Morgunblaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.08.2017, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Á síðustu dögum hafa hin svokölluðu „neyðarlög“ frá árinu 2008 komið til umræðu á vettvangi fjölmiðla og þá hvort lögin hafi staðist stjórnar- skrána. Minnt skal á að sá sem hér skrifar sat sem dóm- ari í Hæstarétti þegar dæmt var um þetta og komst einn dómara að þeirri niðurstöðu að lögin stæðust ekki. Engin haldbær lögfræðileg rök hefðu fundist fyrir því að taka hefði mátt eignir af einum hópi manna (almenn- um kröfuhöfum banka) og færa þær til ann- ars hóps (innistæðueigenda). Um þetta hafa skrifað bæði Hannes Hólmsteinn prófessor og Sigmundur Davíð, fyrrverandi forsætisráðherra. Báðir eru þeir á því máli að þessi aðgerð laganna hafi staðist. Með henni munu um 10 milljarðar evra hafa verið fluttir frá skuldabréfaeigendum til spari- fjáreigenda. En hver ætli séu rök þeirra fyrir þessu? Þegar grannt er skoðað eru rökin nokkurn veginn þau sömu hjá báðum. Aðgerðin heppnaðist og kom sér afar vel fyrir allan almenning á Íslandi. Auðvitað gerði hún það. Þegar teknir eru fjármunir af einum með valdi og fluttir til annars, sem á þeim þarf að halda, kemur það sér vel fyrir þann sem við fénu tekur. Svona stendur líka á ef fjár- munum er hreinlega stolið og þjófurinn kemst upp með glæpinn. Hann auðgast á kostnað þess sem stolið var af. En felur þetta í sér lögfræðilega réttlæt- ingu fyrir aðgerðinni? Varla. Og það heldur ekki þó að samúð okkar liggi öll hjá þeim sem við þýfinu tók. Meirihluti Hæstaréttar fann ekki lög- fræðileg rök sem leyfðu þessa aðgerð neyð- arlaganna. Ég féllst á að neyðarréttur hefði heimilað að veita innlánum afturvirka vernd. Málið snerist um hvernig ætti að afla fjár til að standa undir kostnaðinum við hana. Með lögunum var féð sótt til al- mennra kröfuhafa bankanna. Ég leitaði log- andi ljósi að frambærilegum röksemdum sem leyfðu þetta en fann þau ekki. Þess vegna var ég dæmdur til að skila sér- atkvæði mínu. Allt er þetta skýrt í for- sendum þess. Hvorki Hannes né Sigmundur Davíð finna rökin. Það dugar ekki að segja, eins og Hannes að ekki hafi vakað fyrir löggjaf- anum að færa fé milli hópa. Hvaða máli skiptir hvað fyrir löggjafanum vakti? Hann færði féð milli hópa með aðgerðinni. Það er það sem máli skiptir. Sigmundur Davíð tefl- ir fram rökum stjórnmálamannsins um að aðgerðin hafi komið sér vel fyrir þjóðina og nefnir til sögunnar aðrar aðgerðir sem höfðu það markmið að létta skuldabyrði af mönnum. Þessi rök eru heldur ekki af lög- fræðilegum toga og hefðu ekki dugað sem forsendur fyrir niðurstöðu Hæstaréttar. En Hæstiréttur bakkaði upp þessa vald- beitingu, þó að hann fyndi ekki nothæf rök fyrir henni. Þetta rann allt niður eins og lít- ill kökubiti með síðdegiskaffinu („pís of keik“). Og nú gleðjumst við öll saman yfir því að hafa eignast fjármuni manna sem voru ekki jafn verðugir og við til að eiga þá. Það er ekki flókið réttlætið okkar. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Þegar teknir eru fjár- munir af einum með valdi og fluttir til annars, sem á þeim þarf að halda, kemur það sér vel fyrir þann sem við fénu tekur. