Fréttatíminn - 18.02.2017, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 18.02.2017, Blaðsíða 4
Jón Helgi Björnsson, formaður Landssam- bands íslenskra veiði- félaga, segir að í fyrra hafi verið framleidd 8000 tonn af norskum eldislaxi í sjókvíum. Umsóknir liggi fyrir um að framleiða alls 180 þúsund tonn í sjókvíum. 4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 18. febrúar 2017 Tugum tonna af eldislaxi fargað á Bíldudal: „Ekkert óeðlilegt“ Víkingur Gunnarsson hjá Arnarlaxi segir að afföll í laxeldi séu ekki óeðlileg og markmiðið sé að halda förgun á fiski í lágmarki. Laxeldi Farga þarf á milli 10 og 20 prósent af öllum eldislaxi. Fullur gámur af dauðum eldislaxi var fluttur frá Bíldudal í vik- unni. Víkingur Gunnarsson hjá Arnarlaxi segir að afföll í eldinu séu eðlilegur hluti af rekstrinum. Dýraverndarsamtök Íslands hafa áhyggjur af uppgangi laxeldis og segja ekki eðlilegt að svo stór prósenta deyi í dýraeldi. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Laxeldisfyrirtækið Arnarlax farg- aði í vikunni tugum tonna af eld- islaxi sem drepist hafði af ýmsum ástæðum í eldiskvíum fyrirtæk- isins. Dauða laxinum er safnað saman í kör og hann fluttur í gám- um til urðunar í Sorpurðun Vest- urlands í Borgarnesi. Í vikunni var búið að fylla einn gám á Bíldudal með dauðum laxi, samtals um 80 tonn samkvæmt einum heimildar- manni, sem þurfti að urða. Sjá má hluta af dauða laxinum á meðfylgj- andi myndum. Víkingur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Arnarlax, segir að ekkert sé óeðlilegt við að afföll séu í laxeldi fyrirtækisins og að hluti framleiðslunnar deyi. Hann segir að þetta eigi við í öllu eldi á dýrum. „Það er ekkert vandamál í gangi. Það eru afföll í öllu dýraeldi og lax- eldi. Afföll geta átt sér stað af ýms- um ástæðum. Það er ekkert óeðli- legt við þetta og það er bara rangt ef þú ert með einhverjar heimildir um annað.“ Víkingur segir að hann viti ekki nákvæmlega hversu mörg prósent af laxinum hjá Arnarlaxi deyi og sé fargað. Í laxeldi er talað um það, almennt séð, að afföll séu á milli 10 og 20 prósent. „Ég er ekki með þessa tölu en þeim mun minni afföll þeim mun betra. Það er allir að reyna að lágmarka afföllin hjá sér.“ Hallgerður Hauksdóttir, formað- ur stjórnar Dýraverndarsambands Íslands, segir að sambandið hafi orðið talsverðar áhyggjur af auknu laxeldi á Íslandi. Hún segir að það sé ekki eðlilegt að svo stór hluti eldisdýra deyi í dýraeldi almennt séð en að annað eigi við um þaul- eldi eins og laxeldi. Þauleldi er það eldi þegar þrengsli dýranna, sem eru ræktuð, eru talsverð, eldið þarf að fara í mat á umhverfisáhrifum og þegar „velferð dýra er fórnað fyrir hámörkun nytja,“ eins og Hallgerð- ur segir. „Ég hef orðið verulegar áhyggjur af þessu. Það eru afföll í þauleldi vegna mikilla þrengsla eða sjúkdóma. Annars á ekkert við að tala um eðlileg afföll í dýraeldi.“ Víkingur segir að hann viti ekki nákvæmlega hversu mörgum tonn- um af eldislaxi Arnarlax fargi að öllu jöfnu í hverjum mánuði en að þetta geti verið um 200 kíló á dag almennt séð – sem þá eru 6 tonn í hverjum mánuði. Hann segir að þetta sé ekki áhyggjuefni heldur eðlilegt í laxeldi. „Þetta er ekki eitt- hvað sem er stórmál. Menn lenda í alls konar málum og þurfa að taka því. Svona er þetta bara.