Fréttatíminn - 18.02.2017, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 18.02.2017, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 18. febrúar 2017 Allir að mygla í Listaháskólanum SLÖGG Nemendur Listaháskólans láta ekki bjóða sér aðstæður í hús- næði skólans við Sölvhólsgötu þar sem þeir eru sannfærðir um að myglusveppur ógni heilsu þeirra. Þeir krefjast þess að fá kennslu í öðru húsnæði. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Listaháskólanemendur mótmæltu því í gær að vera látnir stunda nám í húsnæði skólans við Sölvhólsgötu. Þeir voru meðal annars með bein- ar útsendingar á Facebook frá mót- mælum í skólanum og þuldu upp einkenni sem nemendur segjast finna fyrir. „Tíður niðurgangur, sjóntruflanir, minnistruflanir, höf- uðverkir, þunglyndi, svefntruflanir, skert jafnvægisskyn, doði í útlim- um,“ kölluðu þeir. Berglind Halla Elíasdóttir er ein þeirra sem deilir mynd- um á samfélagsmiðlum af húsnæðinu. „Ég er bara að borga 490 þús- und á ári fyrir námið mitt – er til of mikils mælst að fá að vera í viðunandi umhverfi? #LHÍmygla“ Undir myllumerk- inu má sjá hvað nem- endur hafa um málið að segja. „Það er löngum vitað að það er myglusveppur í skólanum og víða eru sýnileg merki þess. Flestir nem- endur hafa fundið fyrir einkennum af völdum myglusveppsins. Ég er með síendurtekin hóstaköst, þrálátan höfuðverk og hef í fyrsta sinn fundið fyr- ir einkennum þung- lyndis,“ segir fyrsta árs neminn Birnir Jón Sigurðsson. „Ég set það í beint sam- hengi við myglusvepp og heilsuspillandi að- stæður hér í Listaháskól- anum. Hér er ég oft með 11 klukkustunda viðveru í náminu á dag auk þess sem við þurfum að vinna verkefni og vinna frameftir. Þess hefur verið krafist í mörg ár að skólinn fái mannsæmandi húsnæði og við erum þreytt á að bíða.“ Andrea Vilhjálmsdóttir útskrif- aðist úr Listaháskólanum í fyrra. „Vandamálið hefur verið viðvar- andi í langan tíma. Mig minnir að árið 2006 hafi heilbrigðiseftirlitið komið og í kjölfarið var einhverj- um rýmum lokað. Einstaka sinnum hafa þessi rými þó verið notuð og ég hef tekið þátt í sýningu sem var í einu slíku rými. Við vorum fjögur í hópi og urðum samstundis lasin eftir einn dag þarna inni. Við sett- um það strax í samhengi við ástand húsnæðisins.“ Velferðarmál Mikill órói er á meðal hóps af öryrkjum vegna breytinga á húsnæðisstuðningi en fjölmörg dæmi eru um að tekjur öryrkja hafi minnkað eftir að nýjar reglur voru samþykktar. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Sigríður Hanna Ingólfsdóttir, fé- lagsráðgjafi hjá Öryrkjabandalagi Íslands, segir hópi öryrkja refsað fyrir að nýta sér nauðsynlega þjón- ustu en breytingarnar hafa helst áhrif á lífeyrisþega (elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega) sem eru á leigumarkaði og fengu greidda húsaleigubætur. „Allar skattskyldar tekjur eru teknar með, sem þýðir að ef fólk fær til mynda uppbót vegna lyfja- kostnaðar upp á tíu þúsund krón- ur, þá getur það lækkað um fimm þúsund í húsnæðisstyrk,“ útskýr- ir Sigríður Hanna sem bætir við að öryrkjar hafi búist við breytingum varðandi húsnæðisstuðninginn, en ekki að þeir myndu lækka í tekjum, sem hún segir að sé í mótsögn við tilgang breytinganna. Sigríður segir þetta töluvert högg fyrir tekjulágan hóp sem býr að auki á leigumarkaði þar sem leiguverð fer síhækkandi. Sigríður Hanna segir það einnig gagnrýnisvert að tekið er mið af mánuðinum á undan þegar styrk- urinn er reiknaður. Þannig hefur desemberuppbót neikvæð áhrif og leiðir til lækkunar. Það telji ÖBÍ óheimilt, og hyggst láta reyna á það frekar. Fréttatíminn ræddi við öryrkja sem vildi ekki láta nafns síns getið. 