Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 12

Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 12
Viðtal Hjúkrunarnemarnir unnu margvísleg störf og fannst gott að geta orðið að liði. Þær hafa lært mikið og eru þakklátar fyrir það sem þær hafa. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Þessi draumur hefur blund-að í okkur lengi en hjálp-arstarfsferðir eldri nemakveiktu áhuga okkar,“ segja hjúkrunarfræðinemarnir Arna Hlín Ástþórsdóttir, Guðný Björg Sigurðardóttir, Herdís Gunn- arsdóttir, Hrönn Hilmarsdóttir, Karen Eik Sverrisdóttir, Rakel Gunnlaugsdóttir og Þórdís Jóna Guðmundsdóttir. Þær segjast hafa tekið sig saman í einu hádegishléinu á öðru ári í námi og ákveðið að láta draum- inn um hjálparstörf rætast. Í sept- ember 2016 var fyrsti fundurinn og skipulagið tók allan veturinn. „Það er margt sem þarf að huga að við skipulagningu svona ferðar. Hvert á að fara? Í gegnum hvaða samtök? Hvernig er best og ódýrast að komast þangað? Hvað á að vera lengi og hvenær er best að fara? Hvernig á að fjármagna ferð- ina? Hvaða bólusetningar þarf? og margt fleira,“ segja hjúkrunarnem- arnir sem leituðu ráða hjá þeim sem ferðast hafa á sömu slóðir. „Við völdum að fara í gegnum samtökin African Impact og vorum í verkefni sem fólst í því að sinna heilbrigðisþjónustu í Livingstone og nágrenni. Á morgnana fórum við annaðhvort í heimaþjónustu í nær- liggjandi þorp eða aðstoðuðum í heilsugæslustöðvum þorpanna.“ Hjúkrunarnemarnir voru ánægðir með að fá að mæta fólki á heimilum þess og fá þannig að kynnast vel menningu og lifnaðarháttum íbú- anna. „Við sinntum alls konar veik- indum. Frá litlum sárum upp í það að sinna mjög veiku fólki með há- þrýsting, HIV, berkla, ofþornun, slæm sár og margt fleira. Við lærð- um að vinna með það sem við höfð- um í höndunum en bæði lyf og hjúkrunarvörur eru af mjög skorn- um skammti,“ segja hjúkrunarnem- arnir í Zambíu sem kalla sig team Zambía á fésbókarsíðu sinni, Hjúkrunarnemar í Zambíu. Þær segja að mikið sé treyst á sjálf- boðaliða og styrktaraðila þeirra. „Allar vörur og lyf sem við höfðum til umráða voru gjafir frá styrkt- araðilum.“ Team Zambía segir þörf- ina mikla. Sem dæmi tóku þær eftir því einn morguninn að mikill verkja- lyfjaskortur á litla lyfjalagernum þeirra. „Við gátum ekki annað en stoppað á litlum markaði í þorpinu sem við vorum í þann daginn og fundið parasetamól til þess að redda okkur þann daginn. Seinni- partinn var svo farin hópferð í næsta apótek og keyptar helstu nauðsynjar fyrir næstu vikur.“ Þakklátar Hjúkrunarfræðinemarnir segja að starfið sem þær unnu í Livings- ton skilji eftir sig ómetanlega reynslu. „Okkur finnst við allar hafa þroskast umtalsvert sem hjúkr- unarfræðingar, fengið aukið sjálfs- traust í starfi og lært að vinna bet- ur í hópi. Þetta kennir okkur að vera þakklátari fyrir það sem við höfum. Hér mæta okkur allir með bros á vör óháð þeim aðstæðum sem þeir lifa við og hvað þeir hafa á milli handanna,“ segir team Zambía. Þær eru allar sammála um að þær muni fara í hjálparstarf. „Það erfiðasta við svona starf er það að sjá vesöldina sem fólkið býr við. Það er erfitt að horfa upp á það að fólk geti ekki sótt lífs- nauðsynlega læknisaðstoð eða þjón- ustu sem það þarf á að halda,“ segja hjúkrunarnemarnir og nefna dæmi um mann með háan blóð- þrýsting sem vísað var á heilsu- gæsluna. „Ef við vísum á heilsu- gæsluna þarf ekki að borga fyrir þjónustuna. Af heilsugæslunni var honum vísað á spítalann. Hann gekk langa leið blindur og lamaður að hluta til vegna heilablóðfalls. Á spítalanum vildu læknar taka af honum hjartalínurit, röntgenmynd af lungum og hjartaómun. Mað- urinn hafði ekki efni á rannsóknum og fékk því ekki viðeigandi lyf,“ Team Zambía segir skemmti- legast við hjálparstarfið að sjá og finna að þær séu virkilega að hjálpa og gera gagn. Treysta á sjálfboðaliða „Einn daginn kemur móðir hlaupandi með þriggja ára dóttur sína sem hafði brennt sig á hafra- grautarpotti. Stúlkan var með blöðrur sem þöktu alla fingur henn- ar og upp handlegginn þar sem hún var með djúpt brunasár. Við vorum komnar upp í rútu og gátum því miður ekki sinnt henni . Við létum móðurina hafa brunakrem, plástur og sárabindi og sögðum henni hvernig væri best væri að gera að sárunum. Við myndum reyna að koma aftur í næstu viku. Þegar við komum aftur hafði móðirin gengið í klukkustund með stelpuna á bakinu og beið okkar. Við gátum gert að sárinu og gefið kvöldu barninu verkjastillandi mixtúru,“ segja hjúkrunarfræðinemarnir alvarlegir og bæta við að þær hafi gefið móð- urinni sjúkragögn og kennt henni að búa um sárið. „Móðirin hefur ekki efni á þjónustu á heilsugæslu eða sjúkrahúsi og treystir því al- gjörlega á sjálfboðaliða. Sjálfstyrking ungra stúlkna Verkefnin í ferðinni voru fjöl- breytt og tengdust ekki öll heil- brigðisþjónustu. „Einn daginn vor- Draumurinn um hjálparstörf rættist Sjö hjúkrunarnemar sem allir eru að hefja sitt fjórða og síðasta ár í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands lögðu land undir fót til þess að taka þátt í hjálpar- starfi í Livingstone og nágrenni, í Zambíu. Hópurinn hefur fjölbreytta hjúkrunarreynslu úr náminu sem nýst hefur vel í hjálparstarfinu. Hjúkrunarnemarnir koma heim reynslunni ríkari og hafa bundist vin- áttuböndum sem þær segja engu lík. Vinsældir Arna Hlín Ástþórdóttir umvafin börnum í Zambíu. Liðsmenn team Zambía voru ánægðar að kynnast menningu heimamanna. Vinir Herdís Gunnardóttir brosir með lífsglöðu barni í Zambíu. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Allt í heyskapinn Varðskipið Óðinn á sér merka sögu. Óðinn tók þátt í öllum þrem- ur þorskastríðunum á 20. öld. Þekktasta og árangursríkasta vopnið í þorskastríðunum voru togvíraklippur, sem sjá má á aft- urdekki skipsins. Þrjár fastar leið- sagnir á dag eru um varðskipið Óð- in, kl. 13.00, 14.00 og 15.00.Varðskipið Óðinn er hluti af Sjóminjasafninu. Skipið kom til safnsins árið 2008 og hefur verið varðveitt í því ástandi sem það kom í. Varðskipið Óðinn Sjóminjasafnið á Grandagarði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.