Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 23

Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 23
✝ María Jóns-dóttir fæddist á Akureyri 13. febr- úar 1958. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 26. júlí 2017. Foreldrar henn- ar voru Karítas Snjólaug Krist- insdóttir, f. 26. september 1928, d. 18. ágúst 1993, og Jón Stefánsson, f. 9. maí 1931, d. 3. ágúst 1991. Var hún eina barn þeirra. María ólst upp hjá móður sinni á Árhóli á Dalvík. Á heimilinu bjuggu einnig móðursystir henn- ar, Rósa Laufey, móðuramma og móðurafi. 16 ára gömul fór María í nám í Samvinnuskólann á Bifröst og í framhaldi af því í María og Sigurjón hófu bú- skap í Reykjavík árið 1976 og bjuggu þar í tvö ár. Þá fluttu þau til Akureyrar, þar sem þau bjuggu allt til ársins 1995 þegar þau fluttu aftur til Reykjavíkur. María fór þá í grunnnám við Myndlistaskólann í Reykjavík og fór að því loknu í Listaháskóla Íslands, þaðan sem hún útskrif- aðist með BA-próf í textílhönnun árið 2000. Haustið 2011 hóf María nám í margmiðlunarhönnun við Iðn- skólann í Reykjavík. Hún útskrif- aðist þaðan árið 2013. Auk þess að búa á Íslandi bjó María um tíma í París og í Brussel. María starfaði lengst af við bókhald en fyrir andlát sitt starf- aði hún sem fjármálastjóri hjá Iceland ProTravel. Í desember 2016 greindist María með illkynja heilaæxli. Útför Maríu verður gerð frá Háteigskirkju 8. ágúst 2017 og hefst athöfnin klukkan 13. Samvinnuskólann í Reykjavík, þaðan sem hún lauk versl- unarprófi árið 1978. 14. desember 1980 giftist María Sigurjóni Sigur- björnssyni frá Hrís- ey, f. 29. júlí 1955. Þau skildu. María og Sigurjón eign- uðust tvær dætur: 1) Lilja Ösp, f. 16. september 1980, maki Yngvi Karl Sigurjónsson f. 15. ágúst 1982. Þeirra börn eru Sunna María, f. 7. október 2007, Katla Karítas, f. 1. október 2009, og Elmar Karl, f. 24. nóvember 2015. 2) Hrefna Karítas, f. 23. júní 1987, gift Eiríki Erni Þorsteins- syni, f. 21. október 1987. Það er sárt að kveðja ein- staka vinkonu allt of snemma. Við vorum 42 sem útskrifuðumst á sólríkum vordegi úr Sam- vinnuskólanum á Bifröst 1. maí 1976. Lífið blasti við og lok þess voru í huga okkar flestra í margra ljósára fjarlægð. Þau tvö ár sem við vorum saman í bekk áttum við sem þetta ritum, Lára og Jóhanna, kannski ekki svo margt sameig- inlegt, annað en þennan stað, þessa félaga, kennara og náms- greinar. Við bundumst þó sterk- um böndum, trygglyndi Maríu á vafalaust stærstan þátt í því. Áratugum seinna, við breytt- ar aðstæður í lífi hverrar og einnar, kom í ljós að við áttum ýmislegt sameiginlegt. Við vor- um listhneigðar, vildum bara gera það sem okkur sýndist burtséð frá því hvað öðrum fannst. Langaði kannski bara að vera bóhemar, skapa og njóta lífsins. Við urðum nánar vinkon- ur. Samveru okkar og verkefn- um fylgdi mikill húmor, stund- um svartur á okkar kostnað. Við fórum í ógleymanlegar ljósmyndaferðir, þar sem við gistum í Bárðarbúð á Hellnum á Snæfellsnesi og í Kvígindisfirði í Barðastrandarsýslu. Við héldum listsýningar í stofunni í Bakkat- úni á Akranesi. Við gáfum út bók. Við fórum í heimsóknir og gátum ekki verið verklausar, oft var vesenið okkar eitthvað smá- legt sem alla jafnan flokkast ekki undir skemmtanir. Það að skrifa skólafélögum okkar póst- kort á þýsku, klára uppvaskið af metnaði eða að fara með drasl í Sorpu varð hjá okkur í það minnsta eins fyndið og fokdýrar skemmtanir í