Dagsbrún - 01.06.1896, Qupperneq 1

Dagsbrún - 01.06.1896, Qupperneq 1
IV. Winnipeg, Man. Nr. 6. SMÁVEGIS. Vilja ekki kristnu kennifeðurnir segja oss, hvert sé hið sanna gildi sköpunarsögunnar ? Vér vitum að liún er ekki sönn—að hún mótsegir sjálfri sér. Þær eru tvær sköpunarsögurnar, í 1. og 2. kap. Jfóses. I fyrri frásögunni eru skepnurnar og fuglarnir látnir vera skapaðir á undan manninum. í seinni frásögunni er maðurinn skapaður á undan fuglum og öðrum dýrum. í fyrri frásögunni eru fuglarnir gerðir af vatni, en í seinni frásögunni eru peir gerðir af j''rðu. í fyrri frásögunni voru þau sköpuð tvö í cinu Adam og Eva en í seinni frásögunni er Adam fyrst skapaður, og síðan skepnurnar og fuglarnir, og svo er Eva loks gerð af einu rifi Adams. Þessar sögur eru allar miklu eldri en Móesesbækurnar. Persar segja að guð hafi skapað lieiminn á G dögum, og mann einn er hann kallaði Adam og konu að nafni Evu og hafi hann svo hvílt sig. Sogur Etrúsca, Bahylonsmanna, Kómverja og Kaldea eru þessu mjög áþekkar, og egyfsku sögurnar sömuleiðis. Persar, Grikkir, Egyftar, Kínverjar og Iimdúar hafa allir söguna um aldin- garðinn Eden og lífsins tré. Persar, Babylousmenn og íbúar Suður- Indlands hafa allir sögurnar um syndaflóðið og höggorminn. Kín- verjar segja að syndin hafi komið inn í heiminn fyrir óhlýðni kon- unnar. Jafnvel íbúar eyjarinnar Tahiti í Kyrrahafinu segja, að maðurinn hafi verið skapaður af' jörðu og liin fyrsta kona af einu beini hans. Allar þessar sögur eru viðlíka sannar, og allir liöfund- ar þeirra voru álíka innblásnir.

x

Dagsbrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.