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er fyrrverandi dómari við Hæsta- rétt. Einfalt réttlæti þess sem valdið hefur Ísland er einstök nátt- úruperla. Það er skoðun flestra er landið byggja og flestra þeirra sífjölgandi gesta er það heimsækja. Þrátt fyrir mikla náttúrfegurð hafa íbúar frá fyrstu tíð skapað sér eins góða búsetukosti og þeim framast hefur verið unnt. Þannig hafa þeir best tryggt búsetuna sjálfa því þrátt fyrir allt er landið um margt harð- býlt. Undanfarna áratugi hefur átt sér stað fordæmalaus uppbygging á suðvesturhorni landsins. Uppbyggingunni hefur ráðið sá vilji almennings og kjörinna fulltrúa þeirra að tryggja sem bestar aðstæður til byggðar. Hagsmunir íbúa hafa vegið þyngst. Maður- inn hefur notið vafans. Að nýta og njóta Mörg dæmi má nefna um þessa uppbygg- ingu. Nýir vegir hafa verið lagðir og eldri endurnýjaðir, sumir við og í gegnum nátt- úruperlur, til að flýta för íbúa og stytta leiðir. Hvar væri mannlíf á fegurstu kjarri vöxnum svæðum suðvesturhornsins án vega? Gæti Hvalfjörður verið án vega og hvernig myndu menn njóta Þingvalla án vegasambands? Malbikaðir vegir og göngu- stígar hafa verið lagðir um Elliðaárdalinn. Hagsmunir íbúa í forgangi. Verksmiðjur hafa risið til að tryggja at- vinnu íbúa, sumar fjarri byggð í upphafi en síðar hafa aðstæður breyst þannig að dæmi eru um að íbúabyggð hafi verið skipulögð að og í kring. Ekki verður þó annað séð að íbú- ar í Hafnarfirði séu sáttir við nábýlið við Straumsvík, nú sem áður. Virkjanir hafa risið til að tryggja rafmagn í athafnasemi íbúa svæðisins, sumar þeirra í öðrum lands- hlutum, aðrar í túnfætinum. Tónninn var sleginn með virkjun Elliðaáa og síðar var heita vatnið virkjað til rafmagnsframleiðslu. Ráðist var í stórhuga framkvæmdir á Hellisheiði og þannig tryggð orka. Náttúra Hellisheiðar vék og Hvergerðingar súpa seyðið af framkvæmdunum, eða réttara sagt anda því að sér. Þarna réðu hagsmunir íbúa höfuðborgarsvæðisins ferðinni. Lengra skal ganga Náttúrperlan Þríhnjúkagígur er við bæj- ardyr höfuðborgarbúa, einstök á heims- mælikvarða. Þar eru langt komnar áætlanir um að sprengja sig inn í gíginn til þess að tryggja meiri umferð ferðafólks, tekju- og atvinnuskapandi verk. Ekki hafa (enn) verið stofnuð samtökin Þyrmum Þríhnjúkagíg af þessu tilefni. Á sama svæði hefur skíða- svæði íbúa verið byggt þrátt fyrir að það standi við og á svokölluðu vatnsvernd- arsvæði byggðarinnar. Hagsmunir íbúa ráða ferðinni. Reykvíkingar hafa lengi reynt að end- urheimta Vatnsmýrina úr klóm flugvallar úr seinni heimsstyrjöld. Ekki til að end- urheimta þá náttúruperlu sem Vatnsmýrin í raun er, til að fara að ákvæðum Ramsar- sáttmálans um endurheimt votlendis. Nei, nærtækara er að nýta Vatnsmýrina undir íbúðarbyggð enda mikil þörf á fjölgun íbúða. Náttúran víkur, hags- munir íbúa ráða. Stórfelld uppbygging á suð- vesturhorninu hefur verið tryggð með nánu samstarfi sveitarstjórna á svæðinu. Fulltrúar ólíkra stjórn- málaflokka hafa í gegnum tíðina flestir verið sammála um að tryggja heildarhagsmuni íbúa hverju sinni. Leiðtogar skipta máli Einn áhrifamesti og farsæl- asti kjörni fulltrúi undanfarna áratugi á þessu svæði er efalít- ið Sveinn Kristinsson á Akranesi. Sem bæjarfulltrúi um áratugaskeið á Akranesi hefur hann ásamt félögum sínum á höf- uðborgarsvæðinu lyft grettistaki íbúum til heilla. Hann hefur stutt dyggilega upp- byggingu atvinnufyrirtækja á Grundar- tanga og sem stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur og síðar starfsmaður lagði hann sitt lóð á vogarskálar virkjana á Hellisheiði. Sem bæjarfulltrúi á Akranesi studdi hann hugmyndir um lagningu vegar við Grunnafjörð. Allt samviskusamlega gert með það að leiðarljósi að auðvelda byggð á sínu svæði. Íbúar treystu dóm- greind hans í þessum málum. Hagsmunir íbúa hafa ráðið för. Trjágróður í forgangi Byggð á Vestfjörðum hefur átt undir högg að sækja á undanförnum áratugum. Atvinnulíf hefur gengið í gegnum miklar breytingar og látið stórlega á