Fréttablaðið - 11.01.2018, Síða 30
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Mér finnst skemmti-legt að blanda saman ólíkum stílum og klæðist
stundum fínum pels við mjög
grófa skó. Ég er mikið í svörtum
fatnaði en reyni þó að brjóta hann
upp með einhverjum lit, svo sem
grænum pels eða töff stutterma-
bol í lit,“ segir Anna Katrín Richter
þegar hún er spurð út í hvernig
fatastíll hennar sé.
„Ég spái stundum í tískustrauma
og á það til að fylgjast með hönn-
uðum og ákveðnum fatamerkjum
á Instagram. Síðan kíki ég af og til
á hin og þessi tískublogg,“ segir
Anna, sem vinnur við umönnun
og kann því vel. Hún starfar einnig
sem fyrirsæta fyrir Eskimo Models.
„En aðaláhugamálið mitt er að
semja lög, syngja og spila á gítar,“
greinir hún frá.
Strigaskór með hæl
á bannlistanum
Fötin sín kaupir Anna aðallega
í verslunum á borð við Galleri
Sautján, Zara og H&M. „Síðan er ég
nýlega farin að kaupa föt á ASOS,
sem er verslun á netinu og ótrúlega
sniðug síða. Svo finnst mér alltaf
gaman að fara í „vintage“ búðir og
finna gullmola sem eru sjaldgæfir,“
segir hún brosandi.
Þegar Anna er spurð hvaða föt
séu í mestu uppáhaldi kemur í ljós
að hún er mjög hrifin af hettupeys-
um og pelsum. En hvernig fötum
myndi hún aldrei ganga í? „Það
sem ég tel vera algjört „fashion
faux pas“ eru strigaskór með háum
hæl,“ segir hún og brosir.
Uppáhaldshönnuðir Önnu eru
Cristobal Balenciaga og Alexander
Wang en Kate Moss og Olsen-tví-
eykið eru hennar helstu tískufyrir-
myndir.
Heyrðist í efninu um allan bæ
Anna þarf ekki að hugsa sig lengi
um þegar hún er innt eftir því hvað
séu bestu og verstu fatakaupin.
„Ég verð að segja að bestu kaupin
séu Bonnie boots frá UNIF, verstu
kaupin eru vínil-buxur frá ASOS.
Ég gat hreinlega ekki gengið í þeim
án þess að allur bærinn heyrði í
efninu smella saman. Hins vegar
gæti ég ekki verið án græna pelsins
sem ég keypti í Galleri Sautján,“
segir Anna að lokum.
Færi aldrei í
háhælaða strigaskó
Anna Katrín Richter hefur fjölbreyttan fatastíl og
finnst gaman að blanda saman fötum í ólíkum stíl.
Þykkar hettupeysur og pelsar eru í mestu uppáhaldi.
Anna Katrín heldur mikið upp á græna pelsinn sem hún fékk í Galleri Sautján.
MYNDir/ViLHELM
Úlpuna keypti Anna Katrín á ASOS-síðunni sem hún segir mjög sniðuga.
Anna Katrín poppar svartan fatnað
upp með litríkum bolum eða yfir-
höfnum. Kate Moss og Olsen-tvíeykið eru helstu tískufyrirmyndir Önnu Katrínar.
ÚTSALA
KRINGLUNNI | 588 2300
40%
70%
AFSLÁTTUR
T I L
Útsala
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
6 KYNNiNGArBLAÐ FÓLK 1 1 . jA N ÚA r 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
1
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
6
-E
9
3
0
1
E
B
6
-E
7
F
4
1
E
B
6
-E
6
B
8
1
E
B
6
-E
5
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K