Fréttablaðið - 11.01.2018, Page 52

Fréttablaðið - 11.01.2018, Page 52
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 5 9 1 8 R e n a u lt K a n g o o 5 x 2 0 j a n RENAULT KANGOO DÍSIL, 1,5 L, 90 HESTÖFL. NÚ Í FYRSTA SINN SJÁLFSKIPTUR Verð: 2.379.000 kr. án vsk. 2.950.000 kr. m. vsk. Eyðsla 4,3 l/100 km* RENAULT KANGOO RAFBÍLL NÝ STÆRRI RAFHLAÐA - 33 KWH UPPGEFIN DRÆGNI 270 KM** Verð: 3.750.000 kr. *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m lei ða nd a um e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tri / **S am kv æ m t u pp ge fn um tö lu m fr am lei ða nd a um d ræ gn i v ið b es tu m ög ul eg u að st æ ðu r ( NE DC ). RENAULT KANGOO TVÆR NÝJUNGAR Renault atvinnubílar hafa slegið í gegn með hagstæðu verði og ríkulegum búnaði. Nú bjóðum við tvær spennandi nýjungar á þessum vinsæla sendibíl. Kangoo með dísilvél og sjálfskiptingu og Kangoo EV með stærri rafhlöðu. www.renault.is 100% RAFMAGN KviKmyndir Svanurinn HHHHH Leikstjórn: Ása Hjörleifsdóttir Aðalhlutverk: Gríma Valsdóttir, Þur- íður Blær Jóhannsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson Ása Hjörleifsdóttir sýnir ákveðna dirfsku með því að gera sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd eftir skáld- sögunni Svanurinn eftir Guðberg Bergsson. Góðu heilli tekst henni frábærlega upp og flýgur á vængjum Svansins beinustu leið í hóp áhuga- verðustu kvikmyndaleikstjóra landsins. Bók Guðbergs er áleitin, eftir- minnileg og falleg en um leið óvæg- in. Hún er ekki sú einfaldasta til þess að laga að kvikmyndaforminu en þegar Ásu tekst best upp fangar hún þann galdur sem fólginn er í texta Guðbergs af stakri snilld. Eini raunverulegi gallinn við þessa heillandi kvikmynd liggur í vali á frásagnarhætti. Í sögu Guð- bergs vomaði fjarlægur og alvitur sögumaðurinn hátt yfir persónun- um og sögusviðinu. Ása velur þann kost að draga sjónarhornið niður á jörðina en handritið er samt í viðj- um texta Guðbergs sem gerir fram- vinduna á stundum áberandi kafla- skipta. Dálítið eins og tekinn sé fyrir einn kafli og síðan flett yfir í annan. Frásögnin höktir þó ekki en þetta truflar stundum flæðið sem þess á milli er svo undurljúft og seiðandi. Níu ára stúlka er send í sveit þar sem hún fær að kynnast því hversu miskunnarlaust lífið er í raun og hversu margbrotin mannssálin er þar sem gott og illt takast á í hverju hjarta. Lífið kviknar og dafnar í fal- legri náttúrinni en dauðinn er aldrei langt undan og yfir fegurðinni hvílir angurvær feigð. Myndin líður áfram með hægð. Á yfirborðinu virðist stundum lítið um að vera en á meðan gerj- ast sagan og persónurnar í þungri undiröldu þar sem tilfinningarnar ólga. Myndin er þannig firnasterk í látleysi sínu, smýgur inn í vitund áhorfandans og leikur þar mjúklega á strengi í hjarta hans. Svanurinn er ein af þessum sjaldgæfu myndum sem situr í manni og heldur áfram að vinna á eftir að henni lýkur. Kvikmyndatakan er undurfögur og fangar á einhvern seiðandi hátt sjónarhorn barnsins sem horfir á fólk og atburði án þess að skilja almennilega hvað er að gerast og hvað fólkinu gengur til. Íslensk náttúra og fagurt og háskalegt landslagið njóta sín einnig feikivel í tökunum. Náttúran og landið voru sprelllifandi í myndrænum texta Guðbergs og sama gildir um kvikmyndina. Náttúruöflin eru fljótandi umgjörð sögunnar. Sagan og frásagnarmátinn reyna verulega á leikarana sem standa sig upp til hópa með stakri prýði. Að öðrum ólöstuðum er þó Gríma Vals- dóttir stjarna myndarinnar. Alveg frábær í túlkun sinni á stúlkunni. Hún skilar flóknum tilfinningum með látbragði, svipbrigðum og orðum af mögnuðu næmi. Leikstjóri sem nær að laða slíkt fram hjá barni hlýtur, eins og leikarinn, að búa yfir einhvers konar náðargáfu. Svanurinn er undurfögur kvik- mynd, hugvekjandi og mannbæt- andi upplifun sem æskilegt er að njóta til fullnustu í bíósal. Eftir að hafa skrifað um kvikmyndir, með hléum, í sautján ár hefur mér ekki enn tekist að skilja hvað ræður vin- sældum íslenskra kvikmynda. Eitt er víst að ekki eru það gæðin ein og sér. Stundum hafa frábærar myndir fengið undarlega litla aðsókn á meðan fólk hópast á aðrar mun síðri. Ég veit ekkert hvernig Svanur- inn hefur farið af stað en fannst sal- urinn full gisinn á sýningunni sem ég fór á. Þannig að ég ætla að leyfa mér að benda þeim sem eru eitt- hvað að hika á að drífa sig á þessa fínu mynd. Svanurinn mun ekki svíkja nokkra einustu manneskju sem enn er með vit í kollinum á vorum hraðklipptu Netflix-tímum. Þórarinn Þórarinsson niðurStaða: Djörf tilraun sem gengur upp og skilar sér í eftirminnilegri mynd sem engin hugsandi manneskja má missa af. Svanurinn svífur á sálina í firnasterku látleysi sínu Gríma Valsdóttir sýnir efirminnilegan stórleik sem stúlkan sem kynnist fegurð og ljótleika lífsins í sveitinni. 1 1 . j a n ú a r 2 0 1 8 F i m m t u d a G u r36 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð Bíó 1 1 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B 6 -E 4 4 0 1 E B 6 -E 3 0 4 1 E B 6 -E 1 C 8 1 E B 6 -E 0 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.