Morgunblaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
HB-System
ABUS kranar í öll verk
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.is
Stoðkranar Brúkranar
Sveiflukranar
NORÐUR-DAKOTA
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fjölmenni sótti hátíðarhöld á Íslendingadegi
sem haldinn var í bænum Mountain í Norð-
ur-Dakotaríki á laugardag. Í byggðum nyrst
í ríkinu eru fjölmargir af íslenskum ættum,
gjarnan í 4. lið afkomendur vesturfara 19.
aldar.
Í gær, mánudag, var Íslendingadagurinn
svo haldinn hátíðlegur í Gimli í Manitoba í
Kanada með veglegri dagskrá. Það var á
þeim slóðum, við Winnipeg-vatnið, sem ís-
lenskir vesturfarar í þúsundatali sóttu helst á
frá 1873 og lengi þar á eftir. Afkomendur
þess fólks skipta tugum þúsunda – og eru
þeir almennt áhugasamir um tengslin við
gamla landið.
Mountain er lítið þorp þar sem búa 80 til
100 manns. Flestir hafa afkomu sína af ak-
uryrkju, en byggðin stendur á víðlendri og
því sem næst óendanlegri sléttu. Því var
skiljanlegt að í mikilli bílalest sem ekið var í
gegnum þorpið við upphaf hátíðarinnar
mætti sjá menn á dráttarvélum.
Fremstar fóru þó drossíur og þar sátu ís-
lenskir hátíðargestir. Þeir voru Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ágústa
Johnson, kona hans, Geir H. Haarde, sendi-
herra Íslands í Bandaríkjunum, og kona
hans, Inga Jóna Þórðardóttir, og Þórður
Bjarni Guðjónsson, ræðismaður Íslands í
Winnipeg.
Áhugasamt um Ísland
Í samkomu í félagsheimilinu í Mountain
gerðu ræðumenn hin góðu tengsl Íslands og
fólks í Norður-Dakota að umtalsefni og
minntu á mikilvægi þeirra. Íslenskur dans-
hópur kom fram og í sölutjöldum var kaffi-
brauð í íslenska stílnum.
Fólkið sem býr á þessu svæði og er ættað
frá Íslandi er yfirleitt áhugasamt um Ísland
og fylgist með fréttum þaðan, kann hrafl í ís-
lensku og spyr tíðinda að heiman. Einnig er
það áhugasamt um slóðir forfeðra sinna á Ís-
landi, en íslensku Dakota-fararnir voru
gjarnan úr Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.
Spyrja helst tíðinda að heiman
Íslendingadagur í Norður-Dakota og Gimli um helgina Sterkt tengsl og þjóðlegt kaffibrauð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Íslendingadagur Fulltrúar Íslendinga í Norður-Dakota og fulltrúar að heiman samankomin á
Íslendingadeginum, m.a. utanríkisráðherra Íslands og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.
Bíltúr Guðlaugi Þór og Ágústu var ekið um á opnum blæjubíl.
Víkingar Þeir voru vígalegir þessir kappar í Norður-Dakota.