Morgunblaðið - 08.08.2017, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Veðrið skiptir um gír
2. Mætt á Þjóðhátíð eftir 10 ára fjarveru
3. Heilar kynfæri kvenna
4. Konur gerðar að skiptimynt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
90 ár verða í mars á næsta ári liðin
frá því Natan Ketilsson og Pétur
Jónsson voru myrtir á Illugastöðum í
Húnavatnssýslu. Úr varð eitt þekkt-
asta sakamál Íslandssögunnar sem
endaði með því að Agnes Magnús-
dóttir og Friðrik Sigurðsson voru
hálshöggvin á Þrístöpum í janúar
1830 og var þar um að ræða síðustu
aftökurnar á Íslandi. Sigríður Guð-
mundsdóttir var send til fangavistar í
Kaupmannahöfn. Leikhópurinn Aldrei
óstelandi hyggst rannsaka tildrög
morðanna í uppfærslu sem Marta
Nordal leikstýrir og frumsýnd verður
á Litla sviði Borgarleikhússins í októ-
ber. Margt hefur verið rætt og ritað
um ofangreinda atburði og í leikritinu
verður hluti þess tekinn til greina.
Leikarar í uppfærslunni eru Edda
Björg Eyjólfsdóttir, Íris Tanja Ívars
Flygenring, Stefán Hallur Stefánsson
og Snorri Engilbertsson.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Rannsaka morðin á
Natani og Pétri
Á næstsíð-
ustu sum-
artónleik-
unum í
Listasafni
Sigurjóns
Ólafssonar verður Bösendorfer-flygill
safnsins í aðalhlutverki. Þá leika
ítölsku píanóleikararnir Marco Sco-
lastra og Sebastiano Brusco fjórhent
á flygilinn verk eftir Brahms, Schu-
bert, Verdi, Martucci, Casella og
Tsjaíkovskíj. Scolastra og Brusco eru
báðir afar virtir og eftirsóttir píanó-
leikarar í heimalandi sínu og hafa
unnið til þekktra verðlauna og við-
urkenninga á alþjóðlegum vettvangi.
Heimsókn frá Ítalíu í
Sigurjónssafni í kvöld
Á miðvikudag Breytileg og síðar norðlæg átt 3-10 m/s og víða
skúrir eða rigning, en styttir upp að mestu seinnipartinn. Hiti frá 8
stigum á Norðurlandi, upp í 17 stig suðaustanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðvestan 8-13 m/s með rign-
ingu og súld. Hægari vindur og birtir til eystra, en bætir í vind og
fer að rigna þar í kvöld. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi.
VEÐUR
„Mér finnst ótrúlega gaman
að spila með svo marga
áhorfendur á eftir mér. Það
er kannski leiðinlegt að
maður upplifi það bara einu
sinni á ári því maður nær
aldrei að spila eins og mað-
ur á Íslandsmótinu,“ sagði
Kristján Þór Einarsson m.a.
í samtali við Morgunblaðið
á Seltjarnarnesi í gær eftir
að hafa sigrað í Einvíginu á
Nesinu, árlegu góðgerð-
armóti Nesklúbbsins. »1
Kristján naut sín
vel á Nesinu
Hollendingurinn Lieke Martens var
útnefnd besti leikmaður Evrópu-
keppninnar í knattspyrnu í Hollandi.
Varð hún í þriðja til fjórða sæti yfir
markahæstu leikmenn mótsins og
vann til gullverðlauna með Hollend-
ingum eftir sigur á Danmörku í úr-
slitaleiknum. Er hún samherji Glódís-
ar Perlu Viggósdóttur hjá Rosengård
en er á leið til
Barcelona. »3
Leikmaður mótsins
kemur úr Rosengård
„FH tapaði þar með dýrmætum stig-
um í toppslagnum en þokaði sér upp í
þriðja sætið. Liðið er nú níu stigum á
eftir Val þegar níu umferðir eru eftir,
en liðin mætast einmitt í Kaplakrika í
kvöld og þar verða FH-ingar að sigra
til að eiga séns á að verja Íslands-
meistaratitilinn,“ skrifar Einar Sig-
tryggsson meðal annars um jafn-
teflisleik KA og FH. »2-3
Eru FH-ingar að missa
af titlinum?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Þau Margrét Sesselja Magnúsdóttir
og Stefán Helgi Stefánsson byrjuðu
með verkefnið Elligleði árið 2009.
