Morgunblaðið - 08.08.2017, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.08.2017, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Halldór Þórhallsson hefur rekið matsöluna Hjá Dóra í Mjódd-inni frá 1996. Hann fagnar 60 ára afmæli sínu í dag og munhalda upp á tímamótin með því að fara með eiginkonu, börn- um og barnabörnum til Benidorm á Spáni. „Þetta er aðallega góður heimilismatur sem við erum með, lamba- læri, purusteik, kjúklingur, djúpsteikt ýsa, fiskibollur o.s.frv. Við er- um alltaf með sex fasta rétti og svo tvo breytilega hvern dag þannig að fastagestirnir eru farnir að vita að það er snitsel á miðvikudögum og föstudögum og fiskibollur á mánudögum og fimmtudögum. Opn- unartíminn er frá hálf tólf til hálf tvö og frá kl. fimm til sjö. Þar á milli erum við að elda fyrir kvöldið því við viljum ekki láta matinn standa allan daginn. Við viljum fríska þetta upp á milli.“ Áhugamál Halldórs eru laxveiðar, fótbolti og myndlist. „Mér finnst gaman að njóta góðrar myndlistar, ég horfi bæði á enska og íslenska boltann og svo fer ég alltaf reglulega í laxveiði. Síðustu ár hef ég farið í Leirvogsá og í Laxá í Refasveit, það eru fastir liðir.“ Eiginkona Dóra er Stefanía Þóra Flosadóttir, sem sér um bókhald Hjá Dóra. Þau hafa verið saman síðan 1980. Dætur þeirra eru Tinna, f. 1982, og Sara, f. 1983, barnabörnin eru orðin fjögur og eitt er á leið- inni. Með tvo væna Halldór staddur í Laxá í Refasveit, A-Hún. Hefur rekið matsöl- una Hjá Dóra í 20 ár Halldór Þórhallsson er sextugur í dag A nna Stefánsdóttir fædd- ist 5. ágúst 1947 á sjúkrahúsinu á Akur- eyri. Hún ólst upp á Grund í Svarfaðardal þar sem foreldrar hennar bjuggu til ársins 1960. Flutti hún þá með fjöl- skyldu sinni til Dalvíkur. „Eftir að við fluttum til Dalvíkur var ég tvö sumur kaupakona á Hóli í Svarfaðardal. Ég gekk í grunnskól- ann á Húsabakka í Svarfardal og síðar í gunnskóla Dalvíkur. Húsa- bakki var heimavistarskóli og þar var ég í heimavist þó að heimili mitt væri nánast í göngufæri.“ Anna lauk námi frá Hjúkrunar- skóla Íslands árið 1968, diploma í gjörgæsluhjúkrun frá Háskóla- sjúkrahúsinu í Edinborg 1975 og MS-gráðu í hjúkrunarstjórnun frá Edinborgarháskóla árið 1988. „Að loknu námi í hjúkrunarfræði flutti ég til Edinborgar með Jóni Péturs- syni eiginmanni mínum. Hann stundaði nám í eðlisfræði við Ed- inborgarháskóla. Við bjuggum þar í átta ár og síðar í eitt ár.“ Anna starfaði við hjúkrun og hjúkrunarstjórnun alla starfsævina lengst af á Landspítala, síðast sem hjúkrunarforstjóri í alls 17 ár. Hún fór á eftirlaun 65 ára. Anna hefur ætíð verið virk í félagsmálum. Hún sat í stjórn deild- ar hjúkrunarstjórnenda 1988-1998 og var stofnandi deildar gjörgæslu- hjúkrunarfræðinga í HFÍ. Hún var einnig stjórnarmaður í Samtökum evrópskra hjúkrunarstjórnenda 2003-2011. Anna var formaður Rauða kross Íslands 2008-2014. Hún er félagi í Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi og var forseti þar 2009- 2010. Anna fékk riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu heilbrigðis- og mannúðarmála 2016. „Ég er mikil áhugakona um upp- Anna Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur – 70 ára Fjölskyldan Anna, börn, tengdabörn og barnabörn á heimaslóðum á Dalvík fyrir rúmri viku. Uppbygging Land- spítala efst í huga Hjónin Anna og Jón í gönguferð á Hornströndum árið 2009. Ívar Nói Karlsson, Arnar Steinn Þórarinsson og Elín María Þórarinsdóttir söfn- uðu fyrir utan Bónus í Hraunbæ 13.278 kr. til styrktar börnum í Sýrlandi og fjöl- skyldum þeirra og gáfu Rauða krossinum að gjöf. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.