79% af ráðstöfunartekjum hans, sem eru 238 þúsund krónur, fara í húsaleigu, sem er í heildina um 180 þúsund krónur. Hann er vonsvikinn og seg- ir svör fyrrverandi velferðarráð- herra, Eyglóar Harðardóttur, hafa gefið honum von um að hagur hans myndi vænkast. Niðurstaðan var þó önnur; hann fær 8 þúsund krón- um minna en áður en kerfinu var breytt. Fá lægri húsnæðisstuðning eftir breytingar Sigríður Hanna Ingólfsdóttir segir Öryrkjabandalagið lík- lega láta reyna á það hvort það sé heimilt að miða við síðasta almanaksár, þegar húsnæðisstyrkur er reiknaður. Nemendur Listaháskólans deildu myndum af sér með hlífar fyrir vitunum og segja myglu- svepp í skólanum. Mynd | Hari „Tíður niðurgangur, sjóntruflanir, minnistruflanir, höfuðverkir, þunglyndi, svefntruflanir, skert jafnvægisskyn, doði í útlimum,“ kölluðu nemendur á mót- mælafundi við Sölvhólsgötu í gær. Mynd | Hari Suðræn sveifla við Saint-Tropez sp ör e hf . Sumar 4 Ekki er að undra að helstu listamenn sögunnar hafi sótt sér innblástur á frönsku rivíerunni, slík er fegurðin. Við verðum vitni að stórbrotinni náttúru við Gullströndina, förum í bátsferð til listamannabæjarins St. Tropez, heimsækjum furstadæmið Mónakó og að sjálfsögðu mun einnig gefast góður tími til að njóta og slaka í skemmtilegum félagsskap. 12. - 20. júní Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 217.700 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Hjúkrun Skortur á hjúkrunar­ fræðingum 290 hjúkrunarfræðinga vantar í um 225 stöðugildi, en meðalstarfshlut- fall hjúkrunarfræðinga á heilbrigð- isstofnunum er um 70 prósent. Þetta sýnir könnun sem gerð var á mönnun við hjúkrun á heilbrigðis- stofnunum. Skortur á hjúkrunarfræðingum er meiri ef horft er til mats fram- kvæmdastjóra hjúkrunar og hjúkr- unarforstjóra á heilbrigðisstofn- unum en samkvæmt því vantar hjúkrunarfræðinga í um það bil 400 stöðugildi í samtals um 520 stöður. Um 1000 hjúkrunarfræðingar á Íslandi starfa við annað en hjúkrun, samkvæmt greiningu Félags hjúkr- unarfræðinga en 70 prósent þeirra sem hafa útskrifast úr hjúkrunar- fræði eru í félaginu. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra fékk skýrslu um stöðuna í gær frá Guðbjörgu Páls- dóttir, formanni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Einungis fjórðungur er ánægður með ríkisstjórn-ina samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Stuðningsmenn stjórn- arflokkanna virðast ekki fara með himinskautum í hrifningu sinni frekar en aðrir. Þannig styðja 2 af hverjum 3 Sjálfstæðismönnum stjórnina en einungis 4 af hverjum tíu kjósend- um Viðreisnar. Steininn tekur úr þegar hinn örsmái flokkur Óttarrs Proppé er skoðaður. Flokkurinn sem var við það að þurrkast út fyrir kosningar náði vopnum sínum með því að lofa kjósendum miklum kerfisumbótum. Flokkurinn fékk rúmlega 13 þús- und atkvæði fyrir vikið og fjóra þingmenn. En allt kom fyrir ekki. Hann er núna burðarbiti í borgar- virki ríkjandi hagsmuna og þáði að launum ráðherrastóla sem virðast strax farnir að gjökta undir nýju ráðherrunum. Af kjósendum flokksins styðja einungis 13 prósent stjórnar- samstarfið en flokkurinn leggur stjórninni til 2 ráðherra af 11 alls. Þannig standa einungis tæplega 1700 manns að þessum tveimur ráðherrum sem fara með heilbrigð- ismál og umhverfismál, gríðarlega umdeild mál sem miklar væntingar eru bundnar við. Til samanburð- ar þá starfa tæplega fimm þúsund manns á Landspítalanum. Þing- flokksformaðurinn, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, ákvað að gegna þingmennsku og sitja í bæjarstjórn Kópavogs á sama tíma og er komin með 2,5 milljónir króna í laun frá skattgreiðendum. Aðeins meira en forsetinn en minna má það nú ekki vera. Þessi sautján hundruð hljóta að vera mjög ánægð með fulltrúa sína. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir BJÖRT FRAMTÍÐ Fram kom í frétt Fréttatímans í gær að íbúar Hrafnistu hefðu verið ofrukkaðir og að Naustavör væri rekstrarfélag Hrafnistu. Það var ekki rétt, en rétt er að Sjó­ mannadagsráð stendur að rekstri leiguíbúða Naustavarar ehf. í Boðaþingi, og sama félag stendur einnig að rekstri hjúkrunarheimilisins Hrafnistu í Boðaþingi. Þessi tvö félög eru aðskilin í rekstri þó þau séu hluti af svokallaðri samstæðu Sjómannadagsráðs. Beðist er velvirðingar á þessari ónákvæmni. Leiðrétting

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.