Morgunblaðið - 08.08.2017, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017
Fimm stjörnu
rekstraraðili óskast.
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum aðilum til reksturs
á veitingastað okkar á Hótel Ke�lavík og Diamond Suites í
einum glæsilegasta glerskála landsins.
Frábært tækifæri fyrir réttan aðila. Markmiðið er að skapa
lifandi stað fyrir hótelgesti okkar, bæjarbúa og aðra landsmenn.
Við leitum e�tir manneskju:
• með brennandi áhuga á matargerð
• með góða þjónustulund
• með jákvætt og þægilegt viðmót
• með reynslu af sambærilegum störfum og eigin rekstri
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Umsóknir og fyrirspurnir sendast á steini@kef.is
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum náði
hápunkti sínum með brekkusöng,
tendrun blysa og flugeldasýningu á
sunnudagskvöld. Mikill fjöldi var
samankominn í Herjólfsdal og
stemningin gríðarleg. Ingólfur Þór-
arinsson stjórnaði brekkusöngnum
líkt og undanfarin ár, auk þess sem
Árni Johnsen greip í gítarinn.
Fjörutíu ár eru liðin síðan Brekku-
söngurinn fór fyrst fram.
Unglingalandsmót UMFÍ á Egils-
stöðum fór virkilega vel fram, að
sögn mótshaldara. Gestir voru til
mikillar fyrirmyndar og lögreglan
á Egilsstöðum hafði ákaflega lítið
að gera, en um þúsund keppendur á
aldrinum 11-18 ára tóku þátt í hin-
um ýmsu íþróttagreinum.
Á Akureyri var lítið af aðkomu-
fólki miðað við mörg fyrri ár, en
bæjarbúar tóku virkan þátt í dag-
skrá hátíðarinnar Einnar með öllu.
Slökkviliðsmenn á Akureyri
gengu Eyjafjarðarhringinn í fullum
reykköfunarbúnaði með súrefnis-
kúta á laugardag. Það gerðu þeir
til styrktar Hollvinasamtökum
Sjúkrahússins á Akureyri, sem
hyggst kaupa nýja ferðafóstru, sem
notuð er við flutning nýbura og
fyrirbura milli sjúkrastofnana. Nú-
verandi tæki er þrjátíu ára gamalt.
Stemningin var gríðarlega
góð á hátíðum um allt land
Fertugasti brekkusöngurinn á Þjóðhátíð í Eyjum
Morgunblaðið/Ófeigur
Veðurguð Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, Ingó Veðurguð, leiddi
brekkusönginn af sviðinu í Herjólfsdal líkt og hann hefur gert síðustu ár.
Morgunblaðið/Ófeigur
Þjóðhátíð Flugeldasýningin í lok hátíðarinnar í Herjólfsdal er jafnan til-
komumikil sjón. Hátíðin þótti takast mjög vel þetta árið og var vel sótt.
Áheitaganga
Slökkviliðsmenn
á Akureyri gengu
þrjátíu kílómetra
í fullum skrúða á
laugardag.
Verslunarmannahelgin 2017