Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 34
Grundvöllur fyrir nánast allri listsköpun er texti. Héraðið okkar er ríkt af bókmennta- arfi, hér voru bæði þekkt skáld eins og Guðmundur Böðvarsson og Halldóra B. Björnsson en einnig minna þekkt skáld sem sömdu afar góða texta. Fyrir nokkrum árum leituðum við til Tónlistarskóla Borgarfjarðar eftir samstarfi um listsköpun ungs fólks á grund- velli borgfirskrar bókmenningar og svo eru árlega tónleikar með afrakstrinum,“ útskýrir Guðrún. Nemendur skólans munu túlka sérvalin ljóð við eigin tónsmíðar og flytja á tónleikum á sumardaginn fyrsta næstkomandi. Í ár, á hundrað ára afmælisári fullveldis Íslands, er þemað „Ísland og ástin til landsins“. „Við höfum valið tuttugu og sjö kvæði, eftir 22 höfunda, 9 konur og 13 karla. Elsti höfundurinn er Júlíana Jónsdóttir, fædd 1838, og yngstur er Ívar Björnsson, fæddur 1929. Vinnuferlið er þannig að krakkarnir kynna sér ljóðin og höfundana, hvað þeir sömdu og hvernig. Þegar þau lesa ljóðin finna þau blæbrigði og takt í textanum; hvar er gleði og hvar harmur og tregi. Svo semja þau verkin undir handleiðslu kennara sinna, útsetja þau og flytja sjálf. Tónleikarnir verða opnir almenningi og allir vel- komnir,“ segir Guðrún. „Það er vart hægt að lýsa með orðum áhrifunum af því þegar ung manneskja kemur með ferskan huga og ómótaðan að kvæði sem var skrifað fyrir margt löngu, vinnur með það og setur í tóna. Um leið velta nemendur líka fyrir sér, hvað þetta hugtak sjálfstæði þýðir og hvert er mikilvægi þessa viðburðar 1. desember 1918. Þetta á erindi við ungt fólk í dag og íslensk bókmenning á reyndar alltaf erindi við alla.“ Ljóðaheftið mun liggja frammi í Safnahúsinu og tónleikarnir verða í Safnahúsi kl. 15.00 þann 19. apríl. Ísland og ástin til landsins Nemendur Tónlistarskóla Borgarfjarðar túlka ættjarðar- ljóð í tónum í vor, í tilefni 100 ára fullveldis. Guðrún Jóns- dóttir, forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar, segir ljóðin eiga erindi til unga fólksins. Ráðstefna um áhrif skóla-halds á Hólum, Frá fullveldi til framtíðar, verður haldin að Hólum í Hjaltadal í tilefni 100 ára fullveldis. Erindi á ráð- stefnunni munu varpa ljósi á áhrif Hólamanna á umhverfi sitt með hliðsjón af sjálfstæði, byggða- þróun, menntunarstigi og tækni- framförum. Þetta verður reifað í málstofum með yfirskriftinni: sjálfstæði, byggðaþróun, menntun og tækniframfarir. Ráðstefnan verður öllum opin. Frá fullveldi til framtíðar Sögur – verðlaunahátíð barnanna verður haldin í Eldborgarsal Hörpu sunnu- daginn 22. apríl. Sýnt verður frá hátíðinni í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsendingin kl. 20.00. Á hátíðinni verðlaunum við alls konar sögur fyrir og eftir krakka. Bókaverðlaun barnanna verða veitt og við fáum að heyra og sjá hvað krökkum fannst standa upp úr á barnamenningarárinu 2017, t.d. rappari ársins, leiksýning ársins og lag ársins. Sögur – verðlaunahátíð barnanna  Jón Gunnar er ritstjóri Vísindavefsins en þangað leita margir eftir svörum. Jón Gunnar Þorsteinsson, bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins, segir að sérstök áhersla verði lögð á að svara spurningum um allt sem tengist á einhvern hátt vísindum og árinu 1918, hvort sem er hér á landi eða erlendis. „Inn í þennan flokk getur hver sem er sent inn spurningar sem vísinda- og fræði- menn við Háskóla Íslands og víðar munu síðan svara. Við hvetjum sérstaklega áhugasama nemendur og kennara í grunn- og framhalds- skólum til að kynna sér þetta verkefni en bekkir geta sent okkur inn spurningar sameiginlega. Einn- ig hvetjum við allan almenning til að senda inn spurningar af þessu tilefni,“ segir Jón Gunnar. Hann segir að áður hafi t.d. verið spurt um frostaveturinn mikla og spænsku veikina. „Nú viljum við einbeita okkur að vísindunum. Er til dæmis eitthvað í samtímanum sem stofnun fullveldis 1918 hefur haft áhrif á? Einnig má spyrja um ótengda atburði eins og hver fékk Nóbelsverðlaun í eðlisfræði þetta ár og fyrir hvað. Árið 1918 var fyrri heimsstyrjöldinni að ljúka og ýmislegt sem tengdist vísindum var notað í stríðinu eins og sinneps- gas. Hvað var fólk að hugsa um á þessum tíma eða gera?