Morgunblaðið - 08.08.2017, Side 19

Morgunblaðið - 08.08.2017, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa brugðist ögrandi við hertum við- skiptaþvingunum sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti gegn ríkinu um helgina. Svöruðu stjórnvöld í Norður-Kóreu því að þvinganirnar myndu ekki stöðva eld- flaugatilraunir landsins eða þróun kjarnavopna. Þá hótuðu þau Banda- ríkjunum hefndum vegna aðgerð- anna. Hinar hertu viðskiptaþvinganir, sem samþykktar voru einróma í ör- yggisráðinu, munu skerða útflutn- ingstekjur Norður-Kóreu um þriðj- ung. Nema útflutningstekjur Norður-Kóreu um þremur milljörð- um Bandaríkjadala á ári. „Við munum undir engum kring- umstæðum setja kjarnorkuvopn eða skotflaugar upp á samningaborðið,“ sagði utanríkisráðherra Norður-Kór- eu, Ri Yong-Ho, í yfirlýsingu. Ekki komi til greina að taka þátt í samn- ingaviðræðum um kjarnorkuvopna- áætlun landsins á meðan Bandaríkin hafi í hótunum, sagði ennfremur í yf- irlýsingunni. Áður hafði yfirlýsing birst á ríkisfréttastofu Norður-Kór- eu þar sem sagði m.a. að með við- skiptaþvingununum væri verulega brotið á sjálfstæði landsins. Utanríkisráðherra Kína, Wang Yi, sagði að landið myndi styðja viðskipt- ingaþvinganirnar að fullu, en Kína hefur verið einn helsti bandamaður Norður-Kóreu. Þá útilokaði utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, Rex Til- lerson, að viðræður við Norður-- Kóreu gætu hafist á meðan skotflaugaáætlun landsins væri í gildi. N-Kórea hótar hefndum  Viðskiptaþvinganir SÞ minnka útflutningstekjur Norður-Kóreu um þriðjung AFP Þvinganir Utanríkisráðherra Kína, Wang Yi, tjáir sig við blaðamenn. Forsetakosningar fara fram í Kenía í dag. Kannanir benda til að afar mjótt verði á munum milli þeirra Uh- uru Kenyatta, núverandi forseta, og Raila Odinga sem býður sig fram til forseta í fjórða sinn. Feikileg óvissa er um hvort sá sem bíður lægri hlut muni viðurkenna kosningarnar. Gríðarlega spenna hefur ríkt í landinu. AFP Tvísýn barátta milli forsetaefna í Kenía Mikil spenna vegna kosninganna Leynileg at- kvæðagreiðsla fer fram á suður- afríska þinginu á morgun um van- trauststillögu á forseta landsins, Jacob Zuma, seg- ir í frétt BBC. Talið er að lík- urnar á að þing- menn stjórn- arflokksins ANC kjósi með vantrauststillögunni aukist nú þeg- ar kosning er leynileg. Zuma hefur staðist fimm atkvæðagreiðslur um vantraust gegn honum en kjörið er nú í fyrsta sinn leynilegt. Zuma hef- ur verið forseti Suður-Afríku frá árinu 2009 og hefur lent í hverju hneykslinu á fætur öðru. Atkvæðagreiðsla um vantraust Jacob Zuma, for- seti Suður-Afríku. SUÐUR-AFRÍKA Um 50 létu lífið í hverfinu Sayad í Afganistan í árás vígasamtaka síð- asta laugardag. Langstærstur hluti fórnar- lamba var al- mennir borg- arar. Talsmaður fylkisstjóra Sar-e Pul, sem Sayad hverfið er í, segir við AFP- fréttastofuna að árásin hafi verið sameiginleg aðgerð talibana og Ríkis íslams sem réðust á lög- reglulið á svæðinu. 50 látnir eftir árás Mikil áföll hafa dunið á Afgönum. AFGANISTAN Donald Trump, forseti Bandaríkj- anna, segist hafa nóg að gera við að stýra landinu frá golfklúbbi sínum í New Jersey. Endurbætur standa yfir í Hvíta húsinu og því varð Trump að sinna starfinu annars staðar. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að eyða miklum tíma á golfvellinum en það segir Trump að sé ekki rétt, hann sé á fullu að vinna þó svo að hann sé ekki staddur í Hvíta húsinu. Mikið álag á Trump BANDARÍKIN Tveir menn létu lífið og átta voru handsamaðir eftir að uppreisnarlið gerði árás á herstöð í borginni Valencia í Venesúela á sunnudag- inn, segir í frétt AFP. Her Vene- súela gerði síðan mikla leit í gær að 10 mönnum úr uppreisnarliðinu sem komust undan með vopn úr herstöðinni. Nicolas Maduro, forseti Vene- súela, fullyrti að uppreisnarliðið væri hryðjuverkahópur með tengsl við Bandaríkin og Kólumbíu. Hann hrósaði hernum fyrir snör viðbrögð við árásinni. Þá sagði í yfirlýsingu hans að herstöðin hefði orðið fyrir árás „hóps glæpa- manna leiddra af fyrrverandi liðs- foringa, sem hefði yfirgefið herinn fyrir nokkrum árum.“ Fulltrúi uppreisnarliðsins, með hóp manna á bak við sig, birti myndband á netinu skömmu fyrir árásina þar sem hann lýsti yfir að liðið berðist gegn grimmdarlegri harðstjórn Nicolas Maduro for- seta. Tveir létust í árás upp- reisnarliðs  Átök í herstöð í Venesúela VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum Saksóknarar í Suður-Kóreu hafa krafist 12 ára fangelsisdóms yfir Lee Jae-Yong, varastjórnar- formanni Samsung og erfingja fyrirtækisins, eftir spillingar- hneyksli sem leiddi m.a. til þess að þáverandi forseti Suður-Kóreu, Park Geun-Hye, var svipt embætti. Lee og fjórir aðrir yfirmenn Samsung eru sakaðir um að hafa mútað trúnaðarvinkonu Park með fúlgu fjár til þess að vera í náð for- setans og auðvelda umdeildan fyrirtækjasamruna árið 2015. Hef- ur Lee verið í haldi í sex mánuði. Hann segir að á þeim tíma hafi hann komist að því að hann sé mað- ur margra galla en hafnar alfarið að hafa notað hylli forsetans sér til framdráttar. 12 ára fangelsis krafist í spillingarmáli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.