“ Víkingur segir að Sorpurðunar- stöð Vesturlands haldi tölu á því hversu mörgum tonnum af eldis- laxi er fargað. Sorpurðunarstöðin hefur neitað að veita Orra Vigfús- syni, framkvæmdastjóra NASF – verndarsjóði íslenska laxastofnsins, upplýsingar um hversu mörg tonn af eldislaxi sorphirðustöðin urðaði í fyrra. Orri hefur kært synjunina um upplýsingarnar til úrskurðarnefnd- ar um upplýsingamál. Myndirnar sýna kör og gám sem dauði eldislaxinn var í á Bíldudal í vikunni áður en hann var fluttur í Sorprurðunarstöð Vesturlands í Borgarnesi. Roðið dettur af laxinum þegar hann úldnar í sjókvíunum, áður en hann er tekinn upp til förgunar. 32101 Skattamál/Sjávarútvegur Sjómað- ur sem vann hjá Afríkuútgerð Samherja segir að hann hafi haldið að vinnuveitandinn hafi átt að greiða skattana. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Íslenskur sjómaður, sem var bú- settur í Máritaníu og vann við fisk- veiðar hjá Sjólaskipum og Samherja í Afríku, þarf að greiða tekjuskatt af rúmlega sextíu milljóna króna launatekjum sem hann var með á fimm ára tímabili, frá 2007 til 2011. Þetta kemur fram í úrskurði yfir- skattanefndar frá því í desember síðastliðnum. Sjómaðurinn kærði endurálagningu Ríkisskattstjóra til nefndarinnar. Maðurinn er einn af tæplega 60 sjómönnum sem hafa lent í því að skattayfirvöld hafa endurákvarðað á þá tekjuskatt vegna vinnu þeirra fyrir Afríkuútgerðir Sjólaskipa og Samherja. Fréttatíminn sagði frá þessum málum í lok nóvember en úrskurðurinn í máli þessa sjómanns féll eftir það. Út frá úrskurðinum í máli mannsins er ljóst að launa- greiðendur hans voru aflandsfélög sem tóku þátt í rekstri Sjólaskipa og Samherja á Afríkuútgerðinni sem gerði út frá Kanaríeyjum – Sam- herji keypti útgerðina af Sjólaskip- um árið 2007. Sjómaðurinn taldi útgerðirnar eiga að greiða skatt af launum hans: „Þá hafi kærandi verið launamað- ur og hafi það því verið á ábyrgð launagreiðanda að sjá til þess að staðið væri skil á sköttum af launum hans.“ Þetta gerðu útgerðirnar ekki. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri og stærsti hluthafi Samherja, hefur ekki viljað veita Fréttatíman- um viðtal um mál sjómannanna, hvorki þegar blaðið fjallaði um mál- ið í lok nóvember né nú. Þarf að borga skatt af milljónatekjum frá aflandsfélagi Samherja Sjómaðurinn var með rúmlega 60 milljóna króna tekjur þegar hann starfaði hjá Sjóla- skipum og Samherja í Afríku. Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja. Slögg Landssamband veiðifélaga telur að Arctic Sea Farm í Dýra- firði hljóti að missa rekstrarleyfi eftir að seiði sluppu í miklu magni úr sjókví á Vestfjörðum. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Landssamband veiðifélaga fékk fyrst upplýsingar um að verulegt magn af regnbogasilungi væri á sveimi í sjó á Vestfjörðum 13. júní í sumar. Ábendingu um það var komið á framfæri við eftirlitsað- ila. Ekkert fyrirtæki kannaðist þá við að hafa misst fisk. Síðan hefur regnbogi veiðst í fjölda vatnsfalla á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðvesturlandi. „Við vorum að fá stanslausar fréttir frá því um miðjan júní af því að menn væru