
héraðsdóm-
ara rétt áður
en dómar-
arnir áttu að
hefja störf var
settum
ráðherra í
reynd stillt
upp við vegg.
Þetta kann að þykja róttæk kenning – en dómara-skipan er ekki einkamál Sjálfstæðismanna. Hún er ekki einu sinni einkamál lögmanna heldur
varðar alla landsmenn. Það er ein forsendan fyrir heil-
brigðu þjóðlífi að dómstólar séu sjálfstæðir og lausir við
íhlutun hins pólitíska valds, klíkuvalds og auðvalds.
Það er góðra gjalda vert hjá forsætisráðherra að
skipa ágæta nefnd með ágætu fólki um að auka traust á
stjórnmálum. En óneitanlega gerir ýmislegt nefndinni
erfitt fyrir. Til dæmis þetta: Dómsmálaráðherra hefur
fengið á sig dóm Hæstaréttar um að hún hafi brotið
lög við skipan dómara í Landsrétt – en situr þó enn. Og
ekkert fararsnið á henni enda nýtur hún trausts for-
sætisráðherra.
Og enn lætur Sjálfstæðisflokkurinn eins og skipan
dómara sé innanflokksmál þar á bæ.
Þetta er áhyggjuefni. Það hefur verulega reynt á
dómstóla hér á undanförnum árum vegna flókinna
fjársvikamála sem komu upp við Hrunið. Auðugir sak-
borningar berjast um á hæl og hnakka við að ónýta mál
á hendur sér og hafa reynt með öllum ráðum að koma í
veg fyrir eðlilega málsmeðferð. Þessir aðilar vilja eflaust
hafa hönd í bagga með því hverjir dæma í fjársvika-
málum sem þeim tengjast.
Við vitum líka að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki ein-
skært lífsskoðunarfélag heldur rammgert tengslanet
auðs og valda og að auðmenn hafa þar mikil ítök.
Ráðningar dómara þurfa að vera hafnar yfir vafa og
því er afar óheppilegt fyrir dómsvaldið, rannsóknar aðila
og þjóðina almennt, að Sjálfstæðismenn skuli hunsa
niðurstöður hæfnisnefnda til að koma að þóknanlegri
dómurum eða fara að niðurstöðum með hundshaus.
Mikilvægt er að standa vörð um þrígreiningu ríkis-
valdsins – og sjálfstæði dómstóla gagnvart ásælni hins
pólitíska valds og auðmanna sem sjá hag sinn í því að
vita af vinsamlegum dómurum að störfum. Þetta snýst
nefnilega um traust: Almenningur verður að geta treyst
því að dómarar landsins dæmi eftir lögum burtséð frá
tengslum við Flokk og fjárplógsmenn.
Þó að hitt sé vissulega góðra gjalda vert: að skipa
ágætar nefndir með ágætu fólki.
Þetta snýst um traust
Guðmundur
Andri Thorsson
alþingismaður
Almenningur
verður að geta
treyst því að
dómarar
landsins
dæmi eftir
lögum
burtséð frá
tengslum við
Flokk og
fjárplógs-
menn.
lyftarar og hillukerfi
www.velaborg.is velaborg@velaborg.is s. 414 8600
V
Sögulegur frambjóðandi
Viðar Guðjohnsen sker sig nokk
uð áberandi úr hópi þeirra sem
gáfu kost á sér í leiðtogaprófkjöri
Sjálfstæðisflokksins. Viðar hefur
um árabil hringt nánast daglega í
símatíma Útvarps Sögu og viðrað
þar skoðanir sem hafa fallið í
grýttan jarðveg. Viðar kynnir
sig jafnan sem „harðlínu hægri“
og amast ekki síst við feitu fólki
og fíklum sem koma sér upp lífs
stílssjúkdómum með tilheyrandi
kostnaði fyrir „skattborgarann“.
Þá hefur hann meðal annars talað
af sannfæringu fyrir fjölkvæni
og að flugeldar, sem hann kallar
„dýraníð“, verði bannaðir.