sjá. Uppbygg- ing innviða þar er langt á eftir öðrum lands- hlutum. Rafmagn er ótryggt og treyst á orku frá öðrum landshlutum um veikt dreifikerfi. Stóran hluta árs er stólað á framleiðslu rafmagns með olíu. Þrífasa raf- magn er ekki til staðar víða í dreifbýli og hamlar mjög uppbyggingu atvinnukosta. Fjarskipti eru veikburða og netsamband víða fjarri því sem aðrir landshlutar búa við. Þrátt fyrir framfarir í vegasamgöngum er staðan sú að sunnanverðir Vestfirðir eru 60 árum á eftir öðrum landshlutum. Ráðleg- ur hámarkshraði drjúgs hluta vegakerfisins þar er enn 20-30 km/klst. Skilningur hefur undanfarin ár verið fyrir endurbótum til að tryggja heilsárs vegasamband milli svæð- isins og annarra landshluta. Þær fram- kvæmdir hafa legið niðri í nokkur ár vegna deilna um vegagerð um svonefndan Teigs- skóg. Þrátt fyrir augljósa hagsmuni íbúa hafa aðrir hagsmunir vegið þyngra. Mestu ráða hagsmunir tveggja landeigenda í nefndum Teigsskógi. Ekki vegna búsetu þeirra þar þá fáu daga er þeir dvelja þar í sumarhúsum sínum árlega heldur vegna kjarrlendis. Ekki vegna þess að það sé ósnortið, enda fyrir löngu búið að ryðja þar í gegn vegslóða til nota fyrir landeigendur og gesti þeirra. Í öðrum landshlutum hafa almennir hagsmunir íbúa ráðið en á sunn- anverðum Vestfjörðum ráða hagsmunir tveggja landeiganda sem drepa þar niður fæti nokkra daga á ári. Þarna ráða ekki hagsmunir íbúa. Uppbygging víkur Atvinnulíf á Vestfjörðum hefur á síðustu árum rétt úr kútnum, einkum vegna upp- byggingar laxeldis. Laxeldi á Vestfjörðum er byggt á ákvörðun sem tekin var 2004 um að loka stærstum hluta strandlengju Ís- lands fyrir laxeldi, en beina því í staðinn á þau svæði þar sem litlar sem engar lax- veiðiár eru. Íbúum er tekið að fjölga á sum- um svæðum Vestfjarða, nokkuð sem fyrir örfáum árum var talið ómögulegt. Þegar laxeldið var að komast á legg kom fram fé- lagsskapur veiðirétthafa sem kvaðst beita öllum tiltækum ráðum til þess að koma í veg fyrir þessa atvinnuuppbyggingu, þrátt fyrir að hverfandi laxveiði sé í ám á Vest- fjörðum. Þeir hafa svo sannarlega staðið við þá hótun og eru nú með færustu lagatækna landsins í vinnu. Á dögunum birti Hafrannsóknastofnun svo áhættumat þar sem lögð var til stöðvun uppbyggingar laxeldis í Ísafjarðardjúpi vegna laxveiða í þremur ám. Áætlað hefur verið að byggja upp í Djúp- inu um 30 þúsund tonna laxeldi. Áætlað út- flutningsverðmæti þess eldis er áætlað um 25 milljarðar á ári. Byggðastofnun telur að um 200 bein og afleidd störf skapist við hver tíu þúsund tonn laxeldis. Samtals gætu því 600 bein og óbein störf orðið til í byggð- um við Ísafjarðardjúp vegna laxeldis. Því er um gríðarlega beina fjárhagslega og byggðalega hagsmuni að ræða. Ráði áhættumat Hafrannsóknastofnunar munu þessir hagsmunir víkja. Fyrir hverju? Tekjur af umræddum þremur ám í Ísa- fjarðardjúpi, Hvannadalsá, Laugardalsá og Langadalsá eru í besta falli 20-25 milljónir á ári. Ekkert starf hefur skapast á Vest- fjörðum vegna þessarar starfsemi, svo vit- að sé. Hver eru hin náttúrulegu verðmæti í þessum ám sem í hættu geta verið vegna hugsanlegra slysa við laxeldi? Engin þeirra státar af sínum upprunalega náttúrlega stofni heldur hefur um árabil verið stunduð þar skipuleg laxarækt með stofnum annars staðar frá. Ein þessara áa, Laugardalsá, er í grunninn ekki laxveiðiá. Hún varð það ekki fyrr en hún var sprengd upp og í hana byggður mikill laxastigi. Ekki er hér lagt til að slík á skuli flokkuð sem manngert leiktæki, en fráleitt er hún náttúruverð- mæti. Veiði í þessum ám er hverfandi. Á síðasta ári voru