Morgunblaðið - 08.08.2017, Síða 2

Morgunblaðið - 08.08.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Made by Lavor Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ SUMARSALAN – er í fullum gang Lavor Vertico 20 háþrýstidæla 140bör 400 L / klst. INDUCTION MOTOR POWERED 19.793 Áður kr. 29.990 34% AFSLÁTTURLavor Galaxy 140 háþrýstidæla 140 Max bar, 450 L / klst. 1900KW 25% AFSLÁTTUR Áður kr. 17.990 13.493 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Árbæjarsafn blés til heljarinnar leikjadagskrár um helgina undir yfirskriftinni „Komdu að leika“. Krökkum á öllum aldri gafst tækifæri til að leika sér með leikföng fortíðar. Um tíma á laugardag hellirigndi skamma stund og þá fór fljótlega allt á flot, þannig að erfitt gat orðið fyrir vegfarendur að komast um lóð safnsins. Gestir létu það þó ekki á sig fá. Morgunblaðið/Árni Sæberg Árbæjarsafn bauð ungum sem öldnum að koma og leika Flutningabíll með minkafóður valt á Reykjastrandarvegi, skammt norðan Sauðárkróks við bæinn Daðastaði, fyrir hádegi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki slapp bílstjórinn ómeiddur. Vegkant- urinn mun vera mjúkur og hafa þannig gefið sig undan þunga bílsins. Mikil mildi er að ekki fór verr. Seinnipart gærdagsins var at- hugað hvort olía læki úr bílnum en svo mun ekki vera. Flutn- ingabíllinn verður líklega réttur við og dreginn upp á veg í dag. Reykjastrandarvegur er þröng- ur og holóttur og hafa íbúar á ströndinni ítrekað kvartað til Vegagerðarinnar. Bílstjóri flutningabíls með minkafóður slapp án meiðsla úr veltu í Skagafirði Ljósmynd/Viggó Jónsson Velta Frá vettvangi á Reykjaströnd í gær. Alexander Gunnar Kristjánsson alexander@mbl.is Papey skartaði sínu fegursta þrátt fyrir þokuslæðing á laugardag er Óskar Ragnarsson og Hildur Björk Þor- steinsdóttir frá Djúpavogi voru gefin saman í eynni. Að sögn Margrétar Gústafsdóttur, afkomanda síðustu heilsársíbúa hennar, var síðasta brúðkaup í eyjunni haldið sumarið 1963 og lifði það hjónaband aðeins í nokkra mánuði. „En þetta mun endast lengur. Það er engin spurning um það,“ segir hún. Búið var í Papey frá landnámi og fram til ársins 1966 en síðan þá hefur eyjan verið sumardvalarstaður Mar- grétar og fjölskyldu auk þess sem skipulagðar ferðir eru í eyna á sumrin. Minnsta kirkja landsins Brúðguminn var að vonum ánægður með athöfnina. „Upphaflega ætluðum við að gifta okkur í Hofskirkju í Álftafirði þar sem ég er skírður og fermdur, en þegar við fórum að skoða kirkjuna í síðustu viku kom í ljós að hún var illa á sig komin og það voru framkvæmdir í gangi,“ segir Óskar. Því hafi verið gripið til þess ráðs að færa athöfnina út í Papey. Vinur Óskars er skipstjóri á Papeyjarferjunni og Papeyjarferðir ferjuðu gesti fram og til baka, þeim og brúðhjónunum að kostnaðarlausu. „Það var mjög rausnarlegt af þeim,“ segir Óskar. Hann segir að líklega sé Papeyjarkirkja sú minnsta á landinu. Um 40 gestir voru samankomnir í eynni en stærstur hluti þeirra þurfti að standa utan við kirkjuna. Auk brúðhjónanna komust einungis foreldrar þeirra og fjögur börn þeirra fyrir inni í kirkjunni auk prestsins og söngkonu. Að athöfn lokinni héldu gestir svo í land þar sem veislan var haldin á Gömlu hlöðunni á Bragða- völlum þar sem bræður Óskars reka veitingasal, en þar ólust þeir bræður upp. Hætt við fyrir 20 árum Sjöfn Jóhannesdóttir, sóknarprestur í Djúpavogs- sókn, gaf hjónin saman. Hún hefur verið prestur á Djúpavogi frá árinu 1989 en þetta er í fyrsta sinn sem hún giftir fólk í eynni. Hún segir það þó hafa staðið til eitt sinn fyrir um 20 árum, en færa varð athöfnina til Djúpavogs þar sem ófært var út í eyna. Sjöfn hefur skírt nokkur börn í Papey og messað einstaka sinnum en segir að annars standi kirkjan að mestu tóm þó að henni sé vel við haldið. Kirkjan, sem tilheyrir Djúpavogsprestakalli, var upp- haflega reist árið 1807 og er talin elsta timburkirkja hérlendis. Hún var friðuð árið 1990 og endurbyggð 1996. Kirkjan er einungis 5,3 metrar á lengd og 3,4 metrar á breidd, eða um 18 fermetrar að stærð. Hjónavígsla í Papey í fyrsta sinn í hálfa öld  Ákváðu í síðustu viku að færa athöfnina úr Álftafirði yfir í Papeyjarkirkju Morgunblaðið/Jón Ragnarsson Hjón Óskar og Hildur stilla sér upp fyrir framan kirkj- una snotru ásamt börnum sínum fjórum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.