heimsklassa. Við voru ólíkar, ein var uppá- tektarsöm og stökk af stað með galna hugmynd, önnur tók hlæj- andi undir en María gagnrýndi okkur hinar af hlýju. María var samviska okkar, hún setti ákveðinn standard sem við urð- um að fylgja. Hún leysti úr ýmsum flækjum í öllum merkingum þess orðs, garnið átti ekki að vera í bendu, hemja varð greinar í skreyting- um svo hið smáa fengi líka að njóta sín. Hún kláraði erindi okkar hinna í erlendum stór- borgum á tungumáli heima- manna, þegar við strönduðum. Hún kenndi okkur að það að tína bláber var list og þau voru af fleiri tegundum en við höfðum nokkur tímann heyrt um. Hún hélt okkur að verki þar sem annars staðar. Hún var til viðræðu á kaffi- húsi eða í símanum þegar við sáum ekki fram úr okkar mál- um. Við gátum treyst því að hún var hreinskiptin í öllum þeim samskiptum. Samræðurnar voru skapandi og oft krefjandi því María var föst fyrir. Við rædd- um margt saman tvær eða þrjár sem ekki var rætt annars stað- ar, við byggðum líka skýjaborgir um fleiri ævintýri, í því fólst svo mikil gleði. En nú sitjum við eftir tvær, Lára og Jóhanna, dálitið hnípn- ar með tár á hvarmi. Í fanginu erum við með fallegu púðana með ljóði Jónasar: „Háa skilur hnetti …“ og við horfum á gler- píramídana svo hvassa að innan en slétta að utan, listaverkin sem María skapaði. Við erum þakklátar. Það var okkar gæfa að eiga Maríu fyrir vinkonu og félaga, við munum sakna hennar þann spöl sem við eigum ógeng- inn í lífinu. Lilju Ösp, Hrefnu Karitas, fjölskyldum og öðrum ástvinum Maríu vottum við samúð. Jóhanna Leópoldsdóttir. Það þyrftu allir að hafa átt vin eins og Maju, því heilli og trúrri manneskja er vandfundin. Hún Maja mín fór ekki með himinskautum og því áttaði fólk sig ekki alltaf á hverslags eð- almanneskja hún var en þegar tengingin var komin átti fólk hauk í horni þar sem hún var, enda var hún vinamörg. Vegna þess hversu hrein í lund hún var, þýddi ekki að bjóða henni upp á froðusnakk eða hálfkæring. Það var fádæma gott að ræða við hana um það sem efst var á baugi því hún var fljót að átta sig og hafði svo greinandi og velviljaðan huga. Ég vona að ég hafi líka getað lagt eitthvað til. Við Maja kynntumst þegar við vorum 13 ára í sumarbúðum á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit. Þarna vorum við eina dásamlega viku í tvö sumur. Ekki þurftum við lengri tíma til að verða bestu vinkonur og til að halda í hvor aðra gerðumst við pennavinkon- ur. Maja ólst upp á Dalvík og voru tengslin sterk við fallega bæinn hennar og ekki síst við fjöllin og náttúruna þar í kring. Maja elskaði að spá í draumana sína og oftar en ekki voru fjöllin og berjabrekkurnar fyrir ofan Dalvík í þeim. Þegar Maja flutti um tvítugt til Akureyrar með manni og dætrum endurnýjuðum við kynnin. Nú var hún komin í nýtt hlutverk og ekki skyldi það vera verr unnið en skólagangan en afburðanámsmaður var hún. Eftir Akureyrardvöl flutti fjölskyldan suður og Maja fór í listaháskólann auk þess að leggja stund á frönsku. Þegar stelpurnar hennar voru orðnar sjálfbjarga tóku við nýir tímar og Maja gjörbylti lífi sínu, skildi við eiginmanninn, kúplaði sig út úr fyrirmyndarhúsmóðurhlut- verkinu og gerðist lífskúnstner. Þar vandaði hún sig eins og með annað. Hún fékk mikinn áhuga á því að lifa lífinu lifandi, flutti tímabundið til útlanda þar sem hún naut lífsins og lagði áfram stund á frönsku. Mataræðið breyttist í lífrænt og hollt. Kál, fræ og kókosolía fékk heiðurs- sess og áhuginn beindist líka mjög að því hvernig hún gæti orðið besta útgáfan af sjálfri sér. En það voru fleiri breytingar í lífi hennar, og það var að hreinsa til í efnislegum hlutum. Hún ýmist gaf, henti eða seldi meirihluta búslóðar sinnar. Bíll- inn fékk líka að fjúka og eftir það fór hún allra sinna ferða gangandi eða með strætó. Ekki var til að tala um að sækja hana eða skutla. Sem dæmi um hvað hún var einörð í að bjarga sér sjálf þá má nefna skötuboðið mitt á Þorláksmessu á síðasta ári. Ekki átti ég von á henni í veisluna þar sem hún hafði verið skorin einungis viku fyrir jól. En viti menn, Maja mín ætlaði ekki að missa af veislunni og þverneitaði að láta sækja sig. Þrátt fyrir alvarleg veikindi mætti hún til okkar, ræktarsöm eins og ávallt. Svona var bara elsku sjálfstæði og ræktarlegi dugnaðarforkurinn minn. Þegar eitthvað stóð til í litlu fjölskyldunni minni, afmæli, kór- tónleikar o.s.frv. var sjálfsagt að hóa í Maju. Hún skipti okkur máli. Fjölskyldu sína elskaði Maja meira en allt annað og fátt sem hún vildi ekki fyrir hana gera en trú sjálfri sér og sinni lífsskoðun vildi hún ekki stjórna þeim en einungis styðja og vera til hjálpar reiðubúin. Hún fór hljótt um lífið hún vinkona mín en samt setti hún svo falleg fótspor á jörðina og inn í líf þeirra sem henni þótti vænt um. Elsku trygga og trúa Maja, þakka þér fyrir allt. Þín verður sárt saknað. Við sjáumst síðar því vinátta okkar er skrifuð í skýin. Inga Jóhannsdóttir. Fyrir tveimur vikum vorum við þrjár vinkonur og gamlir vinnufélagar samankomnin gegnum netið og minntumst Helgu, fjórðu vinkonunnar. Eygló var í Svíþjóð, en Álfhildur og Maja í Kópavogi, þar sem Maja lá á líknardeildinni. Og núna erum við að kveðja Maju, hana duglegu Maju okkar, sem ætlaði að sigrast á krabba- meininu en þurfti að lokum að lúta í lægra haldi. Maja var svona manneskja sem fékk hugmyndir og fram- kvæmdi. Ekki eins og við sem segjum að: það væri gaman að gera þetta og hitt, og gerum svo ekki neitt. Hún framkvæmdi. Hún skellti sér t.d. í frönskunám í Frakklandi og var au pair í Brussel. Og íbúðirnar sem hún gerði upp og leigði svo út her- bergi til erlendra námsmanna af því henni fannst svo gaman að hafa fólk í kringum sig. Hún vann mikið. Kannski of mikið. Eldklár og rosalega ná- kvæm. Við vorum reyndar báðar hálfsmeykar við hana þegar við byrjuðum að vinna með henni, héldum að hún væri svo ströng en það var nú áður en við kynnt- umst henni og hennar endalausu umhyggju og vináttu. Við áttum eftir að eiga ótalmargar góðar stundir saman, hvort sem það var á kaffihúsahittingum, í utan- landsferðum eða á íslenskri kosningavöku á krá í Kaup- mannahöfn. Takk fyrir allt elsku Maja okkar. Góða ferð. Við sjáumst. Álfhildur og Eygló. Hún María okkar tapaði að lokum baráttunni við sjúkdóm sinn. Tíðindin um andlát hennar voru mjög sár, þó að allir vissu í hvað stefndi. María hóf störf hjá okkur um það leyti þegar miklir uppgangs- tímar í ferðaþjónustunni voru að byrja. Hún hafði í sjálfu sér ekki mikið komið nálægt greininni okkar en það var aðdáunarvert hversu fljót hún var að tileinka sér alla þá siði og venjur sem þar tíðkast. Hún tók að sér bók- halds- og gjaldkerastörf með miklum skörungsskap og það var gott að hafa einhvern með báða fæturna á jörðinni. Öllum þótti gott að leita til hennar og fá hjá henni góð ráð. Þar sem ég er búsettur erlendis, þá varð ég að