Morgunblaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 33
Dúndurdúett Milkywhale, þau Árni Rúnar Hlöðversson og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, á sviði Húrra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
» Að vanda var tónlistarhá-tíðin Innipúkinn haldin í
Kvosinni í Reykjavík um
helgina. Boðið var upp á fjöl-
breytta tónleikadagskrá þrjá
daga í röð og steig fjöldi lista-
manna og hljómsveita á svið á
tónleikastöðunum Húrra og
Gauknum. Þeirra á meðal voru
Between Mountains, Cyber,
Fufanu, Jón Jónsson, Sóley,
Sturla Atlas, Vök, Dimma, FM
Belfast og Milkywhale. Naust-
in voru tyrfð og lokuð fyrir
bílaumferð meðan á hátíðinni
stóð og boðið upp á götuhátíð-
arstemningu gestum til gleði.
Innipúkinn haldinn í Kvosinni um verslunarmannahelgina
Vinkonur Debby, Elísa, Kristín og Jasmín skemmtu sér á Innipúkanum.
Innipúkar Gestir á Gauknum þegar hátíðin var haldin 16. árið í röð.
Rappað Tónlistarmaðurinn Elli Grill kom fram á Gauknum.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir nema íslenskar
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 8
SÝND KL. 4, 6, 8, 10 SÝND KL. 4, 7, 10
SÝND KL. 10ÍSL. 2D KL. 4, 6
Sönglagahöfundurinn Burt Bach-
arach krafðist þess nýlega að lög um
höfundarrétt og ritstuld yrðu endur-
skoðuð. Frá þessu er sagt á vefsíðu
BBC. Bacharach telur að of þungt sé
tekið á ýmsum ákærum gegn söng-
lagahöfundum um ritstuld. Hann
leggur til að nefnd sérfræðinga
dæmi um brot á höfundarrétti.
„Þetta eru ekki nákvæm vísindi,“
sagði Bacharach við fréttamann
BBC.
„Ég held að það sem þurfi að gera
sé að hafa til taks þrjá eða fjóra sér-
fræðinga sem má treysta.“ Nefndin
geti svo ákvarðað hvort tiltekið lag
sé afsprengi af öðru eða ekki. Bach-
arach heldur því fram að óhjá-
kvæmilegt sé að sum lög líkist öðr-
um því ekki séu til óteljandi nótur.
Listamenn á borð við Robin Thicke,
Pharrell Williams og Ed Sheeran
hafa m.a. verið ásakaðir um ritstuld.
Hinir tveir fyrrnefndu neyddust til
að greiða fjölskyldu Marvins Gaye
um 7,3 milljónir dala (763 milljónir
ísl. kr.) þegar dæmt var gegn þeim í
málsókn vegna ritstuldar.
Burt Bacharach kallar
eftir lagabreytingu
Morgunblaðið/Ófeigur
Tónsmiður Burt Bacharach á tón-
leikum í Hörpu síðasta sumar.