Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Nýr tónlistarskóli, Menntaskóli í
tónlist (www.menton.is) varð til fyrr
á árinu við sameiningu framhalds-
deilda Tónlistarskóla FÍH og Tón-
listarskólans í Reykjavík. Kjartan
Óskarsson er skólameistari hins ný-
stofnaða skóla en hann var áður
skólastjóri Tónlistarskólans í
Reykjavík.
Eins og nafn nýja skólans gefur til
kynna er um að ræða framhalds-
skóla og verður bæði boðið upp á
stúdentsbraut og almennar náms-
brautir í tónlist. Hefðbundnu bók-
námsgreinarnar sem tilheyra stúd-
entsnáminu verða fyrsta kastið
kenndar við Menntaskólann við
Hamrahlíð en boðið upp á mikla
breidd af tónlistarmiðuðu námi til
stúdentsprófs innan veggja MÍT.
„Með nýjum framhalds-
skólalögum árið 2011 breyttist um-
gjörð stúdentsnáms og vægi kjarna-
greina á borð við íslensku, ensku og
stærðfræði minnkaði og er nú um 69
einingar af samtals 200. Þannig varð
til svigrúm fyrir fjölbreyttara nám,“
segir Kjartan.
Bæði almenna námið og stúdents-
námið hjá MÍT skiptast í klassíska
og rytmíska braut, og er almenna
námið sambærilegt við það fram-
haldsnám sem áður var í boði við
Tónlistarskóla FÍH og Tónlistar-
skólann í Reykjavík, en framboðið af
námskeiðum verður mun meira.
Geta þeir sem vilja stunda sitt stúd-
entsnám við aðra skóla áfram valið
að stunda eingöngu tónlistarnám hjá
MÍT. „Við getum einnig tekið við
nemendum með einingar frá öðrum
framhaldsskólum og metið það til
stúdentsprófs frá Menntaskólanum í
tónlist,“ útskýrir Kjartan.
Geta komist fyrr af stað
Með því að bjóða upp á tónlistar-
miðað stúdentsnám skapast áhuga-
verðir nýir möguleikar fyrir ungt
fólk sem vill setja stefnuna á að
starfa við tónlist. Bendir Kjartan t.d.
á að með því að sameina krafta
tveggja tónlistarskóla sé hægt að
bjóða upp á fleiri og fjölbreyttari
námskeið. „Hjá MÍT koma saman
tveir mjög öflugir tónlistarskólar
sem hafa verið leiðandi hvor á sínu
sviði; annar stofnaður snemma á 9.
áratugnum og hinn stofnaður fyrir
seinna stríð; annar sérhæfður í
klassísku tónlistarnámi og hinn í
rytmísku. Um leið verður til vett-
vangur þar sem koma saman nem-
endur úr tveimur heimum, ef svo má
segja.“
Stúdentsbrautin ætti líka að vera
þægilegri leið fyrir nemendur sem
vilja hella sér út í tónlistarnámið án
þess að þurfa að láta framhalds-
skólanámið mæta afgangi: „Nem-
endurnir eru þá ekki að koma til
okkar í tíma eftir að hafa verið fullan
skóladag við einn af mennta-
skólunum,“ segir Kjartan og tekur
undir það með blaðamanni að stytt-
ing náms til stúdentsprófs geti aukið
mjög álagið á þeim sem hingað til
hafa tekið framhaldsnám í tónlist
samhliða fullu framhaldsskólanámi.