að veiða eldisfisk í ám og vötnum, en opinberir aðilar sýndu þessu engan áhuga,“ segir Jón Helgi Björnsson, formaður Landssam- bands veiðifélaga. Hann segir að þannig hafi margoft verið haft samband við eftirlitsstofnanir og óskað eftir opinberri rannsókn. Þá hafi málið verið kært til lögreglu. Fyrst í gær hafi fyrirtækið loks viðurkennt, heilum átta mánuðum að það hafi komið gat á eina sjókvína. „Við erum klárir á því að þarna er um skýrt lögbrot að ræða. Við munum fylgja því eftir að lögregla rannsaki það til hlítar og vísi því til ákæruvaldsins.“ Jón Helgi segir að í fyrra hafi verið framleidd 8000 tonn af norskum eldislaxi í sjókvíum, Um- sóknir liggi fyrir um að framleiða alls 180 þúsund tonn í sjókvíum. „Ég er alveg skíthræddur, maður getur bara rétt ímyndað sér hvaða afleiðingar þetta getur haft.“ „Ég er alveg skíthræddur“ Félag Einars í Lúx sem á 386 milljóna arðinn úr Borgun Viðskipti Einar Sveinsson, fjárfestir og föðurbróðir Bjarna Benediktssonar, hefur hagnast vel á hlutabréfakaupum sínum í Borgun. Eignarhaldsfélag hans í Lúxemborg heldur utan um fyrir- tæki hans á Íslandi. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Félag Einars Sveinssonar í Lúxem- borg, sem á eignarhlutinn í greiðsl- umiðlunarfyrirtækinu Borgun í gegnum íslenska eignarhaldsfélag- ið P 126 ehf., er fjármagnað alfarið af þessu dótturfélagi sínu og greiðir því vexti af lánum. Lúxemborgíska félagið heitir Charomina Lux S.á.r.l. og fékk það lán frá íslenska félaginu upp á 70 milljónir króna árið 2015 sem það greiðir vexti af. Auk þess fékk það vaxtalaust lán upp á tæp- lega 4.5 milljónir evra, ríflega hálfan milljarð, frá P 126 ehf. Þetta kemur fram í ársreikningi lúxemborgíska félagsins fyrir árið 2015 sem skilað var til fyrirtækjaskrár Lúxemborgar í desember. Einar Sveinsson var einn af kaup- endum eignarhluta íslenska ríkisins í Borgun árið 2014 og hafa fyrirtæki hans fengið 86 milljóna króna arð frá Borgun út úr þeim viðskiptum sem hafa verið mjög umdeild í íslensku samfélagi. Í vikunni var sagt frá því að til að stæði að greiða hluthöfum Borgunar út 4.7 milljarða króna arð og verður hlutdeild Einars í þeim arði 300 milljónir króna. Hlutabréf- in í Borgun voru seld á undirverði út úr ríkisbankanum Landsbankanum. Félag Einars í Lúxemborg kom út á núlli árið 2015, var með tekjur upp á rúmlega 200 þúsund evrur og var greidd sama upphæð í skatta, vexti og annan kostnað við rekstur félags- ins það ár. Arðgreiðsla P 126 ehf. til lúxemborgíska félagsins upp á 30 milljónir króna, meðal annars út af eignarhlutnum í Borgun, rann upp í skuld við íslenska félagið eftir að greiddur var af henni sex milljóna króna skattur. Arðgreiðslur úr Borg- un og P 126 ehf. munu hins vegar í framtíðinni geta runnið inn í þetta félag Einars í Lúxemborg þar sem skattaum- hverfið er enn hag- stæðara fjárfest- um en á Íslandi. Einar Sveinsson er búsettur í hverfinu Mayfair í London og stýrir hann fyrir- tækjaneti sínu á Íslandi í gegnum lág- skattaríkið Lúxemborg. Félagið á meðal annars hlutabréf hans í Borgun í gegnum íslenskt eignarhaldsfélag sem sonur hans, Benedikt, stýrir með honum. Fæst í helstu apótekum

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.