Enginn Sögumaður
Viðar nýtur takmarkaðra vin
sælda hjá öðrum hlustendum og
innhringjendum og er ekki lík
legur til þess að sækja fylgi í þeirra
raðir. Öryrkjar og eldri borg
arar eru áberandi í því mengi og
sárnar mörgum hverjum harkaleg
viðhorf frambjóðandans til þeirra
sem minna mega sín. Sjálfsagt
væri ráð fyrir Viðar að byrja að
strjúka „sögufólkinu“ rétt. Það
vegur nefnilega þyngra en margan
grunar. Þannig fleyttu hlustendur
Pétri Gunnlaugssyni, umsjónar
manni símatímans, í stjórnlaga
ráð á sínum tíma og talið er að
velgengni Miðflokksins og Flokks
fólksins í alþingiskosningunum
megi mikið til rekja til þess þeir
hafa notið mikillar velvildar hjá
hlustendum Sögu.
thorarinn@frettabladid.is
Orðalag bréfs Guðlaugs Þórs Þórðarsonar til dómsmálaráðherra í kjölfar skip-unar átta héraðsdómara var meira en lítið athyglisvert. Settur ráðherra telur mikilvægt að koma leikmönnum að umsagnarferlinu um dómara að danskri
fyrirmynd til að draga úr „hættu á klíkumyndun í vali
dómara“.
Þetta orðalag er ekki tilviljun vegna þess að þeir
sem kynna sér umsagnir dómnefndarinnar um hæfni
dómara við skipanir síðustu ára, sérstaklega í Hæsta-
rétt Íslands, sjá í hendi sér að dómnefndin hefur lagt
sig fram við að veita þeim umsækjendum sem eru
þóknanlegir góða umsögn en útiloka aðra sem eru
ekki „í klíkunni“ þótt þeir séu hæfari. Afleiðingar
þessa eru mun alvarlegri en ætla mætti við fyrstu sýn
því með þessu er smátt og smátt búið að veikja Hæsta-
rétt. Í réttinn eiga að veljast færustu lögfræðingar
þjóðarinnar og stofnunin á að búa yfir besta mögu-
lega mannauði sem er til staðar úr stétt lögfræðinga
hverju sinni.
Þegar lögum um dómstóla var breytt árið 2010 var
ráðherra gert ómögulegt að fara gegn niðurstöðu dóm-
nefndarinnar nema bera þá ákvörðun undir Alþingi.
Atburðarás síðustu vikna hefur leitt í ljós að þetta fyrir-
komulag getur sett ráðherrann, sem fer með veitingar-
valdið og ber pólitíska ábyrgð á skipuninni, í vonlausa
stöðu. Núverandi dómnefnd undir forystu Jakobs
Möllers lagði sig fram um að útiloka tiltekna umsækj-
endur án skýringa, skilaði niðurstöðum allt of seint
og svaraði síðan með hroka þegar settur dómsmála-
ráðherra vildi gera athugasemdir við umsögn hennar.
Þetta eru ekki boðleg vinnubrögð hjá fagfólki.
Eins og settur dómsmálaráðherra rekur í bréfi sínu
var honum nauðugur sá kostur að fylgja áliti nefndar-
innar og skipa þá átta umsækjendur sem nefndin taldi
hæfasta. Jafnvel þótt hann hefði engar forsendur til
að meta hvort sú ákvörðun væri rétt þar sem nefndin
veitti ekki fullnægjandi svör við athugasemdum hans.
Eftir lestur svarbréfs dómnefndarinnar er maður engu
nær um það hvernig nefndin komst að sumum niður-
stöðum, eins og að telja mann með 20 ára dómara-
reynslu minna hæfan en dómara sem hefur starfað sem
settur dómari í átta ár.
Í ljósi dóma Hæstaréttar í málum tveggja umsækj-
enda um dómaraembætti við Landsrétt sem kveðnir
voru upp 19. desember 2017 liggur fyrir að íþyngjandi
rannsóknarskylda er lögð á dómsmálaráðherra sem
vill víkja frá umsögn dómnefndarinnar. Með því að
skila umsögn um umsækjendur rétt áður en héraðs-
dómararnir áttu að hefja störf var settum ráðherra
í reynd stillt upp við vegg. Ef hann hefði farið gegn
áliti nefndarinnar án þess að fyrir lægi sambærilegt
umsagnarferli þá hefði það bakað ríkinu bótaskyldu
gagnvart þeim umsækjendum sem nefndin taldi
hæfasta en fengu ekki embætti.
Það má taka undir það sjónarmið að brýnt sé að
breikka þann hóp sem kemur að tilnefningum í
dómnefndina til að draga úr hættu á klíkumyndun
og minnka áhrif dómaranna sjálfra á val á samstarfs-
mönnum sínum. Ekki verður unað við óbreytt ástand.
Klíkumyndun
1 1 . j a n ú a r 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð
SKOÐUN
1
1
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
6
-C
B
9
0
1
E
B
6
-C
A
5
4
1
E
B
6
-C
9
1
8
1
E
B
6
-C
7
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K