Dagsbrún - 01.06.1896, Qupperneq 14
— 94 —
honum út í musteris garðinn, en samt bilar ekki trygð hans, heldur
skríður liann í skjól við eitthvert leiðið, kúrir svo þar, opt nötrandi
afkulda, líka kann ske af hræðslu um vin sinn í þessu miskunar-
lausa húsi, til að fagna vini sínum ef hann út komi. 0g er hann
lcemur út, stekkur liann til hans með þeim gleðilátum, sem hann
hefði heim hann úr heiju. Svona er eðli hunda sterk náttúruaug-
lýsing. En musterin eru dauð bygging — andleg verzlunarhús
falskra mynda.
Fl. Og hér er sá sem meiri er spámanninum Jónasi og konung-
inum Salómon (Matt. 12).
Sv. Alveg rétt, Jesús fór t. d. aldrci ofan í hval fyrir óhlýðni
við guð, eins og Jónas, cg hafði ekki mörg hundruð frillur eins og
Salómon.
Fl. “IJann segist koma í dýrð föðursins og með englum sínum
Þegar hann komi til dómsins.”
Sv. Sannlega segi ég yður, að hér eru nú viðstaddir nokkrir,
sem ekki munu dauðann smakka fyr en þeir sjá mannsins son koma
til ríkis síns, og ennfremur : “Nær þeir ofsælvja yður í einni borg
þá flýið í hina, og nær þeir ofsækja yður í henni, þá flýið í þá þriðju
því sannlega segi eg yður, þér munið ekki liafa lokið umferð yð-
vari'i um allar ísraelsborgir áður en mannsins sonur kemur.”
Mundu ekki orþodoxu klerkarnir hafa brýnt röddina til að
grenja móti Darvin, ef önnur eins gífuryrði, vitleysa og lygi hefði
staðið í ritum hans. Enn af þessu geta rnenn séð áreiðanlegleika
spádómanna, því Jesús frá Nazaret var þungamiðja allra biblíuspá-
dómanna.
Fl. “Eg tala það sem ég hefl séð hjá mínum föður.”
Sv. Og vessið alt: “og þér gjörið það sem þér hafið séð hjá
yðar föður.” Hver getur sagt að Jesús líki sér við guð með þessu ?
Því þó liann í sama kapítula segi: “þér eruð af föðurnum fjandan-
um,” þá hefii' hann ekki verið sýnilegri en guð, svo ég sé ekki bet-
ur en hinn góði Jóhannes jafni saman sjón gyðinga og Jesú. En er
það ekki fremur skuggalegt, að þ'essi þjóðflokkur, sem guð kjöri ein-
an af öllum þjóðfiokkum heimsins til að geyma sitt lieilaga lögmál,
skildu vera af föðurnum fjandanum, enda eru hans vegir annað en
mannavegir, öllum órannsakanlegir, en þó hver helvítis elds sekur
sem ekki fetar þá.
Fl. “Áður en Abraham var er ég.” Hann segir þá berlega,
að hann hafl verið til þegar Abraham var ekki til. Einnig með
þessum orðum neitar hann for-tilveru annai'a.
Sv. Já, þetta sýnist sanna það. En 56. vessið sýnir annað.