Nýja stúdentsnámið getur líka
hjálpað unga tónlistarfólkinu að
hefja starfsferilinn fyrr, og komast
fyrr í framhaldsnám erlendis. „Tón-
listarfólk hefur yfirleitt ekkert voða-
lega mörg ár til að ná þeirri tækni-
legu færni sem það þarf að búa yfir,
og verður oftast að vera komið á
ákveðinn stað um tvítugt eftir að
hafa tekið tónlistarnámið mjög föst-
um tökum. Við flesta tónlistarhá-
skóla erlendis þekkist að nemendum
er ekki hleypt í bachelor-nám ef þeir
eru komnir eru yfir 23-24 ára ald-
urinn,“ segir Kjartan og bætir við að
að þessu leyti sé verið að færa náms-
framboðið á Íslandi nær því sem
þekkist í Evrópu, þar sem hefð er
fyrir menntastofnunum sem tvinna
saman menntaskólanám og nám í
listum. „Þannig skólar hafa starfað
lengi í Austur-Evrópu, s.s. Tékk-
landi og Ungverjalandi, og bjóða
ekki aðeins upp á tónlistartengt nám
heldur einnig nám í leiklist, dansi og
öllu mögulegu.“
Menntaskólinn í tónlist mun hefja
starfsemi í haust og samkvæmt
samningi við stjórnvöld hefur skól-
inn heimild til að kenna 200 nem-
endum. Nú þegar hafa 204 nem-
endur verið skráðir til náms í vetur,
en Kjartan segir að það sé eðlileg
tala enda von á að einhverjir hætti
við á síðustu stundu og að nýir nem-
endur sækist eftir að fá skólavist í
byrjun vetrar. Mikill meirihluti
nemenda mun stunda nám á al-
mennri braut en 27 hafa skráð sig í
nýju stúdentsbrautina og skiptist sá
hópur n.v. jafnt á milli klassíska og
rytmíska námsins.
Atvinnuhorfurnar góðar
En af hverju ætti ungt fólk að vilja
mennta sig í tónlist, og jafnvel taka
tónlistarmiðað stúdentspróf? Er
ekki óttalegt hark að vera tónlist-
armaður á 21. öld, og skynsamlegra
að reyna að komast á eðlisfræði- eða
náttúrufræðibraut við einhvern
rótgróinn menntaskólann, læra svo
Útlit er fyrir að tæplega 30 nemendur hefji stúdentsnám við nýjan Menntaskóla í
tónlist í haust Kjartan Óskarsson skólameistari segir spennandi atvinnumarkað
bíða íslensks tónlistarfólks og að íslenska tónlistarsenan skapi allt að 2.000 stöðugildi
Tónlist er risastór
atvinnugrein
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lífsgæði Kjartan segir blómlega tónlistarsenu laða að bæði íbúa, ferða-
menn og fjárfesta. Fólk vill vera þar sem tónlistin er. Úr Eldborgarsal.
Sýning á verkum Ingibjargar
Hönnu Pétursdóttur, fata- og text-
ílhönnuðar, verður opnuð í Kirsu-
berjatrénu, Vest-
urgötu 4 í
Reykjavík, í dag
kl. 17.
Sýningin nefn-
ist Farvegir og
hefur m.a. að
geyma veggverk,
skúlptúra, teppi
og fiska, með
hreinni og óunn-
inni ull, þæfingu,
prjóni
og endurunnum textíl frá þessu og
síðasta ári.
„Ég sé verkin mín sem tækifæri
til að veita innblástur og kalla fram
tilfinningar með tengingu trefja,
skapa nýtt jafnvægi og fæ inn-
blástur af samspili ullar, náttúru og
endursköpunar. Verkin endurspegla
ákveðið hringrásarferli og ferðalag
textílsins skapar sögu hvers stykkis
og gerir það einstakt,“ segir Ingi-
björg Hanna um sýninguna.
Hún er með BA-próf frá Hoge-
school voor de Kunsten Utrecht
(HKU) og Master of Art European
Fashion and Textiles Design frá
Institut Français de la Mode Paris
(IFM).
Hönnunin farið víða
„Ingibjörg Hanna hefur til að
bera víðtæka reynslu á sviði fata- og
textílhönnunar. Hún hefur rekið eig-
ið fyrirtæki HANNA felting og tekið
þátt í fjölmörgum sölusýningum er-
lendis. Markaðssett og selt eigin
hönnun til verslana víðsvegar um
Evrópu, Bandaríkin og Japan,“ seg-
ir m.a. í tilkynningu um sýninguna.
Sýningin í Herbergi Kirsuberja-
trésins verður opin til og með 13.
ágúst nk. og á afgreiðslutíma versl-
unarinnar, þ.e. virka daga frá kl. 10-
22 og kl. 10-17 um helgar.
Farvegir Ingi-
bjargar Hönnu
Sýning opnuð í
Kirsuberjatrénu í dag
Textíll Eitt verka Ingibjargar
Hönnu Pétursdóttur á sýningunni.
Ingibjörg Hanna
Pétursdóttir