Víkurfréttir - 18.10.2007, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 42. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti endurskoðaða
fjárhagsáætlun fyrir árið 2007
á síðasta fundi sínum.
Í bókun meirihluta D- og S-
lista kemur m.a. fram að rekstur
málaflokka án fjármagnsliða
versnar um 50,7 milljónir kr.
Ástæður þess eru þær helstar
að aukið er framlag til Saltfisk-
seturs um 25 milljónir króna
og reiknuð leiga er að aukast
um 31,4 milljónir króna. Á móti
kemur aukning skatttekna að
fjárhæð 33,8 milljónir króna.
Að meðtöldum fjármagnsliðum
er rekstur A-hluta að batna um
3,4 milljarða og fer í 3,451 millj-
arð kr. sem skýrist af söluhagn-
aði hlutabréfa vegna Hitaveitu
Suðurnesja og Bláa lónsins.
Afkoma B-hluta er tap að fjár-
hæð 32,6 milljónir. Munar þar
mestu um tap Grindavíkur-
hafnar sem er 50 milljónir kr.
og eykst um 2,2 milljónir frá
upphaflegri áætlun. Í saman-
teknum hluta áætlunarinnar er
hagnaður að fjárhæð 3,385 millj-
arðar kr.
Veltufé frá rekstri í saman-
teknum hluta er 3,6 milljarðar
kr. en var 175,8 milljónir kr.
Eignfærð fjárfesting er áætluð
í endurskoðaðri áætlun 812,8
milljónir kr. og er það aukning
um 210,5 milljónir kr.
Miklar framkvæmdir standa
fyrir dyrum í Grindavík á næst-
unni. Helstu framkvæmdir eru
209 milljónir í fjölnota íþrótta-
hús. Í gatnagerð er áætlað 151
millj ón. Fram kvæmd ir við
veitukerfi og lagnir eru áætlaðar
tæpar 60 milljónir. Auk þessa
eru landakaup að fjárhæð 210
milljónir króna.
Til fjármögnunar framkvæmda
er gert ráð fyrir lántöku að fjár-
hæð 566 milljónir.
Áætlunin var samþykkt með
atkvæðum meirihluta, en full-
trúar minnihluta sátu hjá.
Grindavík:
Endurskoðuð fjár-
hagsáætlun samþykkt
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir
tengdafaðir, afi og langafi
Ásmundur Björnsson
Vallargötu 7
Sandgerði
sem lést miðvikudaginn 10.október verður jarðsunginn frá
Safnaðarheimilinu í Sandgerði föstudaginn 19. október kl.
15:00
Ingibjörg Bjarnadóttir
Jón Ásmundsson, Helga Karlsdóttir
Kristín Ásmundsdóttir, Jón Árni Ólafsson
Ragnheiður E. Ásmundsdóttir, Magnús Árnason
Barnabörn og barnabarnabörn