dregnir úr ám laxar um þrjú hundruð sinnum, sumir oftar en aðrir. Það eru hagsmunir um tylftar veiðirétthafa þessara laxa sem eiga að ganga framar hagsmunum þúsunda íbúa svæðisins. Þarna ráða ekki hagsmunir íbúanna. Eigi skal virkja Eva Sigurbjörnsdóttir hefur um árabil barist fyrir byggð í Strandasýslu, allt frá því að hún settist þar að og hóf rekstur í Djúpuvík. Hún hefur á undanförnum árum verið í fararbroddi sveitarstjórnarmanna á svæðinu líkt og áðurnefndur Sveinn syðra og hefur ásamt sveitungum sínum barist fyrir og trúað á möguleika á blómlegri byggð og viljað láta hagsmuni íbúa ráða. Hún hefur viljað tryggja að íbúar njóti í einhverjum mæli nútímaþæginda sem sjálf- sögð þykja í öðrum landshlutum. Um margra ára skeið hefur verið unnið að virkj- un Hvalár í Ófeigsfirði og hefur sá virkj- anakostur ágreiningslaust verið í nýting- arflokki. Hörðustu andstæðingar frekari virkjana hafa aldrei talið nauðsynlegt að hún fari í verndunarflokk enda er þar um að ræða afturkræfar framkvæmdir. Með virkjun Hvalár verða stigin löngu tímabær framfaraskref. Ekki bara í Strandasýslu heldur einnig á Vestfjörðum öllum. Af þeirri ástæðu hafa flestir sveitarstjórnarmenn í gegnum tíðina stutt virkjanir og Eva er þar engin undantekning. Nýlega, þegar undirbúningur virkjunar Hvalár er á lokastigi, kom fram hópur fólks sem er andsnúinn henni. Hópurinn telur að með virkjuninni hverfi ósnortin víðerni á Vestfjörðum og hagsmunir þeirra eigi að hafa forgang, á kostnað íbúa. Einn forvígismanna þessa hóps er Sveinn Krist- insson á Dröngum, sem þar hefur búsetu hluta úr sumri. Í fjölmiðlum hefur Sveinn á Dröngum lýst þeirri skoðun sinni að með bættum búsetukostum í kjölfar virkjunar- innar sé verið að bera fé á íbúa á Strönd- um. Það sé alþekkt leið sem orkufyrirtæki hafi oft nýtt sér! Hvað skyldu stjórn og starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur segja við því? Sveinar kallast á Í Sveini Kristinssyni á Dröngum og Sveini Kristinssyni á Akranesi kristallast mismunandi hagsmunamat fólks eftir bú- setu. Sveinn á Dröngum, sem aðeins býr lít- inn hluta ársins á Dröngum, telur huglæga hagsmuni sína eiga að ganga framar hags- munum þeirra er hafa trú á áframhaldandi mannlífi allt árið á Ströndum. Sveinn á Akranesi telur hins vegar að hagsmunir íbúa á höfuðborgarsvæðinu eigi að ganga fyrir þar til að tryggja blómstrandi mannlíf. Sveinninn syðra vill nýta sér til hagsbóta og þæginda allt sem náttúran getur gefið. Sá á Dröngum vill að geta drepið niður fæti á Ströndum og þar eigi allt að vera eins og áður. Ólíkar skoðanir þessara tveggja sveina vekja nokkrar spurningar: Á ekki að ríkja jafnræði milli landshluta þegar innviðir þeirra eru byggðir upp? Er eðlilegt að örfá- ir íbúar suðvesturhornsins geti heft eðlileg- ar framfarir í byggð á Vestfjörðum? Eiga íbúar á Vestfjörðum að vera safnverðir horfinna lífshátta og samgangna svo örfáir aðrir íbúar landsins geti örstutt drepið þar niður fæti, hallað sér aftur í kvöldsólinni og angurværir rifjað upp liðna tíð? Best væri að Sveinn á Akranesi myndi taka Svein á Dröngum tali og reyni að fá hann ofan af því að hlusta bara á íbúa á Tvískinnungi og Eiginhagsmunum. Þannig tryggjum við jöfn tækifæri og jafnræði allra landsmanna. Eftir Halldór Jónsson » Á ekki að ríkja jafnræði milli landshluta þegar innviðir þeirra eru byggðir upp? Er eðlilegt að örfáir íbúar suðvesturhornsins geti heft eðlilegar framfarir í byggð á Vestfjörðum? Halldór Jónsson Höfundur er rekstrarstjóri á Akranesi. Takast á sveinar tveir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.