treysta á hana í einu og öllu, hún stóð sig frábærlega. María var ekki bara úrvals fagmanneskja, nákvæm og fylgin sér, heldur var hún fyrst og fremst traust og skemmtileg samstarfskona. Við María áttum oft ansi fjörlegar samræður um landsmálin og pólitíkina hér á landi. Hún hafði mjög ákveðnar skoðanir á flestum málum, bar hag þeirra sem minna mega sín fyrir brjósti og barðist gegn óréttlæti. Mér fannst oft gaman að takast á við hana um lands- málin og kallaði hana í gríni, mesta „sósíalista“ nútímans, þó hún hafi fengið sína skólun í vöggu Framsóknarmanna á Bif- röst. Vinnustaður okkar verður ekki sá hinn sami eftir fráfall Maríu, við berum sorg í hjarta og söknum hennar mikið. Mest er þó sorg dætra hennar og fjöl- skyldu og vottum við þeim okk- ar dýpstu samúð. Við þökkum Maríu fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman og biðjum fyrir að hún fái að hvíla í friði. Fyrir hönd samstarfsfólks Island ProTravel, Guðmundur Kjartansson. María Jónsdóttir  Fleiri minningargreinar um Maríu Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI BJÖRGVINSSON, Leynisbraut 3, Akranesi, lést fimmtudaginn 27. júlí. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 11. ágúst klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Sjúkrahúss Akraness. Ingibjörg Sigurðardóttir Ása Helgadóttir Halldór Sigurðsson Hannes Jón Helgason Ásgerður Káradóttir Anna Helgadóttir Kristján Sigurðsson Helga Björg Helgadóttir Páll Erlingsson og afabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir, mágkona, tengdadóttir, frænka og vinkona, GUÐRÚN BIRNA KJARTANSDÓTTIR lést 29. júlí. Útför hennar verður gerð frá Digraneskirkju fimmtudaginn 10. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja styðja fjölskyldu Guðrúnar Birnu er bent á fjárvörslureikning í þágu fjölskyldunnar. Fjárvöruslureikningurinn er í umsjá Lögfræðistofu Reykjavíkur. Reikningur nr. 0133-26-370265. Kennitala 560500-2890. Guðmundur Freyr Sveinsson Kjartan Sveinn, Bjarki Freyr og Anna Katrín Katrín Þórlindsdóttir Kjartan Örn Sigurbjörnsson Þórlindur Kjartansson Ingunn Hafdís Hauksdóttir Guðný Anna Theódórsdóttir Sveinn Jónasson vinkonur og vinir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL EINARSSON Kalli í Klöpp, Vallargötu 21, Sandgerði, sem lést 27. júlí, verður jarðsunginn frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði miðvikudaginn 9. ágúst klukkan 13. Þökkum auðsýnda samúð og hugheilar þakkir til starfsfólks Nesvalla í Reykjanesbæ. Gréta Frederiksen Ólína Alda Karlsdóttir Lárus Óskarsson Snæfríður Karlsdóttir Pétur Guðlaugsson Margrét Helma Karlsdóttir Karl Ólafsson Reynir Karlsson Júlía Óladóttir Karl Grétar Karlsson Margrét Jónasdóttir Alda Karlsdóttir Danté Kubischta barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir minn, tegndafaðir, afi og langafi, BJARNI GUÐJÓNSSON, Garðsenda 15, Reykjavík, lést 3. ágúst á Vífilsstöðum. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. ágúst klukkan 13. Lóa May Bjarnadóttir Benedikt Lövdahl Bjarni Benediktsson Pétur Þór Benediktsson Anna Kristín Guðmundsdóttir Ása Diljá og Dagbjört Lóa Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, SKAPTI ÓLAFSSON Maríubakka 2, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin. Kolbrún Gunnarsdóttir Stella Skaptadóttir Ólafur Elísson Sævar Skaptason Bryndís Óladóttir Steinn Skaptason Ólöf J. Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.