Dagsbrún - 01.06.1896, Qupperneq 2

Dagsbrún - 01.06.1896, Qupperneq 2
— 82 — Hugmyndin sem liggur til grundvallar fyrir enduriausninni, er tekin frá villimannastigi fornþjóðanna, þegar menn gátu ekki gert sér guðina hliðliolla eður vinveitta með öðru en því, að blóta þeim dýrum eða mönnum. Guðirnir voru þá sólgnir í blóð, og þó eink- um mannablóð. En m'i er liugmynd þessi meira og meira að liverfa og jafnvel orðin að þjóðsögu allvíða. Eftir því sem maðurinn ment- ast og vcrður mannúðlegri, því síður þoia þessi þjóðsagna-afkvæmi hið lireina loft og veslast því út af. Mannkynið stefnir nú á dögum til kærleikans og mannúðarinnar, en ekki til katurs og lieift- ar ; að græða sár, en ekki að úthella blóði. Ilefðu menn eklci erft þessa fórnar og cnduriausnarhugmynd frá fyrri tímum, þá hefði mönnum nú á dögum aldrei komið til hugar, að þeir yrðu betri menn eða sælli fyrir það, að guð einhver var á tré negldur. Og ekki mundi heldur nokkrum manni koma það til hugar, nema þá mannfýlum og morðingjum, að liöfundur og skapari tilverunnar gæti reiðst svo voðalega yfir brotum og brestum barna sinna, að það væri ómögulegt að lionum sefaðist reiðin, fyr en hann hefði séð hefndina ritaða í bióðrúnum, — fyr en hann hefði slátrað eigin syni sínum. * * Sagan um liina seinfæru og þyrnumstráðu framrás guðfræðinn- ar frá lægra og á æðra stig, er um leið sagan um það, hvcrnig menn stöðugt haf'a aíklætt guðina mannlegum eiginieikum. Einu mann- lega einkenninu á eftir öðru hefir verið bolað út úr guðshugmynd- inni. Og þeim einkennum sem eftir hafa orðið, hefir verið breytt svo, að þau urðu æ þýðari, háleitari og mistu meira og meiraafhinu mannlega og ófullkomna, sem við þau loddi. Þessar breytingar hafa orðið samfora því, er maðurinn heíir sótt fram til æðri og há- leitari liugsjóna, og þannig sjáum vér, að ástríður þær og ófullkomn- un guðanna, sem menn hafa felt í burtu, eru einkenni villimanna- stigs þess, sem menn nú hafa yfirotigið. Hið vilta mannætuein- kenni i guðshugmyndinni á aldréi langan aldur, þegar þjóðin, sem trúir á þennan guð, er hætt að eta mannakjöt, og brögð og svik og grimd hætta menn að tileinka guðunum þegar menn fhra að teija það manninum til giidis að vera sannorður, hreinskilinn og miskun- samur. * * ■*■ Miss Mary A. Proctor, dóttir liins nafnfræga stjörnufiæðings Richard A. Proctor, flutti fyrirlestur í vetur og lýsti því þá yfir, að eftir sextíu miljónir ára mundi alt vatn af jörðunni gufað upp út í geyminn og yrði mönnum þá ómögulegt að lifa á jörðunni.

x

Dagsbrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.