Hlutverk verkefnisins er að bjóða
öldruðu fólki með minnissjúkdóma
upp á söngskemmtanir. Heimsækja
þau alls 30 staði og eru heimsókn-
irnar komnar vel yfir 2.000 í heild-
ina, segir Stefán Helgi tenórsöngv-
ari í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta myndi ekki ganga án hennar
Margrétar Sesselju. Hún er svo já-
kvæð og frábær einstaklingur, hún
hrífur alla með sér og heldur utan
um verkefnið, bókar alla tíma og
sinnir þessu af heilum hug,“ segir
Stefán.
Söngurinn hrífur fólk með
Hugmynd að verkefninu kemur
frá Sesselju en hún bað Stefán um að
koma og syngja í 90 ára afmæli móð-
ur hennar árið 2009. Móðir Sesselju
var þá mjög veik af alzheimer og
dvaldi á Hrafnistu í Reykjavík. Stef-
án mætti þar ásamt Davíð Ólafssyni
bassasöngvara og sungu þeir nokkur
lög, sem vöktu mikla lukku. Tóku
Sesselja og aðrir eftir að dval-
argestir, sem nánast aldrei sýndu
viðbrögð, sýndu þau allt í einu. Bað
Sesselja því Stefán um að prófa
þetta aftur á öðrum stað. Vakti
heimsóknin aftur mikla lukku og eft-
ir það varð ekki aftur snúið.
Fara á um 15 staði í mánuði
„Við reyndum alltaf að fara einu
sinni í mánuði á hvern einasta stað
en núna höfum við aðeins þurft að
minnka við okkur. Þannig að nú för-
um við á um 15 staði í mánuði og
náum því öllum stöðunum á tveimur
mánuðum,“ segir Stefán um gang
mála. „Fólk með minnissjúkdóma er
oft í sínum eigin heimi en einhvern
veginn þá kemst það aðeins af stað.
Sumir syngja með, aðrir raula og um
leið og maður labbar út þá muna
voða fáir eftir okkur en fólk er samt
ánægt,“ segir Stefán um söngstund-
irnar á dvalar- og hjúkrunarheim-
ilunum. „Það eru tilfinningarnar,
fólkið er hamingjusamt þennan til-
tekna dag. Starfsfólk hefur sagt við
okkur að staðurinn sé allt annar eftir
heimsóknir okkar.“
Stefna á að halda ótrauð áfram
Hann segir að framtíð verkefn-
isins sé björt og sér enga endastöð á
því. Leggja þau upp með að taka eitt
ár í einu og þá frekar að draga úr
heimsóknum heldur en að hætta.
„Við ætlum að halda þessu áfram
á meðan við tórum og nennum, það
er mjög langur tími,“ bætir Stefán
við að lokum.
Elligleði syngjandi sæl í 8 ár
Hafa haldið yfir
2.000 söngskemmt-
anir fyrir aldraða
Gleði Verkefni þeirra Margrétar Sesselju og Stefáns Helga, Elligleði, hefur notið mikilla vinsælda allt frá upphafi.
Stefán nefnir stundum við gestina
að Stefán Íslandi tenórsöngvari
hafi verið langafi hans. Vekur það
mikla kátínu, að hans sögn, enda
margir sem þekkja til Stefáns Ís-
landi og hans ferils. „Þau grípa
stundum að ég sé hann og koma til
mín og þakka mér fyrir tónleika
sem ég hélt eftir seinni heimsstyrj-
öld. Að þau hafi beðið þrjá tíma í
röð og þakkað mér fyrir. Ég tek bara
undir og þakka þeim sömuleiðis,“
segir Stefán. Jafnan eru sungin
gömul og góð lög frá miðri 20. öld á
söngskemmtununum á vegum
Sesselju og Stefáns. „Það er sungið
með og það er svo gaman að þau
verða svo ófeimin mörg. Allt í einu
bresta margir í söng, koma til mín
og halda utan um mig og syngja
eins og við séum í útilegu. Það er
alveg stórkostlegt þegar maður
lendir í svoleiðis,“ segir Stefán um
gleðina á skemmtununum.
Er langafabarn Stefáns Íslandi
FÆR ÞAKKIR FYRIR TÓNLEIKA SEM VORU Á MIÐRI 20. ÖLD