“ spyr Jón Gunnar og bendir á að ungt fólk hafi verið mjög duglegt að senda Vísindavefnum spurningar frá því hann var stofnaður. „Við reynum að svara öllum spurningum sem berast þótt sumir þurfi kannski að bíða lengur en aðrir eftir svari. Spurningarnar geta verið flóknar. Við fengum styrk til að vinna að þessu verkefni og getum einbeitt okkur að því. Mark- miðið er að fjalla almennt um það sem átti sér stað árið 1918 og um leið að vekja áhuga fólks á vísindum og fræðum almennt,“ segir hann. „Þá höfum við verið í góðu sam- starfi við Stofnun Árna Magnússon- ar í íslenskum fræðum og ætlum að veita svör er tengjast handritum og handritamenningu á afmælisárinu. Stofnunin verður með handritasýn- ingu á árinu. Ég vona að við getum vakið áhuga fólks á árinu 1918 og veitt um leið fróðleik og jafnvel sýnt öðruvísi mynd en við höfðum áður af þessu ári.“ Svara spurningum um árið 1918 Vísindavefurinn fjallar um hvers konar vísindi og hefur verið í uppbyggingu frá árinu 2000. Á þessu ári var stofn- aður sérstakur flokkur í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands. Flokkurinn ber heitið „1918“. Á fullveldisvorhátíðinni í Sundlaug Akureyrar verður boðið upp á fjölmarga ólíka viðburði sem allir hafa það að markmiði að bregða fjölbreyttu ljósi á hugtakið fullveldi og þannig að þeir höfði til breiðs aldurshóps. Á kafi í fullveldi – viðburður í Sundlaug Akureyrar  Sýningin Verksmiðjustúlkan Jana í Höfða eða Júlíana Andr-ésdóttir eins og hún hét réttu nafni fer fram í Iðnaðarsafninu á Akureyri. Jana í Höfða er sögumað- ur eða samnefnari fyrir líf og störf þeirra er unnu á vélunum eins og það var kallað frá upphafi vélvæð- ingar í ullariðnaði á Gleráreyrunum árið 1897 og langt fram eftir síðustu öld. Sýningin er byggð að hluta til á viðtali sem tekið var Jönu. 10. febrúar - 8. desember Verksmiðjustúlkan Jana í Höfða  28. apríl - 19. ágúst 22. apríl 20. maí Kammerkór Norðurlands flytur nýja og nýlega íslenska tónlist sem að stærstum hluta hefur verið samin eða útsett fyrir kórinn og gefin var út á geisladiskinum Ljúflingsmál. Þar á meðal tvö lög við verðlaunaljóð sem ort voru í tilefni af lýðveldis- hátíðinni 1944, „Hver á sér fegra föðurland“ og „Land míns föður“, hið þriðja er „Ísland ögrum skorið“. Tónleikarnir fara fram á Húsavík þann 24. febrúar og á Akranesi 25. febrúar. 24. og 25. febrúar Kammerkór Norðurlands  Listasafn Akureyrar stendur að sýningu 10 ólíkra myndlistar-manna á verkum sem gerð eru sérstaklega í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands. Útisýning sem sett verður upp á völdum stöðum í miðbæ Akureyrar. Markmiðið er að sýna nýja hlið á stöðu full- veldis Íslands á okkar tímum og fá áhorfendur til að velta fyrir sér hug- myndum, útfærslum og fjölbreyttum sjónarhornum tengdum fullveldinu. 28. apríl - 19. ágúst Fullveldið endurskoðað 4 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . JA N úA R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RföGNum SAmAN 1 1 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B 6 -D A 6 0 1 E B 6 -D 9 2 4 1 E B 6 -D 7 E 8 1 E B 6 -D 6 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.